Lortur í lauginni

Safnað fyrir íslensku blekk­ing­ar­spili á Karolina Fund. Fyrir liggur 30 ára áætlun fyrir fram­takið.

Lortur í laug­inni er íslenskt blekk­ing­ar­spil sem á sér stað í sund­laug austur á landi. Í hverri umferð kepp­ast leik­menn um að háfa burt lort sem tveir óprút­tnir aðilar hafa komið fyrir í sund­laug­inni. Vanda­málið er að tveir leik­menn af fimm eru komnir í laug­ina til að villa um fyrir hinum og því er það þraut­inni þyngra að finna hvar skal háfa burt lort­inn þegar þú veist ekki hvaða sund­lauga gest þú getur treyst. Spilið heitir Pool Pooper á ensku og það er ætl­unin að selja það erlendis árið 2020 


Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hug­myndin kveikn­aði eftir spila­kvöld í bústað­ar­ferð í jan­úar síð­ast­liðnum. Ég var yfir mig hrif­inn af því að spila var­úlf í fyrsta skipti (við spil­uðum það lík­lega 20x þá helg­ina) en það fór í taug­arnar á mér að fólk datt úr leik í hverri umferð og að karakt­er­arnir væru yfir­nátt­úru­legar per­sónur þar sem ein­hver er drep­inn. Þetta fór aðal­lega í taug­arnar á mér því ég var reglu­lega kos­inn snemma út.

[adspot]Því lang­aði mig að búa til spil sem væri kómískt og hefði eig­in­leika sem mér fannst að hægt væri að byggja ofan á var­úlf. Síðan er þetta búið að vera rúm­lega 9 mán­aða skemmti­ganga með fjöld­anum öllum af prufu­spil­unum og bæt­ingum sem gerði gang­verk leiks­ins eins og hann er í dag þar sem leik­menn draga spjöld til að fá upp­lýs­ingar áður en umræður hefj­ast. Á seinni stigum hef ég kom­ist að því að leiknum svipar örlítið meira til Avalon en var­úlf en æðsta mark­mið leiks­ins var alltaf að búa til skemmti­legt spil sem hefur húmor og eng­inn þarf að deyja í - það hefur að mínu mati tek­ist.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Þegar mér datt í hug að búa til íslenskt blekk­ing­ar­spil þá hugs­aði ég í fyrstu til vík­inga, þjóð­há­tíðar og fleira sem manni finnst vera sér­ís­lenskt. Það var svo bara í sundi sem mér fannst ég ekki geta fundið betri aðstæður fyrir leik og síðan var ekki aftur snúið. Stuttu seinna var ég með hönnuð til að hjálpa mér að búa til karakt­er­ana sem áttu allir að vera ster­eótýpur. Pott­verj­inn eða þessi bess­ervisser sem er alla morgna í pott­inum en fer ekk­ert endi­lega að synda heldur er bara í pott­inum og spjallar. Sund­konan sem akkúrat mætir til að synda. Næstu karakt­erar þar á eftir voru aðeins inni­halds­laus­ari eins og kaf­ari, litli dreng­ur­inn sem kúkar í sund­laug­ina og sund­laug­ar­vörð­ur­inn sem hjálpar honum til að kom­ast heim úr vinn­unni. Eftir prufu­spilun ákvað ég að taka út Bikini bomb­una sem þótti ekki smekk­leg en gæti lík­lega heitið áhrifa­valdur í dag. Hún virt­ist stuða marga svo ég tók hana út frekar en að eiga á þeirri hættu að fólk verði pirrað. Í söfn­un­inni stóð til boða að kaupa 3 nýja karakt­era í spilið og núna er ég að kepp­ast við að klára þá svo hægt verði að hefja prent um leið og söfnun líkur.

[adspot]Að búa til borð­spil á 9 mán­uðum er djúp laug til að henda sér í og það er ekki hægt án þess að kynn­ast borð­spila­sen­unni á íslandi sem lifir í spila­vinum á fimmtu­dags­kvöldum og á facebook síðu. Ég hélt að spilið væri til­búið í byrjun júní þegar ég bað ókunn­uga um að taka spilið í sínar hendur og pru­fa­spila það í borð­spila­hóp á Facebook sem ég fann í jan­úar. Það kom í ljós að gang­verkið var í raun mjög brotið þó ég hafi náð að spila það með vinum og fjöl­skyldu án vand­ræða frá apríl til júní. Því er ekki hægt annað en að taka hatt­inn ofan fyrir öllum þeim sjálf­boða­liðum sem vildu taka spilið og spila það, senda mér rit­gerð af athuga­semdum og beina áfram á beinu braut­ina. Ég á þessu fólki, vinum og fjöl­skyldu miklar þakkir fyrir að hafa lagt verk­efn­inu lið end­ur­gjalds­laust en í von um að fá þau með mér í lið náði ég að fá Stjörnu­snakk til að sponsora prufu­spilun. Nær allir afþökk­uðu enda er það ekki pent að vera með snakk­putta innan um borð­spil:)“

Hægt er að fylgj­ast með verk­efn­inu á facebook eða heima­síðu spils­ins og mark­miðið er að selja 250 ein­tök í gegnum Karolina Fund hér.

Á síð­ustu dögum söfn­un­ar­innar verður send út 30 ára áætlun borð­spils­ins Lortur í laug­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár