Samfylkingin tapar fylgi og ábyrgðin sögð Dags í Braggamálinu

Meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn bætir við sig fylgi þó að Sam­fylk­ingin dali. Þriðj­ungur telur borg­ar­stjóra bera ábyrgð í Bragga­mál­inu.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sam­fylk­ingin tapar mestu fylgi allra borg­ar­stjórn­ar­flokk­anna sam­kvæmt könnun sem Frétta­blaðið stóð fyrir. Aðrir flokkar í meiri­hluta í borg­ar­stjórn bæta hins vegar við sig fylgi eða halda í horf­inu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist, líkt og í síð­ustu kosn­ingum, stærstur flokka.

Samkvæmt könn­un­inni myndu um þrír af hverjum tíu, sem tóku afstöðu, greiða Sjálf­stæð­is­flokknum atkvæði sitt en það er svipað og kjör­fylgi flokks­ins í vor. Sam­fylk­ingin mælist með 21 pró­sent en hlaut tæp 26 pró­sent í kosn­ing­unum. Píratar bæta nokkru við sig og fengju 12,7 pró­sent atkvæða sam­an­borið við tæp 8 pró­sent í vor. Viðreisn mælist með rúm 9 pró­sent nú sam­an­borið við rúm 8 í vor. Vinstri græn mæl­ast með ríf­lega 8 pró­sent og bætir því nokkru við sig en flokk­ur­inn fékk 4,6 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum. Ríflega þriðj­ungur svar­enda var aftur á móti óviss um hvaða flokk þeir myndu kjósa. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Fjöldi borg­ar­full­trúa minni­hluta­flokk­anna breyt­ist því ekki miðað við kosn­ing­arnar í vor. Meiri­hlut­inn myndi halda velli með þrettán full­trúa en vera öðru­vísi sam­an­settur. Sam­fylk­ingin myndi tapa tveimur mönnum en Píratar og Vinstri græn bæta við sig einum manni hvor flokkur. Borg­ar­stjórn­ar­flokkur Við­reisnar myndi áfram telja tvo menn.

Ábyrgðin er borgarstjórans

Samtímis því að kanna fylgi flokk­anna voru þátt­tak­endur einnig spurðir hver þeim þætti að ætti að axla ábyrgð á fram­úr­keyrslu við end­ur­bætur og við­bygg­ingar bragg­ans í Naut­hóls­vík. Af þeim sem tóku afstöðu töldu flestir, um þriðj­ungur svar­enda, að ábyrgðin væri borg­ar­stjór­ans.

Rúmlega fjórð­ungur taldi ábyrgð­ina vera meiri­hluta borg­ar­stjórnar og álíka margir, 26,2 pró­sent, svör­uðu því að emb­ætt­is­menn ættu að axla ábyrgð. Um níu pró­sent telja að hönn­uðir og arki­tektar beri ábyrgð­ina á fram­úr­keyrsl­unni og rúm fimm pró­sent telja hana ann­arra. Þetta eru nið­ur­stöður könn­unar sem Zenter rann­sóknir unnu fyrir Frétta­blaðið.

[links]Umræddur braggi í Naut­hóls­vík er örugg­lega orðin fræg­asti og dýr­asti braggi í sögu Íslands. Kostn­aður við end­ur­bætur og við­bygg­ingar hans fóru langt fram úr áætlun. Kostn­aður við fram­kvæmd­irnar nemur nú rúm­lega 400 millj­ónum króna en upp­haf­lega var gert ráð fyrir að hann yrði 158 millj­ónir. Braginn hefur valdið miklu fjaðrafoki en flestir eru sam­mála um að fram­úr­keyrslan sé hin alvar­leg­asta en ekki eru allir sam­mála um hver á að sæta ábyrgð vegna máls­ins.

Samkvæmt könnun Frétta­blaðs­ins eru skiptar skoð­anir á milli kynj­anna en karlar eru lík­legri til að setja Bragga­málið á reikn­ing borg­ar­stjóra, 36 pró­sent á móti 29 pró­sentum kvenna. Konur benda frekar á meiri­hlut­ann eða 32 pró­sent sam­an­borið við 22 pró­sent karla. Áþekkt hlut­fall kynj­anna, um fjórð­ungur, taldi að emb­ætt­is­menn ættu að sæta ábyrgð.

Yngstu kjós­end­urnir voru ólík­leg­astir til að benda á Dag B. Þeir sem eldri eru voru frekar á því að ábyrgðin væri Dags eða tæp­lega helm­ingur svar­enda 55 ára og eldri. Sami hópur var einnig ólík­leg­astur til að benda á meiri­hlut­ann í borg­inni. Sé litið til yngstu kjós­enda borg­ar­innar voru sextán pró­sent á því að borg­ar­stjóri ætti að sæta ábyrgð en 41 pró­sent taldi að skella ætti skuld­inni á emb­ætt­is­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár