Í hverju ertu?

Hópur meist­ara­nemar í rit­list safnar fyrir útgáfu bókar á Karolina Fund. Um er að ræða smá­sögur, örsögur og ljóð um ást­ina á Antonio Banderas, masókíska tann­burstun og spurn­inga­þátt.

Hópur af meist­ara­nemum í rit­list og hag­nýtri rit­stjórn og útgáfu við Háskóla Íslands hafa sam­einað krafta sína með því mark­miði að semja, skapa og gefa út bók frá grunni. Útgáfa bók­ar­innar er afurð nám­skeiðs­ins Á þrykk sem kennt er af Sigþrúði Gunn­ars­dóttur, rit­stjóra hjá For­lag­inu. Bókin hefur hlotið nafnið Í hverju ertu? Höfundar eru Ásta Björk Svein­björns­dóttir, Brynjólfur Þor­steins­son, Lárus Jón Guð­munds­son, María Hjálmtýs­dóttir og Þor­valdur S. Helgason. Rit­stjórar eru Elín Ill­uga­dóttir, Erna Rut Vil­hjálms­dóttir og Sigríður Erla Við­ars­dóttir. Kápu­hönn­unin er eftir Elínu Eddu, graf­ískan hönnuð og hóp­myndin á Karolina Fund var tekin af Anítu Björk, ljós­mynd­ara. Kjarninn heyrði í Sigríði Erlu, meist­ara­nema í hag­nýtri rit­stjórn og útgáfu og tók hana tali.

Þið eruð að vinna að fjár­mögnun á rit­verk­inu „Í hverju ertu?“. Er það fyrsta skiptið sem þessi hópur vinnur saman?

„Já, þetta er í fyrsta sinn sem þessi hópur vinnur saman. Við erum öll nem­endur í áfang­anum „Á þrykk“ sem er nám­skeið sem er í boði fyrir meist­ara­nema í rit­list og rit­stjórn við Háskóla Íslands. Nám­skeiðið gengur út á að nem­endur vinna saman og skapa bók frá grunni. Það er ekki gerð krafa um að bókin sé prentuð og gefin út en við vorum öll sam­mála um það frá fyrsta degi að við vildum sjá bók­ina útgefna. Það hefur verið venjan und­an­farin ár að bæk­urnar eru gefnar út. Sig­þrúður, leið­bein­and­inn okkar, benti okkur bros­andi á þegar hún kvaddi okkur fyrir páska­frí að þetta væri mjög óvana­legur síð­asti tími þar sem nú er heil­mikil vinna eftir, þegar nám­skeið­inu er form­lega lokið. En okkur finnst sem betur fer gaman í skól­anum og hlökkum til að deila afrakstr­inum með fólki í lok maí þegar bókin kemur út.“

Hvers konar rit­verk er „Í hverju ertu?“?

„Text­arnir í bók­inni eru smá­sögur, örsögur og ljóð þar sem meðal ann­ars má lesa um ást­ina á Antonio Banderas, masókíska tann­burstun og spurn­inga­þátt sem ákvarðar hvort þátt­tak­endur fari til himna­ríkis eða hel­vítis. Við ákváðum að við vildum ekki að text­arnir hefðu ákveðið þema heldur fengu höf­undar frjálsar hendur. Útkoman er skemmti­lega fjöl­breytt og bókin inni­heldur efni sem les­endur geta tengt við á mis­mun­andi hátt.“

Hvaðan kemur nafnið á verk­inu?

„Nafnið kemur úr einni af sög­unum í bók­inni. Þar er sögu­per­sónan ávörpuð af tvö hund­ruð ára gam­alli bók með þess­ari marg­frægu spurn­ingu. Það var smá haus­verkur að koma sér saman um nafn enda sam­anstendur hóp­ur­inn af átta ein­stak­lingum. En við vorum öll mjög ánægð með þessa nið­ur­stöðu enda geta svörin við spurn­ing­unni „í hverju ertu?“ verið ansi fjöl­breytt og áhuga­verð. Eins og sögur og ljóð bók­ar­innar. Við náðum því tak­marki okkar að fjár­magna útgáfu bók­ar­innar á Karolina Fund í síð­ustu viku. Það er áfram hægt að tryggja sér ein­tak af bók­inni í gegnum síð­una okkar á Karolina á meðan söfn­unin er opin.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár