Guðni, Guðlaugur og Pútín ræða norðurslóðir

Utan­rík­is­ráð­herra og for­seti Íslands eru í Rúss­landi á ráð­stefnu um mál­efni Norð­ur­slóða. Guðni Th. Jóhann­es­son snæðir kvöld­verð með Vladimír Pútín í kvöld.

Sauli Niinitsoe, forseta Finnlands, Vladimír Pútín, forseti Rússlands og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Sauli Niini­tsoe, for­seta Finn­lands, Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands og Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: TASS

Áfram­hald­andi sam­starf nor­rænna ríkja við Rússland um mál­efni norð­ur­slóða var það sem bar hæst á fundi utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Dan­merkur og Noregs með Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, í gær­kvöldi. Ísland tekur við for­mennsku innan Norð­ur­skauts­ráðs­ins eftir tvö ár.

[links]Í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að gott sam­starf sé milli ríkj­anna „á mörgum mál­efna­sviðum er varðar norð­ur­slóðir og lögðu ráð­herr­arnir áherslu á að svo yrði áfram“.

„Okkur greinir víða á,“ er haft eftir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, utan­rík­is­ráð­herra Íslands. „[M]eðal ann­ars í mál­efnum Úkraínu og Sýrlands, og í mann­rétt­inda­málum. Engu að síður er mik­il­vægt að við­halda sam­tali og freista þess að miðla málum og leysa úr ágrein­ings­efnum.“

Ísland, auk allra ann­arra Norð­ur­landa, eru í hópi þeirra ríkja sem hafa beitt Rússland við­skipta­þving­unum vegna aðgerða þeirra í Úkraínu og inn­limunar Krím­skaga árið 2014.

Á fund­inum ræddu ráð­herr­arnir einnig ástandið í Sýrlandi og Mið-Aust­ur­löndum, í Úkraínu og Tyrk­landi. Norrænu ráð­herr­arnir hvöttu svo rúss­nesk stjórn­völd til að beita áhrifum sínum til að koma á var­an­legu vopna­hléi í aust­ur­hluta Úkraínu, auk örygg­is­mála og mann­rétt­inda.

[adspot]

Í sam­tali við vefritið EU Observer sögð­ust full­trúar land­anna þriggja hafa stillt saman strengi sína áður en þeir gengu á fund Lavrovs. Danski utan­rík­is­ráð­herr­ann Anders Samu­el­sen sagði afstöð­una til Rússa vera tví­benta: „Við erum föst og ein­beitt í málum sem snerta Krím­skaga þar sem Rússar eru brjóta regl­urnar aug­ljós­lega. En við erum til­búin til sam­tals í öðrum mála­flokkum.“

Guð­laugur Þór tekur í sama streng í frétta­til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins og segir að hægt sé að ná ágætum árangri í mál­efnum norð­ur­slóða og að mik­il­vægt sé að hlúa áfram að því.

Guðni, Pútín og Norðurslóðir

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, og Guð­laugur Þór eru staddir í Rúss­landi þar sem þeir sækja ráð­stefnu um mál­efni norð­ur­slóða í Ark­hang­elsk við Hvíta­hafið, í norð­vest­an­verðu Rúss­landi. Þaðan er stutt í landa­mærin við Noreg og Finnland.

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, ávarp­aði ráð­stefn­una í dag. Guðni mun svo snæða kvöld­verð með Pútín í kvöld, ásamt Sauli Niini­tsoe, for­seta Finn­lands. Annars sækja ráð­stefn­una um 1.500 manns, aðal­lega rúss­neskir við­skipta­menn.

Guðni tók þátt í pall­borðsum­ræðum með Pútín og Niini­tsoe í dag. Hægt er að fylgj­ast með umræð­unum í spil­ar­anum hér að neðan. Guðni flytur ávarp á 29. mín­útu, þar sem for­set­inn bregður meðal ann­ars fyrir sig rúss­nesku. Hann fjall­aði um sam­starf Íslands og Rúss­lands í sög­unni, nefndi meðal ann­ars sam­stöðu Rússa með Íslend­ingum í Þorska­stríð­unum og fjall­aði um vís­bend­ingar um breytta hegðun fiski­stofna í höf­unum í norð­ur­höfum. Ávarpið má lesa í heild á vef for­seta­emb­ætt­is­ins.

Samstarf Norð­ur­land­anna við Rússland hefur gengið vel, að mati Børge Brende, utan­rík­is­ráð­herra Noregs. „Við höfum fundið ótrú­legar leiðir til þess að starfa saman,“ sagði hann og minnti á að Noregur og Rússland hafa saman stjórnað fisk­veiðum í Barents­hafi með góðum árangri.

Auknar og tíð­ari vöðva­sýn­ingar Rússa á und­an­förnum árum hafa hins vegar gert sam­tal um frið og sam­starf á Norð­ur­slóðum flókn­ari. Sem dæmi má taka af for­manni rúss­neska norð­ur­slóða­ráðs­ins, Dmitry Rogozin sem einnig er vara­for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands. Hann er einn þeirra auð­jöfra sem vest­ræn ríki hafa beitt beinum við­skipta­þving­unum með því að banna honum að ferð­ast til vest­rænna ríkja og stunda við­skipti við vest­ræna banka.

Þau tæki­færi og sú nauð­syn sem ríkir um að sam­tal geti orðið um Norð­ur­slóðir virð­ist hins vegar ryðja þessum hindr­unum úr vegi – í það minnsta á meðan sam­talið er um mál­efni norð­ur­slóða.

Norðurslóðir opna stór tækifæri fyrir alla

Í Norð­ur­slóða­ráð­inu eiga, auk Íslands, sjö ríki sæti og öll hafa sín mark­mið og ætl­anir þegar norð­ur­slóðir verða aðgengi­legri. Minnk­andi ísbreiða á norð­ur­skaut­inu er bein afleið­ing lofts­lags­breyt­inga í heim­inum og ein helsta birt­ing­ar­mynd þess vanda sem allar þjóðir heims glíma við í nútím­anum.

Á hafs­botni norðan við heim­skauts­baug er talið að finna megi gnægt auð­linda. Helm­ingur þeirra fjög­urra millj­óna manna sem búa við norðan heim­skauts­baugs eru Rússar. Rúss­arnir eru spenntir fyrir því að geta nýtt auð­lind­irnar sem finn­ast í jörðu, hvort sem það er olía, gas eða stein­teg­undir.

Þá mun aukin tækni og hlýnun jarðar opna á aukna sókn í fiski­mið í norð­ur­höfum, auk þess að nýjar sigl­inga­leiðir gætu opn­ast á milli Asíu og Evrópu.

Íslend­ingar hafa séð mikil tæki­færi í sigl­inga­leið­inni sem opn­ast þegar ísbreiðan á norð­ur­skaut­inu hopar. Íslensk stjórn­völd hafa um ára bil talað um það á opin­berum vett­vangi að Ísland gæti orðið að eins­konar hliði fyrir aukna vöru­flutn­inga yfir norð­ur­skautið, þar sem opn­aðar væru leiðir bæði til Evrópu og Norður-Ameríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár