Færri alvarlega veikir – en er veiran að mildast?

Nokkrar ástæður geta verið fyrir því að alvar­legum kór­ónu­veirutil­fellum hefur fækkað veru­lega. Í nýju svari á Vís­inda­vefnum er farið yfir nokkra mögu­leika sem kunna að útskýra hvers vegna veiran virð­ist vera að veikj­ast.

Mikið var um að vera á COVID-19 göngudeild Landspítala í mars og apríl.
Mikið var um að vera á COVID-19 göngu­deild Land­spít­ala í mars og apríl. Mynd: Landspítalinn/Þorkell Þorkelsson

Líklegra þykir að fá ný kór­ónu­veirusmit valdi því að alvar­legum til­fellum hefur fækkað heldur en að veiran hafi stökk­breyst og sé orðin veik­ari. Þetta kemur fram í nýju svari á Vís­inda­vef Háskóla Íslands þar sem skoðað er hvort að kór­ónu­veiran sé að missa styrk sinn og verða minna sýk­ing­ar­hæf.

[links]Í svar­inu er meðal ann­ars vitnað í Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni sem sagði á blaða­manna­fundi þann 25. maí síð­ast­lið­inn að það sem helst ein­kenndi þá sem greinst hefðu af veirunni dag­ana á undan væri það að þeir ein­stak­lingar væru ekki mikið veikir. Þegar þarna var komið við sögu hafði nýgreindum smitum fækkað all­veru­lega.

„Það gæti verið að þetta séu ein­stak­lingar sem hafi verið búnir með sín veik­indi. Það gæti líka verið að það sé ein­hver þróttur að fara úr veirunni, hugs­an­lega. Allavega er til­hneig­ingin sú að veik­indin hafa minnkað eftir því sem liðið hefur frá 28. febr­úar. Það gæti gefið okkur hugs­an­lega vís­bend­ingu um það að veiran sé ekki eins ágeng og slæm og hún var. En tím­inn verður að leiða það í ljós,“ sagði Þórólfur á áður­nefndum blaða­manna­fundi.

Fjöldi greindra smita fækkað verulega

En þá að spurn­ing­unni sem leit­ast er við að svara á Vís­inda­vefnum; Er veiran að veikj­ast? Í svari Arnars Páls­sonar, erfða­fræð­ings og pró­fess­ors í líf­upp­lýs­inga­fræði við HÍ, eru gefnar sex mögu­legar ástæður fyrir því að veiran kunni að vera að veikj­ast eða hvers vegna svo kann að virð­ast.

Í fyrsta lagi segir Arnar að það sé mögu­legt að tíðni alvar­legra smita sé jafnhá og áður, sem þýðir að veiran sé ekki orðin veik­ari. Líkurnar á alvar­legum til­fellum séu litlar vegna þess að smit eru orðin svo fá. Samkvæmt þessum mögu­leika er veiran þar af leið­andi ekki veik­ari.

Breytt hegðun gæti hafa skipt máli

Í öðru lagi gæti breytt hegðun fólks mögu­lega hafa leitt til mild­ari ein­kenna. Þeir sem við­kvæmir eru fyrir veirunni sem og eldra fólk hafi haldið sig til hlés og veiran því frekar borist milli yngra hraust­ara fólks.

Þriðja mögu­leik­inn fyrir mild­ari ein­kennum hverf­ist einnig um breytta hegðun fólks. Vera má að vegna var­úð­ar­ráð­staf­ana hafi færri veiru­agnir borist í ein­stak­linga, sem gæti hafa orðið til þess að fram­vinda sýk­ing­ar­innar hafi verið hæg­ari og ónæm­is­kerfi þeirra sem hafi sýkst hafi haft meiri tíma til að læra á veiruna og brjóta sýk­ing­una á bak aftur.

Aukin þekking gæti hafa mildað áhrifin

Aukin þekk­ing heil­brigð­is­fólks á eðli sjúk­dóms­ins er svo fjórði mögu­leik­inn sem tek­inn er til skoð­unar. Aukin þekk­ing og auk­inn hraði í grein­ingum gæti hafa orðið til þess að fleiri alvar­legum til­fellum hafi verið afstýrt.

Í fimmta lagi gæti árs­tíð­ar­breyt­ing haft áhrif á veiruna. Venju­lega missir árleg inflú­ensa þrótt sinn þegar sum­arið gengur í garð og það sama gæti verið uppi á ten­ingnum varð­andi kór­ónu­veiruna. Þó kemur fram í svar­inu að engar vís­bend­ingar eru um áhrif árs­tíða eða umhverf­is­hita á veiruna sem veldur COVID-19. Þá segir í svar­inu að lík­legra sé að fólk fari í auknum mæli út af heim­ilum og í almenn­ings­rými með hækk­andi sól sem eykur smit­hættu vegna mann­mergðar.

Líklegra að veiran mildist frekar en styrkist með tímanum

Í sjötta og síð­asta lagi gæti verið að veiran hafi þró­ast og orðið mild­ari hér á landi. „Slíkt fæli í sér að stökk­breyt­ingar sem draga úr alvar­leika ein­kenna vegna smits hafi auk­ist í stofni veirunnar, og að þeim völdum lækki dán­ar­tíðni. Þetta er talin lík­leg fram­vinda, en frekar sé horft til fram­tíðar en að þetta hafi gerst á þeim fáu mán­uðum sem hafa liðið frá því að veiran barst í menn. Þótt veiran fjölgi sér hratt, er ekki búist við að eig­in­leikar hennar þró­ist á hálfi ári,“ segir í svar­inu.

Talað hefur verið um þann mögu­leika að veiran stökk­breyt­ist í hina átt­ina, sem leiðir til þess að hún verði hættu­legri, smit­ist betur eða valdi alvar­legri ein­kennum. Samkvæmt svar­inu er það talið ólík­legt.

„Flestar stökk­breyt­ingar á veirunni eru skað­legar fyrir hana, og valda veikluðum til­brigðum. Ólíklegt er að þau smiti frekar en „eðli­leg“ afbrigði hennar. Að end­ingu er mögu­legt að ein­hver „veikluð“ afbrigði veirunnar smit­ist milli manna og valdi mild­ari ein­kennum,“ segir í svar­inu. Sá mögu­leiki að veiran hafi þró­ast í mild­ara afbrigði hér­lendis er þó tal­inn ólík­leg skýr­ing. Líklegra sé að mikil fækkun til­fella gefi þá mynd líkt og áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár