Fjögur af hverjum fimm íslenskum fyrirtækjum lent í „veiðipóstaárás“

Sam­kvæmt nýrri við­horfs­könn­un Deloitte á Íslandi hafa 80 pró­sent fyr­ir­tækja hér­lend­is orðið fyr­ir svo­nefndri „veiði­pósta­árás“. Yfir­maður net­varn­ar­þjón­ustu segir mik­il­vægt að fræða starfs­fólk.

Fjögur af hverjum fimm fyr­ir­tækjum á Íslandi hafa orðið fyrir svo­kall­aðri veiði­pósta­árás, „phising“ á ensku, á síð­ast­liðnum tólf mán­uðum. Í slíkum netárásum reyna tölvu­þrjótar m.a. að fá mót­tak­endur tölvu­pósts­ins til að senda sér við­kvæmar upp­lýs­ingar eins og lyk­il­orð starfs­manna eða þá að fórn­ar­lömbin eiga að smella á hlekki í póst­inum, sem leiða við­tak­anda á allt annan og hættu­legri stað en hlekk­ur­inn gaf til­efni til. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum við­horfskönn­unar Deloitte á Íslandi um net­ör­ygg­is­mál fyr­ir­tækja. Þor­valdur Henn­ings­son, yfir­maður net­varn­ar­þjón­ustu Deloitte á Íslandi segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að árásir að þessir gerð séu mjög mis­mun­andi að gerð og gæðum. Afleið­ing­arnar geta hins vegar oft verið mjög alvar­legar. Því sé mik­il­vægt að fyr­ir­tæki hugi vel að því hvernig best sé að verj­ast árásum af þessu tagi.

Fræðsla starfsmanna mikilvæg

Þor­valdur segir það skipta mestu máli að starfs­fólk sé vel upp­lýst um það hvernig veiði­póstar líti út sem og að fólk sé almennt vel vak­andi fyrir því hvort tölvu­póstar þeirra séu frá réttum aðilum. „Það fæð­ist eng­inn með þekk­ingu á því hvernig á að greina veiði­póst frá öðrum pósti.“ segir Þor­valdur. „Grund­vall­ar­at­riði er að maður þarf að ávallt að vera mjög vak­andi í þessum efnum og skoða allan tölvu­póst sem maður fær með það í huga hvort um svika­póst sé að ræða eða ekki,“

Hann segir það í sjálfu sér ekki koma sér á óvart að svona hátt hlut­fall, 80 pró­sent, íslenskra fyr­ir­tækja hafi orðið fyrir veiði­pósta­árásum. „Þessar send­ingar geta verið allt frá því að vera með lélegu mál­fari og stíl­aðar á millj­ónir manna í einu og upp í það að ein­blínt sé kannski á starfs­menn eins fyr­ir­tækis og þá á nokkuð góðri íslensku,“ segir Þor­valdur.

Ef smellt er á hlekki í veiði­póstum er komin mögu­leika á tölva starfs­manns­ins verði tekin yfir af tölvu­þrjóti. Þá verður tölvan fyrir gagnagísla­töku og getur jafn­vel dreift smit­inu á aðrar tölvur fyr­ir­tæk­is­ins. Þor­valdur segir það því mjög alvar­legt mál ef starfs­fólk lætur glepjast af veiði­pósta­árásum og því sé mik­il­vægt að starfs­fólk sé frætt. Deloitte hefur aðstoðað fyr­ir­tæki í þessum efnum, mætt á vinnu­staði og haldið fyr­ir­lestra eða sett af stað gervi-árás til kanna hvort starfs­menn fyr­ir­tækja láti gabb­ast. Í einni svo­leiðis gervi-árás féllu 60 pró­sent starfs­mann­anna í gildr­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

netárás

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár