Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segist í samtali við Kjarnann treysta kjörstjórnum, bæði landskjörstjórn og yfirkjörstjórn að gera það sem þarf að gera varðandi skoðun á endurtalningu í Norðvesturkjördæmi. „Rétt skal vera rétt,“ segir hún.
„Maður fær ákveðið óbragð í munninn þegar maður skoðar og horfir yfir þetta. Eitt af því sem við höfum talið okkur til tekna og sem hefur verið framlag okkar á alþjóðavettvangi er þungavigt okkar í jafnréttis- og mannréttindamálum. Hluti af mannréttindum er að lýðræðislegar kosningar fari rétt fram og eins og þetta blasir við núna þá eru einhver ónot vegna þessa í manni.“
Hún segist jafnframt vona að málið rýri ekki ásýnd Íslendinga í málum sem þessum. „Það má ekki vera í þessu eitthvað vinahygli eða annað – eða slöpp framkvæmd. Það bara má ekki vera slök framkvæmd á umgjörð kosninga.“
Nauðsynlegt að fá hið rétta fram
Þorgerður Katrín segir að málið dragi fram umræðu um jafnt atkvæðavægi. Í grein sem þingmenn Viðreisnar rituðu í október 2020 kom fram sú skoðun að kosningarréttur manna mætti ekki vera skiptimynt á hinu pólitíska sviði. Atkvæðavægi landsmanna ætti að vera hið sama hvar sem þeir búa á landinu. Aðeins þannig yrðu þingmenn raunverulega þingmenn allra landsmanna. Það yki samkennd, skilning, samstarf og yfirsýn og ýtti undir að þeir ynnu að framfaramálum fyrir landið allt.
[links]Hún nefnir í þessu samhengi umræðu um breytingu á stjórnarskrá. „Í stjórnarskrárvinnunni voru stjórnarflokkarnir ófáanlegir til að ræða að jafnt vægi atkvæða í stjórnarskrá. Það sýnir sig að þó að þetta snerti í dag einungis einhverjar kennitölur einstaklinga á milli kjördæma þá dregur þetta líka fram að það væri mikið einfaldara að hafa landið eitt kjördæmi – og þannig sjálfkrafa hefði einn maður eitt atkvæði.“
Hún ítrekar að þau í Viðreisn líti svo á að nauðsynlegt sé að fá hið rétta fram í þessu máli.
„Náttúrulega ótrúlegt að upplifa þetta“
Guðmundur Gunnarsson, oddviti framboðslista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi, sagði í við RÚV í gær að kanna þyrfti betur hverskyns mistök hefðu orðið í talningu atkvæða í hans kjördæmi. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum kosninganna var Guðmundur inni á þingi sem jöfnunarþingmaður en eftir endurtalningu í gær komst hann ekki á þing.
„Þetta er náttúrulega ótrúlegt að upplifa þetta sem nýliði í þessu“ segir Guðmundur við RÚV. „Við vorum viðstödd þarna þegar úrslitin voru kunngjörð eftir endurtalningu. Þá kemur í ljós að þessi hringekja jöfnunarþingmanna fer að stað með þessum afleiðingum sem við höfum séð“.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir