54 mál sem tengjast heimagistingu hafa farið til lögreglu

Flestir þeir sem voru upp­vísir að brjóta ný lög er varða heimagist­ingu komu sínum málum á hreint. Ekki liggur fyrir hvernig eða hvort sekta eigi fyrir brotin.

54 mál hafa komið inn á borð lög­regl­unnar í Reykja­vík vegna brota á nýjum lögum um heimagist­ingu. Af þessum 54 málum gerðu sumir hreint fyrir sínum dyrum en ekki er búið að ákveða hvort sekta eigi í þessum til­fellum. Þetta segir Sig­ur­björn Jónsson varð­stjóri hjá lög­regl­unni í sam­tali við Kjarnann.

Hann segir að sumir hafi vitað að þeir myndu ekki fá leyfi fyr­ir­fram. Til stóð að loka eða inn­sigla íbúð­unum ef ekki starf­semin myndi halda áfram án leyfis en Sig­ur­björn segir að í lang­flestum til­fell­unum hafi eig­endur komið sínum málum á hreint. Engin íbúð hafi enn verið inn­sigluð og ekk­ert sé farið að beita sektum.

Ekki er búið að taka ákvörðun hvað verður gert í fram­hald­inu en að sögn Sig­ur­björns er ekki mik­ill kraftur í þessu hjá lög­regl­unni enda sé þetta ein­ungis hlið­ar­verk­efni hjá þeim. Hann sé einn að vinna í þessu hjá lög­regl­unni í hjá­verkum.

Eins og fram kom í frétt Kjarnans í febr­úar síð­ast­liðnum hefur Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakað ábend­ingar um 200 til 300 mál sem tengj­ast heimagist­ingu og bíða þau nú frek­ari stjórn­sýslu­með­ferðar. Þetta kemur fram í svari sýslu­manns við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í svar­inu segir jafn­framt að ein­hverjum þess­ara mála verði vænt­an­lega lokið með stjórn­valds­sektum en lög­reglu­stjórar hver í sínu umdæmi hafa eft­ir­lit með rekstr­ar­leyf­is­skyldum aðilum sem stunda skamm­tíma­leigu í atvinnu­skyni. Lög­reglu­stjórar hafi ákæru­vald í slíkum til­vikum.

Má leigja út í 90 daga án þess að hafa rekstrarleyfi

Ný lög­gjöf um heimagist­ingu tók gildi þann 1. jan­úar á síð­asta ári. Í henni segir að ein­stak­lingum sé heim­ilt að leigja út heim­ili sitt sem og aðra fast­eign til per­sónu­legra nota í allt að 90 daga á ári án þess að þurfa að sækja um sér­stakt rekstr­ar­leyfi.

Helstu mark­miðin með nýrri lög­gjöf voru að bregð­ast við þróun í gistifram­boði hér á landi og jafn­framt að bregð­ast við miklum fjölda leyf­is­lausrar gist­ingar. Í lög­unum skýrð betur mörkin milli gisti­starf­semi í atvinnu­skyni og tíma­bund­innar leigu af hálfu ein­stak­linga gegnum deili­hag­kerfið.

Á vef­síðu sýslu­manns er ferlið útskýrt en þar segir að ein­stak­lingur sem hyggst bjóða heimagist­ingu skuli til­kynna sýslu­manni að hann hygg­ist leigja út lög­heim­ili sitt eða eina aðra fast­eign í sinni eigu. Við skrán­ingu beri við­kom­andi aðila að stað­festa að hús­næðið upp­fylli kröfur í reglu­gerð um bruna­varnir, það hafi hlotið sam­þykki sem íbúð­ar­hús­næði og að hús­næðið sé full­nægj­andi með til­liti til holl­ustu­hátta sam­kvæmt lögum um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir. End­ur­nýja þurfi skrán­ingu á ári hverju og við lok hvers alm­an­aks­árs skuli aðili með skráða heimagist­ingu skila til sýslu­manns yfir­liti um þá daga sem hús­næði var leigt út ásamt upp­lýs­ingum um leigu­tekjur.

Sýslu­maður skal afskrá heimagist­ingu verði aðili upp­vís að því að leigja út hús­næði sitt í heimagist­ingu til lengri tíma en 90 daga á ári hverju eða fyrir hærri fjár­hæð en kveðið er á um í lögum um virð­is­auka­skatt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár