Karlar stýra nánast öllum peningum á Íslandi

Konur eru 49,7 pró­sent lands­manna. Þær stýra samt ein­ungis fimmt­ungi allra fyr­ir­tækja lands­ins og sitja í fjórð­ungi stjórn­ar­sæta. Í efstu lögum fjár­mála­geirans eru þær enn ákaf­lega sjáld­séðar.

Konur eru áfram sjald­séðar í efstu lögum íslenska fjár­mála­geirans. Fyrir hverja níu karla sem stýra pen­ingum á Íslandi er ein­ungis ein kona. Þetta kemur fram í úttekt Kjarnans á æðstu stjórn­endum við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, félaga á leið á markað, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og –miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­anna, Kaup­hallar og íbúða­lána­sjóða.

Kjarninn tók nú saman upp­lýs­ingar um stjórn­end­urna í þriðja sinn. Í fyrstu úttekt­inni, sem gerð var í febr­úar 2014, voru störfin sem hún náði yfir 88 tals­ins. Þá sátu 82 karlar í þeim störfum en sex konur. Fyrir ári síðan fram­kvæmdum við úttekt­ina að nýju. Þá voru stjórn­end­urnir sem hún náði til 87 tals­ins, 80 karlar en sjö konur.

Í ár eru störfin sem úttektin nær til 92 tals­ins. Í þeim sitja 85 karlar en sjö konur. Því eru um 92 pró­sent allra þeirra sem stýra pen­ing­unum í íslensku sam­fé­lagi karlar. Og það hlut­fall hefur nán­ast ekk­ert breyst á und­an­förnum þremur árum.

Karlar felldu kerfið, en sitja enn við stýrið

Íslenski fjár­mála­geir­inn hefur verið sögu­lega mjög karllægur. Fyrir banka­hrun voru karlar í öllum helstu áhrifa­stöðum. Afrakstur þess kerfis sem byggt var upp á þeim tíma þekkja allir: það moln­aði og íslenskt fjár­mála­kerfi sat eftir án nokk­urs trú­verð­ug­leika.

Það er því ekk­ert nýtt að fjár­mála­fyr­ir­tæki starfi í anda karllægra gilda. Og það er alþjóð­leg stefna sem fest hefur rætur. Í þessum gildum felst áhættu­sækni, skeyt­ing­ar­leysi, skamm­sýni, ábyrg­ar­leysi og yfir­gangur. Til­gang­ur­inn er að vinna, græða meira. Konur í stjórn­un­ar­stöðum hafa hins vegar til­hneig­ingu til að búa yfir eig­in­leikum á borð við var­færni, ábyrgð, get­una til að líta í eigin barm og horfa til lengri tíma í stað þess að ein­blína alltaf á skamm­tíma­á­hrif ákvarð­anna sinna.

Rann­sóknir sýna líka að fyr­ir­tæki með fleiri konum í stjórn­un­ar­stöðum skila mark­tækt betri árangri en fyr­ir­tæki með engar konur í slíkum stöðum. Þetta má meðal ann­ars sjá í skýrslu ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins McKinsey frá árinu 2013, sem ber heitið „Women Matter 2013: Moving corporate culture, mov­ing boundaries“. Þar segir einnig að það sem hindri fram­gang kvenna, og hamli þar með árangri fyr­ir­tækj­anna sem þær starfa hjá, sé fyrst og síð­ast fyr­ir­tækja­menn­ing sem sé konum óhlið­holl. Karlmenn sæki fast að því að kom­ast í slík störf þar sem þau séu vel borguð, veiti aðgang að valdi og feli í sér aukin tæki­færi til að móta eft­ir­sókn­ar­verða frama­braut.

Ein kona stýrir banka

Á Íslandi stýrir ein kona banka. Hún heitir Birna Ein­ars­dóttir og er banka­stjóri Íslands­banka. Í fram­kvæmda­stjórn bank­ans sitja níu manns, fimm karlar og fjórar konur. Arion banka er stýrt af Höskuldi H. Ólafs­syni. Í fram­kvæmda­stjórn bank­ans sitja tíu manns. Kynja­hlut­föll þar lög­uð­ust nýverið þegar að Iða Brá Bene­dikts­dóttir tók við sem fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­banka­sviðs af Halldóri Bjarkar Lúð­vígs­syni. Konur eru samt sem áður áfram í minni­hluta innan fram­kvæmda­stjórn­ar­innar, fjórar á móti sex körlum.

Í rík­is­bank­anum Lands­bank­anum stýrir karl­inn Steinþór Pálsson skút­unni. Í fram­kvæmda­stjórn bank­ans sitja, ásamt Stein­þóri, þrjár konur og þrír karlar. Kvika varð til í fyrra þegar Straumur fjár­fest­inga­banki og MP banki runnu í eina sæng. Sigurður Atli Jónsson er for­stjóri sam­ein­aðs banka og auk hans sitja fimm aðilar í fram­kvæmda­stjórn hans. Þeir eru allir karlar.

Því hallar á hlut kvenna í fram­kvæmda­stjórnum allra við­skipta­bank­anna á Íslandi.

Karlar allsráðandi í verðbréfafyrirtækjum og -sjóðum

Spari­sjóðir lands­ins hafa verið að týna töl­unni einn af öðrum á und­an­förnum árum. Í dag standa ein­ungis eftir fjórir, og fækk­aði þeim um tvo í fyrra. Ein kona og þrir karlar stýra þessum sjóðum. Konan heitir Anna Karen Arn­ars­dóttir og er spari­sjóðs­stjóri Spari­sjóðs Suður Þing­ey­inga.

Þónokkur lána­fyr­ir­tæki eða –stofn­anir eru rekin á Íslandi. Þau eru Borgun, Valitor, Byggða­stofnun, Lána­sjóður sveita­fé­laga og auð­vitað Íbúða­lána­sjóður. Fimm þeirra er stýrt af körlum en einu af konu. Hún heitir Lilja Dóra Hall­dórs­dóttir og er for­stjóri Lýsingar.

Þegar litið er inn í efstu lög rekstr­ar­fé­laga verð­bréfa- og fjár­fest­inga­sjóða á Íslandi, sem höndla með þús­undir millj­arða króna, er staðan heldur ekki beysin út frá kynja­jafn­rétt­is­legu sjón­ar­miði. Þessi rekstr­ar­fé­lög eru mörg hver í eigu við­skipta­bank­anna og heit nöfnum eins og Stefnir, Íslands­sjóðir, Lands­bréf, Gamma, Júpíter, Alda og Summa. Af þeim tíu svona félögum sem eru með starfs­leyfi sam­kvæmt Fjár­mála­eft­ir­lit­inu er engu stýrt af konu. Tíu karlar halda um þræð­ina í þeim öllum. Og lang­flestir starfs­manna þeirra eru líka karlar.

Staðan er ekk­ert betri hjá verð­bréfa­fyr­ir­tækjum lands­ins. Alls lúta tíu slík eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Þau heita nöfnum eins og Virðing, Arctica Finance, Centra, Fossar, H.F. Verðbréf og Jöklar. Öllum tíu er stýrt af körlum. Og starfs­menn þeirra eru upp til hópa að mestu karlar.

Karlar stýra líka einu eft­ir­lits­skyldu verð­bréfa­miðlun lands­ins og einu inn­láns­deild sam­vinnu­fé­lags (Hjá Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga) sem starf­rækt er á land­inu.

Þúsundum milljarða stýrt af körlum

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru langstærstu fjár­festar á Íslandi. Sam­eig­in­legar eignir þeirra, en þeir eru 27 tals­ins sam­kvæmt yfir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, námu um 3.200 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót. Þeir eiga, beint og óbeint, allt að helm­ing skráðra hluta­bréfa hér­lendis og stóran hluta af skulda­bréfa­út­gáfum. Áhrif og völd þeirra sem stýra fjár­fest­ingum sjóð­anna eru því gríð­ar­leg.

Tíu stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir eiga um 80 pró­sent af öllum eignum íslenska líf­eyr­is­kerf­is­ins. Þeim er öllum stýrt af körlum. Alls eru æðstu stjórn­endur sjóð­anna 23 tals­ins, en nokkrum þeirra er stýrt saman. Í þessum valda­miklu stöðum sitja tvær konur og 21 karl. Þær eru Gerður Guð­jóns­dóttir, sem stýrir líf­eyr­is­sjóði starfs­manna sveit­ar­fé­laga, og Snædís Ögn Flosa­dóttir, sem tók við sem fram­kvæmda­stjóri Eft­ir­launa­sjóðs íslenskra atvinnu­flug­manna í fyrra­sumar. Auður Finn­boga­dóttir, sem stýrði Lífs­verki líf­eyr­is­sjóði, lét hins af störfum í fyrra og við starfi hennar tók Jón L. Árnason. Til við­bótar er Herdís Dröfn Fjeld­sted for­stjóri Fram­taks­sjóðs Íslands, sem er að stórum hluta í eigu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna. Þórey S. Þórð­ar­dóttir er síðan fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, en þau fjár­festa auð­vitað ekki.

Allir for­stjórar orku­fyr­ir­tækja lands­ins; Lands­virkj­unar, Orku­veitu Reykja­víkur, ON, HS Orku, Orkubús Vest­fjarða, Lands­nets og Orku­söl­unnar eru líka allt karlar.

Karlarnir á markaðnum

Mikil vöxtur hefur verið í Kauphöll Íslands á und­an­förnum árum, en henni er stýrt af karli. Alls eru nú 16 félög skráð á markað. Í 15 þeirra sitja karlar við stjórn­völ­inn. Einungis einu, VÍS, er stýrt af konu, Sigrúnu Rögnu Ólafs­dóttur. Fjögur félög hafa opin­ber­lega sagt að þau stefni að skrán­ingu á markað.

Þau eru Ölgerðin, Advania, Skelj­ungur auk þess sem 365 sagði í frétta­til­kynn­ingu seint á síð­asta ári að félagið stefndi á skrán­ingu. Öllum þessum fjórum félögum er stýrt af körlum.

Þá eru ótalin tvö óskráð trygg­inga­fé­log og tvær greiðslu­stofn­anir, sem öllum er stýrt af körlum.

Samtals gerir þessi staða það að verkum að af 92 aðilum sem stýra pen­ingum á Íslandi þá eru 85 þeirra karlar en ein­ungis sjö konur.

Þá er vit­an­lega ótalið að þrír æðstu yfir­menn Seðla­banka Íslands eru karlar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lands­ins er karl og það er for­sæt­is­ráð­herr­ann líka. Svo ekki sé minnst á for­set­ann, en það gæti breyst á allra næstu mán­uðum.

Helmingur íbúa en fimmtungur framkvæmdastjóra

Í sept­em­ber 2013 tóku gildi lög hér­lendis sem gerðu þær kröfur að hlut­fall hvors kyns í stjórnum fyr­ir­tækja með fleiri en 50 starfs­menn væri að minnsta kosti 40 pró­sent. Þetta leiddi til þess að ansi mörg fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóðir þurftu að ráð­ast í miklar breyt­ingar á sam­setn­ingu stjórna sinna, enda var hlut­fall kvenna í stjórnum sem féllu undir lög­gjöf­ina ein­ungis 20 pró­sent í árs­lok 2009.

Í árs­lok 2013, eftir að lögin tóku gildi, voru konur orðnar 31 pró­sent stjórn­ar­manna í þeim félögum sem þau náðu yfir. Einungis um helm­ingur fyr­ir­tækj­anna sem falla undir lögin upp­fylltu skil­yrðin á þessum tíma. Konum hefur fjölgað í stjórnum stærri fyr­ir­tækja und­an­farin ár og voru þriðj­ungur stjórn­ar­manna í fyr­ir­tækjum með 50 starfs­menn eða fleiri í lok árs 2014.

Þegar öll fyr­ir­tæki lands­ins eru talin saman lækkar hlut­fall kvenna í stjórnum þó, en þær sátu í 25,5 pró­sent stjórn­ar­sæta í lok árs 2014. Enn færri voru stjórn­ar­for­menn, eða 23,8 pró­sent. Þær voru auk þess ein­ungis 21,6 pró­sent fram­kvæmda­stjóra í öllum fyr­ir­tækjum lands­ins, sam­kvæmt tölum frá Hagstofu Íslands.

Á Íslandi bjuggu 167.410 karlar og 165.340 konur um síð­ustu ára­mót. Karlar voru því 50,3 pró­sent íbúa lands­ins en konur 49,7 pró­sent. Því fer fjarri að staðan í atvinnu­líf­inu, og sér­stak­lega í þeim störfum þarf sem fjár­magni er stýrt, end­ur­spegli það hlut­fall.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

konur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár