Þolmarkadagur jarðarinnar er í dag, tveimur dögum fyrr en í fyrra

Til að standa undir auð­linda­notkun jarð­ar­búa þyrfti 1,75 jörð sam­kvæmt útreikn­ingum sam­tak­anna Global Footprint Network. Margar leiðir eru færar til þess að minnka auð­linda­notkun og seinka þannig deg­inum.

Þol­marka­dagur jarð­ar­innar (e. Earth Overshoot Day) er í dag. Dag­setn­ingin mið­ast við þann tíma þegar jarð­ar­búar hafa nýtt sér þær auð­lindir sem jörðin er fær um að end­ur­nýja á heilu ári en sam­tökin Global Footprint Network halda utan um þá útreikn­inga sem þar liggja að baki. Til þess að standa undir núver­andi auð­linda­notkun jarð­ar­búa þarf 1,75 jörð sam­kvæmt útreikn­ingum sam­tak­anna.

Dag­setn­ing þol­marka­dags­ins fær­ist til um tvo daga milli ára en hann rann upp þann 30. júlí í fyrra. Einu sinni áður hefur þol­marka­dag­ur­inn runnið upp jafn snemma á árinu og í ár, það var árið 2018. Það ár rann dag­ur­inn upp í fyrsta sinn í júlí. Á und­an­förnum ára­tug hefur þró­unin verið á þá leið að dag­ur­inn hefur færst hægt og bít­andi fjær kom­andi ára­mótum.

Á hverju ári frá árinu 1970 hefur heims­byggðin notað meira af auð­lindum en jörðin er fær um að end­ur­nýja á einu ári. Árið 1970 bar þol­marka­dag­inn upp á jóla­dag, 25. des­em­ber.

Jörðin rekin á yfirdrætti

Samtökin Global Footprint Network skoðar bæði fram­boð af auð­lindum og eft­ir­spurn þjóða eftir þeim en á meðal auð­linda eru fiski­stofnar, skóg­lendi, beiti­land og ræktað land.

Á vef sam­tak­anna er notkun auð­linda umfram þær sem jörðin er fær um að end­ur­nýja á ári líkt við yfir­drátt og jörðin því sögð rekin með vist­fræði­legum halla. Ríki sem búa við slíkan halla mæta honum með inn­flutn­ingi eða með því að ganga á sínar eigin auð­lindir, til að mynda með ofveiði eða brennslu á jarð­efna­elds­neyti.

Þegar allt hefur verið talið til eru ríki heims rekin með tölu­verðum vist­fræði­legum halla en til þess að koma út á sléttu þyrfti 1,75 jörð til að brúa bilið, líkt og áður segir.

Minni akstur, minna kjöt og orkusparandi tækni

Á heima­síðu sam­tak­anna eru raktar ýmsar lausnir sem hefðu í för með sér minni notkun á auð­lindum jarðar og þar með seinka deg­inum. Ein af þeim aðgerðum sem nefndar eru er minnkun á akstri. Ef akstur á heims­vísu yrði minnk­aður um helm­ing og fólk myndi fara heldur ferða sinna með almenn­ings­sam­göngum, gang­andi eða hjólandi væri hægt að seinka þol­marka­degi jarðar um 13 daga.

Sami árangur næð­ist ef mann­fólkið myndi minnka mat­ar­sóun um helm­ing – það myndi seinka þol­marka­degi jarðar um 13 daga. Ljóst er að matar­æði getur skipt máli því ef kjöt­neysla myndi drag­ast saman um helm­ing á heims­vísu og aukin áhersla yrði lögð á græn­met­is­fæði væri hægt að færa þol­marka­dag jarðar aftur um 17 daga.

Orku­notkun hefur einnig sitt að segja. Ef orku­spar­andi tækni sem nú þegar er til væri hag­nýtt til hins ýtrasta í bygg­ingum, við iðn­að­ar­ferla og við fram­leiðslu raf­magns væri hægt að seinka þol­marka­degi jarðar um þrjár vikur, án þess að það hefði áhrif á fram­leiðni eða þæg­indi, eins og það er orðað á vef Global Footprint Network.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár