Isavia varð fyrir tölvuárás

Isavia varð fyrir tölvu­árás í gær. Árásin kemur í kjöl­far mik­illar óánægju vegna meintra tafa tyrk­neska karla­landsiðs­ins í fót­bolta við vega­bréfa­eft­ir­lit á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Isavia varð fyrir tölvu­árás í gær. Tyrk­neskur hakk­ara­hópur seg­ist hafa ráð­ist á vef­síð­una til að hefna fyrir mót­tökur tyrk­neska karla­lands­liðs­ins, að því er kemur fram í frétt RÚV.

Í til­kynn­ingu frá Isavia segir að um svo­kallað DDos (Distri­buted denial of service) árás hafi verið að ræða þar sem „fram­kölluð er umferð á vef­síð­una með þús­undum sýnd­arnot­enda. Með þeim hætti náðu óprút­tnir aðilar að gera vef­síð­una óvirka.”

Á vef­síðu Isavia eru birtar flugupp­lýs­ingar fyrir alla íslenska áætl­un­ar­flug­velli. Tækni­menn hafi unnið að því að verj­ast árás­unum og koma vef­síð­unni í samt horf. Enn fremur er beðið vel­virð­ingar á vanda­málum sem þetta kunni að valda, að því er kemur fram í til­kynn­ing­unni.

Utanríkisráðuneytið neitar ásökunum

Tyrknesk stjórn­völd hafa beðið íslenska utan­rík­is­ráðu­neytið svara við meintum töfum tyrk­neska karla­landsiðs­ins í fót­bolta við vega­bréfa­eft­ir­lit og örygg­is­leit. Liðið kom til lands í gær­kvöld vegna leiks við íslenska karla­lands­liðið í fót­bolta.

Í til­kynn­ingu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir að ekki hafi verið mögu­legt að bregð­ast við beiðni tyrk­neska stjórn­valda við hraða­með­ferð í gegnum vega­bréfs­skoðun og örygg­is­leit þar sem hún kom með of skömmum fyr­ir­vara. Slík fyr­ir­greiðsla standi að jafna aðeins hátt­settum sendi­er­ind­rekum og ráða­mönnum til boða, að því er kemur fram í til­kynn­ing­unni.

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur svarað orð­send­ingu tyrk­neskra stjórn­valda þar sem áréttað var að fram­kvæmd eft­ir­lits­ins „hafi verið í sam­ræmi við hefð­bundið verk­lag og ekki hafi reynst unnt að verða við hraðmeð­ferð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tölvuárás

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár