Kannað hvort íslenskir fjárfestar væru á bak við kaup í Arion

Seðla­banki Íslands kann­aði hvort aðrir fjár­festar, til dæmis íslenskir, stæðu í raun á bak við til­boð í Arion banka. Svo virð­ist ekki vera.

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, bað Seðla­banka Íslands að kanna hvort ein­hverjir aðrir stæðu að baki til­boðum vog­un­ar­sjóða um kaup á hlut í Arion banka. Þar á bæ sé talið að svo sé ekki, heldur séu þetta fjár­festar sem ætli sér að vera í banka­starf­semi hér til nokk­urrar fram­búðar.

Þetta kom fram í svari ráð­herr­ans við fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, á Alþingi í dag. Katrín spurði að því hvort Benedikt vissi hverjir væru á bak við vog­un­ar­sjóð­ina og hvort að mat hefði verið lagt á það hvort þeir ætli sér að vera í banka­starf­semi áfram eða hvort þeir ætli sér að selja hlut sinn aftur, og þá vænt­an­lega með hagn­aði. Þá spurði hún líka hvort að mat hefði verið lagt á það hver efna­hags­leg áhrif yrðu af því að hlut­ur­inn myndi ganga til rík­is­ins, eins og myndi ger­ast í lok næsta árs ef ekki hefði orðið af sölu. Hún spurði einnig að því hvort sala á hlut í Arion banka myndi koma í veg fyrir að hægt verði að end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið í heild sinni, og benti á að ekki væri gert ráð fyrir neinni slíkri heild­ar­end­ur­skoðun í drögum að eig­enda­stefnu rík­is­ins.

Benedikt greindi frá því að hann hefði beðið Seðla­bank­ann að athuga hvort ein­hverjir aðrir stæðu á bak við þessi til­boð í Arion banka. „Ég taldi afar mik­il­vægt að vita það hvort þetta væru raun­veru­lega þessir aðilar, sem allir eru erlendir, eða hvort þarna stæðu til dæmis ein­hverjir íslenskir fjár­festar að baki, en mér er sagt að svo sé ekki.“

Ráð­herr­ann ítrek­aði í seinni ræðu sinni að salan væri sam­kvæmt sam­komu­lagi við slitabú Kaup­þings, en ekki ríkið. Hann gæti bara tjáð sig um póli­tísk áhrif en ekki efna­hags­leg, og það væri ekki hent­ugt fyrir Ísland að eiga alla við­skipta­bank­ana. Um end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins sagði hann einnig að það væri ekki rík­is­ins að end­ur­skipu­leggja Arion banka, vegna þess að ríkið ætti bara 13 pró­senta hlut. Hann teldi ekki að salan myndi hafa mikil áhrif á fram­tíð­ina í banka­kerf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár