Flóttafólk lýsir slæmum aðstæðum í búðunum á Ásbrú

Flótta­fólk segir Útlend­inga­stofnun hafa skert rétt­indi sín og frelsi með sótt­varna­að­gerðum. Stofn­unin segir þetta mis­skiln­ing og að sótt­varna­ráð­staf­anir mæl­ist eðli­lega mis­vel fyrir. Hún geri sitt besta til að leið­rétta allan mis­skiln­ing.

Flóttafólk mótmælti í mars á síðasta ári.
Flótta­fólk mót­mælti í mars á síð­asta ári. Mynd: Bára Huld Beck

„Síðustu viku hefur Útlend­inga­stofnun skert rétt­indi okkar og frelsi, sem þó voru skert fyrir.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Facebook-hóps­ins, Refugees in Iceland, í dag en umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sem dvelja í flótta­manna­búð­unum á Ásbrú skrifa færsl­una og segja ástandið alls ekki gott.

Í færsl­unni segir meðal ann­ars að þau megi ekki yfir­gefa her­bergin án þess að vera með and­lits­grímu. „Útlend­inga­stofnun lét okkur fá eina grímu á mann. Þær eru einnota. Þau vilja að við notum sömu grímuna í marga daga sam­fleytt. Fyrir utan það að þetta sé heilsu­spill­andi og til­gangs­laust þá hafa einnig komið upp þær aðstæður að fólk sem týnt hefur grímunum sínum eða hent þeim fái ekki nýjar grímur og fái þar af leið­andi ekki að yfir­gefa her­bergi sín.

Öllum almenn­ings­rýmum hefur verið lokað, þar á meðal eld­hús­inu. Það þýðir að við höfum enga aðstöðu til að búa til okkar eigin mat (athugið að þetta kom til skjal­anna fyrir ein­ungis einni viku, þegar bylgjan var að byrja að fara niður).“

Segja manni hafa verið neitað um mat í þrjá daga

Fram kemur að þau fái mat tvisvar á dag og ef þau komi ekki á ákveðnum tíma til þess að sækja mat­inn (12:00 til 13:00 og 18:00 til 19:00) þá fái þau engan. Enn fremur segir að þessi matur henti ekki þeim sem glíma við ákveðin heilsu­vanda­mál. Til dæmis hefi þessi fæða gert þá sem eru með syk­ur­sýki veika.

„Einn þeirra sem er með syk­ur­sýki týndi einnota and­lits­grímunni sinni og hefur örygg­is­gæslan neitað honum um mat í þrjá daga. Þeir neita líka að gefa honum nýja grímu. Við bíðum eftir því að geta kvartað við Útlend­inga­stofnun yfir þess­ari illu með­ferð en það hefur ekki verið hægt að ná í stofn­un­ina alla helg­ina.“

Greint er frá því í færslu flótta­mann­anna að það séu í kringum 105 manns sem búa í einni bygg­ingu á Ásbrú. Jafn­framt gagn­rýna þeir að nú fái þeir lægri greiðslu inn á inn­eign­ar­kort sín og viku­legar tekjur séu nú sam­tals 5.100 krónur.

Sumir óska eftir að fara aftur til Grikklands

„Örygg­is­verð­irnir eru hér til að halda okkur föngnum, en ekki til að „halda okkur öruggum“ eins og Útlend­inga­stofnun heldur fram.

Við erum undir and­legu álagi vegna þess að við megum ekki fara út eða gera neitt annað en að vera inni mán­uðum saman, við erum svöng vegna þess að það er ekki nægur matur og mat­ur­inn er líka slæmur. Fólk er byrjað að biðja um að fara sjálf­vilj­ugt til Grikk­lands. Staðar sem það flúði til að kom­ast í öryggi hér,“ segir í færsl­unni.

Þá kemur fram sú skoðun að loka ætti flótta­manna­búð­unum eða hætta ein­angr­un­inni. „Núna ættu allir að gera sér grein fyrir því and­lega álagi sem fylgir slíkri ein­angrum. Hún er hrylli­leg, þrátt fyrir að hvert her­bergi sé ekki svo slæmt.

Af hverju megum við ekki njóta sömu rétt­inda og annað fólk á Íslandi? Við erum mann­eskjur líka. Við viljum lifa og dafna – og við viljum leggja okkar af mörkum til sam­fé­lags­ins,“ segir í færsl­unni.

Ákveðið var að kaupa matarbakka tímabundið

Í svari Útlend­inga­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að í kjöl­far þess að tveggja metra reglan tók gildi á land­inu öllu, þriðju­dag­inn 20. októ­ber síð­ast­lið­inn, hafi þurft að grípa til hertra sótt­varn­ar­ráð­staf­ana hjá Útlend­inga­stofnun.

„Vegna aðbún­aðar í tveimur úrræðum stofn­un­ar­innar á Ásbrú, þar sem ekki er hægt að fram­fylgja tveggja metra regl­unni í sam­eig­in­legum eld­húsum, var ákveðið að kaupa tíma­bundið mat­ar­bakka fyrir þá sem þar dvelja. Til sam­bæri­legra ráð­staf­ana var gripið á meðan tveggja metra reglan var í gildi í vor til að draga úr smit­hættu í úrræð­unum.“

Þá segir að reglu­gerð um útlend­inga geri ráð fyrir því að stofn­unin útvegi fæði eða fæð­is­pen­inga. Umsækj­endum um vernd sem dvelja á Ásbrú sé nú séð fyrir tveimur mál­tíðum á dag, hádeg­is­mat og kvöld­mat, og þeir fái greiddar 2.400 krónur í fæð­is­pen­inga á viku en fullir fæð­is­pen­ingar séu 8.000 krónur á viku. Við þetta bæt­ist 2.700 krónur í fram­færslufé á viku. Fæð­is­pen­ingar og fram­færslufé sé greitt inn á fyr­ir­fram­greidd kredit­kort sem hægt sé að nota í ákveðnum versl­unum. Fram kemur hjá Útlend­inga­stofnun að ýmsar útgáfur hafi verið af þessum greiðslum í gegnum tíð­ina, til dæmis kort sem ein­göngu virk­uðu í Bónus, reiðufé og I-kort.

Íbúarnir geti nálgast grímur hjá öryggisvörðum eða starfsmanni Útlendingastofnunar

„Íbúum úrræð­anna á Ásbrú er ekki skylt að bera grímur í sam­eig­in­legum rýmum en til þess hefur verið mælst að þeir beri grímur á meðan mat­ar­bökkum er úthlutað og þegar þeir umgang­ast aðra innan úrræðis án þess að geta við­haft tveggja metra fjar­lægð. Íbúarnir geta nálg­ast grímur hjá örygg­is­vörðum eða starfs­manni Útlend­inga­stofn­unar eftir þörfum og er þeim jafn­framt séð fyrir hand­spritti og hand­sápu,“ segir í svari stofn­un­ar­innar.

Þá kemur fram að engum sé neitað um mat­ar­bakka, hvorki fyrir að bera ekki grímu við úthlutun né fyrir að sækja mat­inn eftir aug­lýstan tíma, og öllum sé frjálst að fara út úr húsi að vild.

„Þessar sótt­varna­ráð­staf­anir mæl­ast eðli­lega mis­vel fyrir enda draga þær úr mögu­leikum umsækj­enda til að stýra sínu dag­lega líf eins og eðli­leg­ast væri. Eins getur alltaf komið upp mis­skiln­ingur milli manna ekki síst í úrræðum þar sem margir dvelja. Stofn­unin gerir sitt besta til að leið­rétta allan mis­skiln­ing en þessar ráð­staf­anir eru nýtil­komnar. Engu að síður er nauð­syn­legt að grípa til allra þeirra ráð­staf­ana sem geta dregið úr hætt­unni á smiti í hópi umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem eru í við­kvæmri stöðu,“ segir að lokum í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár