„Ekkert hefur meira heyrst um málið, nú 5 mánuðum síðar“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spyr félags­mála­ráð­herra hvenær von sé á flótta­fjöl­skyldum frá Lesbos sem boðað var að myndu koma í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur lagt fram fyr­ir­spurn til félags- og barna­mála­ráð­herra, Ásmundar Einars Daða­sonar, um hvenær von sé á fjöl­skyld­unum frá Lesbos, flótta­fólki sem rík­is­stjórnin sam­þykkti í sept­em­ber á síð­asta ári að Ísland myndi taka á móti.

Þetta kom fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu Rósu Bjarkar í gær.

Kjarninn greindi frá því í gær að eng­inn kvótaflótta­maður hefði komið hingað til lands á vegum stjórn­valda í fyrra. Til stóð að um 100 manns kæmu og segir í svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans að unnið sé „hörðum höndum að því að taka á móti hópnum á fyrri hluta þessa árs“.

[links]Rósa Björk bendir á í stöðu­upp­færslu sinni að fimm mán­uðir séu liðnir frá því að rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti að Ísland myndi taka á móti flótta­fólki frá Lesbos á Grikk­landi, með áherslu á sýr­lenskar fjöl­skyldur í við­kvæmri stöðu eftir hræði­legan bruna í flótta­manna­búð­unum Moria sem eyðilögð­ust í elds­voða í sept­em­ber 2020.

Eins og kom fram í frétt Kjarnans var um allt að 15 manns að ræða, við við­bótar við þau 85 sem áttu að koma á vegum stjórn­valda.

„Ekkert hefur meira heyrst um málið, nú 5 mán­uðum síðar ...“ skrifar Rósa Björk og bætir því við að Þýska­land hafi strax tekið á móti 1.200 manns í sept­em­ber 2020 úr Moria-búð­unum og að Portúgal, Frakk­land og fleiri Evr­ópu­lönd hefðu brugð­ust strax við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár