Laun á hverja vinnustund hækkuðu um 5,6 prósent í fyrra

Á meðan launa­vísi­talan hækk­aði umtals­vert á síð­asta ári hækk­uðu laun og launa­tengd gjöld á hverja unna vinnu­stund minna.

Vinnustundir voru fleiri í fyrra en Seðlabankinn gerði ráð fyrir
Vinnu­stundir voru fleiri í fyrra en Seðla­bank­inn gerði ráð fyrir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Laun og launa­tengd gjöld á hverja unna vinnu­stund juk­ust um 5,6 pró­sent í fyrra, sam­kvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Hækkunin er rétt undir með­al­tali síð­ustu 13 ára, en á sama tíma hækk­aði launa­vísi­talan að með­al­tali um rúm sex pró­sent í fyrra.

Laun á vinnu­stund hækk­uðu minnst í fjár­málakrepp­unni árið 2009, en þá nam hækk­unin 2,4 pró­sent. Á sama tíma hækk­aði launa­vísi­talan þá um 3,9 pró­sent. Þróunina má sjá á mynd hér að neðan.

Seðla­bank­inn minnt­ist á þró­un­ina í síð­asta hefti Pen­inga­mála sem birt­ist í jan­úar, en sam­kvæmt því hækk­uðu stað­greiðslu­skyld laun á vinnu­stund um 1,8 pró­sent á fyrstu tíu mán­uðum síð­asta árs. Það var nokkuð minni hækkun en búist var við síð­asta haust.

Bankinn spáði þá að laun á vinnu­stund hefðu hækkað um 2 pró­sent í fyrra og nið­ur­færði spá sína þar sem vinnu­stundir voru fleiri í fyrra en búist var við. Bankinn spáði einnig svip­aðri þróun í ár og bjóst við að hækk­unin myndi nema rúmum 3 pró­sentum.

[adspot]

Laun á vinnu­stund eru reiknuð með því að deila árs­tölum launa og launa­tengdra gjalda úr fram­leiðslu­upp­gjöri Hag­stof­unnar með tölum um heild­ar­fjölda vinnu­stunda úr vinnu­mark­aðs­rann­sókn hennar.

Uppfært kl. 16:19: Hag­stofan hefur gefið út að villa hafi komið upp í fram­leiðslu­upp­gjöri sínu, sem gætu haft áhrif á þessar tölur. Unnið er að leið­rétt­ingu, en búist er við að þeirri vinnu ljúki fyrri part næsta dags.

Athuga­semd rit­stjórnar 9. mars: Nýjar tölur Hagstofu benda til þess að laun á hverja vinnu­stund hafi hækkað um 5,6 pró­sent, í stað 0,2 pró­senta. Efni frétt­ar­innar hefur því verið breytt eftir því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár