Mikil aukning hefur verið í skráningu á heimagistingu á þessu ári eða um 76 prósent aukning. Á þessu ári hafa verið samþykktar 1860 skráningar á heimagistingu en á öllu síðasta ári var fjöldinn 1059. Aukning er rakin til aukins eftirlits Heimagistingarvaktarinnar á vegum Sýslimannsins á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu.
[links]Síðasta sumar veitti ferðamálaráðherra sérstaka fjárveitingu upp á um 64 milljónir króna til Heimagistingarvaktarinnar til að efla eftirlit heimgagistingar og tryggð yrði rétt skráning. Heimgistingarvaktin fer með eftirlit yfir heimagistingu í landinu en talið er að heimagisting hafi allt að sjöfaldast frá árinu 2015.Í tilkynningu segir að frá miðjum september hefur Heimagistingarvaktin framkvæmt 136 vettvangsheimsóknir á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og á Suðurnesjum í kjölfar upplýsinga sem fram hafa komið í ábendinga- og frumkvæðiseftirliti með óskráðri skammtímaleigu.
Sektir upp á 40 milljónir króna
Í tilkynningunni kemur fram að á þessum tíma hefur lögregla stöðvað starfsemi þriggja rekstrarleyfisskyldra gististaða á höfuðborgarsvæðinu og óskað hefur verið eftir lögreglurannsókn og eftir atvikum lokun á átta rekstrarleyfisskyldum gististöðum utan höfuðborgarsvæðisins. Þá hefur 18 málum verið formlega lokið með álagningu stjórnvaldssekta og tugir mála eru til meðferðar vegna brota á skráningarskyldu sem verður að óbreyttu lokið með stjórnvaldssektum. Heildarupphæð fyrirhugaðra og álagðra stjórnvaldssekta vegna umræddra mála nemur um 40 milljónum króna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir