Aukið við mannafla hjá Sýslumanninum vegna heimagistingar

Samn­ingur hefur verið und­ir­rit­aður um efl­ingu heimagist­ing­ar­vaktar milli atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins og Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Samn­ing­ur­inn kveður á um 64 millj­óna króna fjár­veit­ingu til emb­ætt­is­ins.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur ráðherra ferðamála og Þórólfur Halldórsson sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ráð­herra ferða­mála og Þórólfur Hall­dórs­son sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ráð­herra ferða­mála og Þórólfur Hall­dórs­son sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­ir­rit­uðu í gær sam­komu­lag þess efnis að eft­ir­lit með heimagist­ingu muni verða virkara og sýni­legra með styrk­ingu á heimagist­ing­ar­vakt Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þetta kemur fram í frétt atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins

[links]Samn­ing­ur­inn kveður á um 64 millj­óna króna fjár­veit­ingu til emb­ætt­is­ins en það fer með eft­ir­lit með heimagist­ingu á öllu land­inu. Er þetta gert til að öðl­ast yfir­sýn yfir raun­veru­legt umfang heimagist­ingar, tryggja rétt skatt­skil ein­stak­linga og að lög­að­ilar sem stunda gisti­starf­semi afli sér rekstr­ar­leyfis og starf­semin fari þar með að þeim lögum sem um hana gilda.

Starfsmönnum fjölgað úr 3 í 11

Í frétt ráðu­neyt­is­ins segir að lagt sé upp með að átaks­verk­efnið verði til eins árs og sé mark­miðið að það hafi hvetj­andi áhrif á ein­stak­linga til að skrá skamm­tíma­út­leigu sína. Gert sé ráð fyrir að starfs­mönnum í heimagist­ing­ar­vakt verði fjölgað úr þremur í ell­efu og koma þeir til með að fram­kvæma vett­vangs­rann­sóknir í kjöl­far ábend­inga frá almenn­ingi eða á grund­velli upp­lýs­inga sem koma fram í frum­kvæð­is­eft­ir­liti.

Þá verði í hópnum tveir lög­fræð­ingar sem munu halda utan um stjórn­sýslu­með­ferð og ákvarð­anir um stjórn­valds­sektir. „Þess má geta að frá því að Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tók við mála­flokki gisti­staða árið 2015 hefur umfang skamm­tíma­leigu sjö­fald­ast,“ segir í frétt­inni.

[adspot]

Hin svo­kallað 90 daga regla tók gildi í árs­byrjun 2017 en í henni felst að ein­stak­lingum er heim­ilt að leigja út lög­heim­ili sín og eina aðra fast­eign sem er í þeirra eigu til allt að 90 daga á hverju alm­an­aks­ári án þess að lúta sömu reglum um leyfi og gjöld og gilda um atvinnu­rekstur.

Verðum að tryggja að allt sé uppi á borðum

Þórdís Kolbrún segir það vera ósann­gjarnt gagn­vart lög­legum rekstri að menn kom­ist upp með að spila ekki eftir regl­unum. „Við verðum að tryggja að allt sé uppi á borðum. Ég bind því miklar vonir við þetta sam­starf við sýslu­mann og vænti þess að við sjáum stór­auk­inn fjölda skrán­inga heimagist­ingar innan skamms. Við höldum á sama tíma áfram að skoða mál­efni tengd gisti­starf­semi með öðrum ráðu­neytum, skatt­inum og öðrum aðilum stjórn­kerf­is­ins sem hafa það sam­eig­in­lega verk­efni að móta heild­stæða umgjörð og eft­ir­lit heimagist­ingar.“

Þórólfur fagnar ákvörðun ráð­herra um efl­ingu heimagist­ing­ar­vakt­ar­innar. „Ljóst er að allt of margir hafa ekki skráð þá heimagist­ingu sem að þeir halda úti og það er von okkar að þeir bregð­ist nú hratt við og skrái þær hið fyrsta enda mik­il­vægt allra vegna að þessi starf­semi sé uppi á borð­inu,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár