Fréttir
Allur þátturinn · 26 mín. Opna þáttinn
Framtíð Íslands er framtíð unga fólksins. Í leit að svörum við því hvað aðild að Evrópusambandinu felur í sér fyrir daglegt líf ungs fólks sló Ólafur Björgúlfsson, nemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, á þráðinn til ungmenna sem eiga það eitt sammerkt að vera búsett í Evrópusambandsríkjum.
Menning
Allur þátturinn · 22 mín. Opna þáttinn
Bubbi Morthens ræðir íslenskuna og lestur bóka við Hrefnu Lenu, 11 ára.
Lesa fréttina: „Ég elska þig á íslensku“ – endurreisnarmaður íslenskunnar
Fólk
Allur þátturinn · 7 mín. Opna þáttinn
Sumardeginum fyrsta var fagnað víða á landinu í gær en í Reykjavík settu skátafjör og aldargamalt víðavangshlaup svip sinn á daginn. Þó að gjarnan sé fremur kuldalegt á sumardeginum fyrsta markar hann upphaf sumarmánaðanna sex í gamla norræna tímatalinu. Dagurinn er fyrsti dagur Hörpu og er haldinn fyrsta fimmtudag eftir 18. apríl ár hvert.
Fólk
Allur þátturinn · 48 mín. Opna þáttinn
„Við sitjum eftir í sorg, horfum yfir sögu sonar okkar og klórum okkur í höfðinu. Eftir stendur spurningin: Hvað gerðist?“ segir Hjörleifur Björnsson, en sonur hans, Hávarður Máni Hjörleifsson, svipti sig lífi þann 2. september, aðeins tvítugur. Feðgarnir voru báðir áhugamenn um tónlist, greindir með ADHD og glímdu ungir við fíkn, en eitt greindi þá að. Hávarður var brotinn niður af kerfi sem hann féll ekki inn í.
Allur þátturinn · 12 mín. Opna þáttinn
Ég get gengið undir sprengjuregni allan daginn, valsað um skurðgrafir á eftir hermönnum og sofið í bíl undir tré með stórskotaliðskúlur fljúgandi á milli fylkinga – en það eru augnablik eins og þessi sem sitja eftir í huganum.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Allur þátturinn · 12 mín. Opna þáttinn
Aðgerð Úkraínumanna, sem gengur undir heitinu Köngulóarvefurinn, hefur af sumum verið líkt við Pearl Harbor Rússa vegna hins gríðarlega tjóns sem hún olli. Árásin markar mögulega stærsta ósigur Rússlands í stríðinu til þessa – ef ekki þann allra stærsta.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Allur þátturinn · 11 mín. Opna þáttinn
Óskar Hallgrímssonn fjallar um ferð sína með Íslendinga til Bucha og mestu drónaárásir stríðsins hingað til. Úkraína lét til skara skríða með árás sem hefur verið lengi í vinnslu djúpt inn í Rússlandi – sem gæti breytt gangi stríðsins.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Fréttir
Allur þátturinn · 22 mín. Opna þáttinn
Ráð John Bolton til íslenskra stjórnvalda í dansinum við Donald Trump er að bíða sem lengst með að funda með honum. Blaðamaður Heimildarinnar ræddi við Bolton, sem er fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Trump, í tengslum við áherslur Bandaríkjaforseta á norðurslóðir, áhuga hans á að eignast Grænland og hvaða áhrif það gæti haft á Ísland.
Myndband: Heimildin / Davíð Þór
Allur þátturinn · 11 mín. Opna þáttinn
Nú eru allir að tala um „friðarviðræður í Istanbúl“ og áróðursvélin komin með fullan tank. Ég myndi ekki undrast ef þetta verði notað næstu mánuði til að kenna Úkraínu um að hafa gengið frá borði – og að í þetta skiptið hafi Evrópa eyðilagt viðræðurnar. Allt í þágu þess að stilla Pútín upp sem friðarleitandi leiðtoga.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Allur þátturinn · 11 mín. Opna þáttinn
Reham Khaled, er 27 ára gömul, kennari að mennt og starfaði sem grunnskólakennari fyrir stríð. Viðar Hreinsson er í tíðu og reglulegu sambandi við hana í gegnum síma.
Lesa fréttina: Með þjóðarmorð í símanum: „Líf okkar er lifandi helvíti“
Allur þátturinn · 9 mín. Opna þáttinn
Úkraína beitti víðtækum drónaárásum til að veikja loftvarnir Moskvu fyrir hersýningu 9. maí. Á meðan sýndi Rússland samstöðu með einræðissinnum og Kína styrkti áhrif sín. Lýðræðisríki virðast á undanhaldi, sérstaklega Bandaríkin.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Allur þátturinn · 5 mín. Opna þáttinn
Óskar Hallgrímsson eyddi nóttinni á köldu baðherbergisgólfi, ásamt konu sinni, á meðan sprengjur Rússa féllu í Kyiv. Eldflaug sprakk í íbúabyggð og næsta dag voru þeir sem lifðu af grafnir úr rústum - hinir látnu líka.
Allur þátturinn · 34 mín. Opna þáttinn
Breski sjálfboðaliðinn Eddie missti vinstri fót og hönd í sprengingu þegar dróni skall framan á bílinn sem hann var að aka úr stríðshrjáðu borginni Pokrovsk. Óskar Hallgrímsson ræðir við Eddie þar sem hann er að jafna sig eftir aðgerð.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Allur þátturinn · 18 mín. Opna þáttinn
Í kjölfar nýlegra atburða í Washington hefur staða Úkraínu versnað enn frekar, þar sem Bandaríkin hafa beitt þrýstingi á Volodymyr Zelensky til að samþykkja friðarviðræður við Vladimir Pútín. Saga samskipta stórvelda og minni ríkja endurtekur sig, eins og dæmin sýna frá Tékkóslóvakíu árið 1939.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Allur þátturinn · 24 mín. Opna þáttinn
Óskar Hallgrímsson fjallar um bandamenn Úkraínu í Úkraínuskýrslu vikunnar. Hann segir óhugnanlegt að fylgjast með fundum Rússa og Bandaríkjamanna í Sádi-Arabíu, þar sem Úkraínu er haldið fyrir utan.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Þátturinn er fyrir áskrifendur
Þetta var sýnishorn. Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
SkýrtÁskrift
Allur þátturinn · 11 mín. Opna þáttinn
Carbfix, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, hyggst dæla meira koldíoxíði í jörðina í Hafnarfirði en áður var kynnt. Fyrirtækið hefur undirritað viljayfirlýsingu við umdeild fyrirtæki, þar á meðal eitt dæmt fyrir glæpi gegn mannkyni. Íbúar mótmæla áformunum og íbúakosning er fyrirhuguð.
Myndband: Heimildin
Allur þátturinn · 21 mín. Opna þáttinn
Hér er síðari hluti annálsins um árið 2024. Í þetta skiptið förum við yfir stöðuna á vígvellinum.
Þátturinn er fyrir áskrifendur
Þetta var sýnishorn. Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
MóðursýkiskastiðÁskrift
Allur þátturinn · 36 mín. Opna þáttinn
Í þessum lokaþætti Móðursýkiskastsins fáum við að heyra frá konu sem var sett á lyf sem gætu hafa haft mjög neikvæð áhrif á heilsu hennar. Lyf sem henni voru gefin við sjúkdómi sem svo kom í ljós að hún var ekki með. Hún gekk á milli lækna í aldarfjórðung áður en hún fékk rétta greiningu. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttaröðinni. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna. Þátturinn í heild sinni er aðeins aðgengilegur áskrifendum Heimildarinnar. Áskrift má nálgast á heimildin.is/askrift.
Allur þátturinn · 12 mín. Opna þáttinn
Rétt eins og árið á undan var árið 2024 blóðugt fyrir almenna borgara með nær daglegum loftárásum sem héldu áfram án afláts.
Þátturinn er fyrir áskrifendur
Þetta var sýnishorn. Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
MóðursýkiskastiðÁskrift
Allur þátturinn · 32 mín. Opna þáttinn
Elísa Ósk Línadóttir, formaður PCOS samtakanna, var 19 ára þegar kvensjúkdómalæknir greindi hana með PCOS og sagði henni að drífa í barneignum. Engar ráðleggingar um hennar eigin heilsu fylgdu og Elísa fór af stað í frjósemismeðferðir. „Ég óska engum að ganga í gegnum þetta svona,“ segir Elísa sem er viðmælandi í fjórða þætti Móðursýkiskastsins. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttaröðinni. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna. Þátturinn í heild sinni er aðeins aðgengilegur áskrifendum Heimildarinnar. Áskrift má nálgast á heimildin.is/askrift.
Þátturinn er fyrir áskrifendur
Þetta var sýnishorn. Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
MóðursýkiskastiðÁskrift
Allur þátturinn · 37 mín. Opna þáttinn
Þegar Karen Ösp Friðriksdóttir lá sárkvalin á kvennadeild Landspítala árið 2019 var hún sökuð um verkjalyfjafíkn. Hún hafði þá verið verkjuð síðan hún var níu ára. Geðlæknir leiddi að því líkum að verkir hennar tengdust gervióléttu. Tveimur árum síðar fékk hún loks staðfestingu á því að hún væri með líkamlegan sjúkdóm. Hún vonar að heilbrigðiskerfið og samfélagið læri af hennar sögu. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttaröðinni. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna. Þátturinn í heild sinni er aðeins aðgengilegur áskrifendum Heimildarinnar. Áskrift má nálgast á heimildin.is/askrift.
Þátturinn er fyrir áskrifendur
Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
ÚkraínuskýrslanÁskrift
Allur þátturinn · 8 mín. Opna þáttinn
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heimilaði nýverið Úkraínu að nota ATACMS skotflaugakerfið gegn skotmörkum í Rússlandi. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt leyfi hefur verið veitt fyrir notkun langdrægra eldflauga utan landamæra Úkraínu.
Allur þátturinn · 1 klst. Opna þáttinn
Alma D. Möller landlæknir og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra voru gestir Pressu í dag og ræddu meðal annars alvarlega stöðu á bráðamóttöku. Willum og Alma leiða bæði lista í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum, Alma fyrir Samfylkingu og WIllum Framsókn. Jóhannes Kr. Kristjánsson mætir einnig í þáttinn og sagði frá nýjum þáttum um bráðamóttökuna sem birtast hjá Heimildinni.
Fyrirtækin sem selja neytendum matvörur hafa grætt vel á verðbólgutímunum sem verið hafa á Íslandi undanfarin misseri. Neytendur virðast bera hitann og þungann af hækkunum á sama tíma og það hefur sjaldan ef nokkurn tíman verið jafnarðbært að reka matvörukeðjur hér á landi.
Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn inn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir. Á vettvangi fer í loftið 22. nóvember. Um leið birtist ítarleg umfjöllun í prentútgáfu Heimildarinnar.
Lesa fréttina: Tugir sjúklinga dvöldu á bráðamóttökunni lengur en í 100 klukkustundir
8 mín. Opna þáttinn
Með sigri Trump yfir Hvíta húsinu og líklega báðum þingdeildum og í fyrri tíð og raðað hliðhollum dómurum í hæstarétt sem hefur síðan þá samþykkt lög sem gefa honum raun frjálsar hendur til að gera það sem honum sýnist. Hann mun því líklega halda áfram eingangrunar stefnu sinni, án teljandi andstöðu eða áhyggna af endurkjöri.
Þátturinn er fyrir áskrifendur
Þetta var sýnishorn. Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
PressaÁskrift
Allur þátturinn · 59 mín. Opna þáttinn
Gunnar Smári Egilsson, oddviti Sósíalistaflokks Íslands, og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, frambjóðandi Vinstri grænna, mætast í Pressu þar sem umræðan hverfist um íslenska vinstrið.
Sonur og viðskiptafélagi Jóns Gunnarssonar þingmanns fullyrðir í upptökum sem teknar voru af manni sem sagðist vera fjárfestir að Jón hafi samþykkt beiðni Bjarna Benediktssonar um að þiggja sæti á lista gegn því að Jón komist í aðstöðu til veita veiðileyfi til Hvals hf. Það verði arfleifð Jóns að tryggja Kristjáni Loftssyni nánum vini sínum leyfið. Það sé hins vegar eitthvað sem eigi að fara leynt.
Þátturinn er fyrir áskrifendur
Þetta var sýnishorn. Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
PressaÁskrift
Allur þátturinn · 44 mín. Opna þáttinn
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, og Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá stéttarfélaginu Visku, verða gestir Pressu í dag. Þar mun hækkandi matvöruverð vera til umræðu. Aldrei hefur verið meiri hagnaður fólginn í því að selja íslenskum neytendum matvöru.
8 mín. Opna þáttinn
Óskar Hallgrímsson fer yfir hvert atriði í „siguráætlun“ Selenskí og af hverju að það sé möguleiki á því að Úkraína komi sér upp kjarnorkuvopnum til að fæla Rússa frá því að ráðast aftur inn í landið.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Þátturinn er fyrir áskrifendur
Þetta var sýnishorn. Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
PressaÁskrift
Allur þátturinn · 54 mín. Opna þáttinn
Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavík norður, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík suður, mætast í Pressu.
Þátturinn er fyrir áskrifendur
Þetta var sýnishorn. Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
PressaÁskrift
Allur þátturinn · 1 klst. 1 mín. Opna þáttinn
Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður og oddviti Pírata í Reykjavík Norður, verður gestur Pressu í dag ásamt Snorra Mássyni fjölmiðlamanni, sem sækist eftir oddvitasæti hjá Miðflokknum og Jóhanni Páli Jóhannssyni, þingmanni Samfylkingarinnar.
Allur þátturinn · 8 mín. Opna þáttinn
Norður-Kórea er orðinn beinn þátttakendi í stríði Rússa gegn Úkraínu og hefur sent minnst þrjú þúsund hermenn til að berjast við hlið Rússa. Viðbrögð alþjóðasamfélagsins hafa verið dræm í besta falli.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Þátturinn er fyrir áskrifendur
Þetta var sýnishorn. Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
PressaÁskrift
Allur þátturinn · 40 mín. Opna þáttinn
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokks, Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, eru gestir Pressu í dag.
Allur þátturinn · 7 mín. Opna þáttinn
Bærinn Vuhledar í Úkraínu náði að halda aftur af árásum Rússa í nær þúsund daga, síðan allsherjar stríðið hófst. En nú hefur Rússum tekist ætlunarverkið, náð Vuhledar á sitt vald.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Allur þátturinn · 8 mín. Opna þáttinn
Rússar hafa ítrekað haldið því fram að allir drónar sem Úkraníumenn sendu í átt að hernaðarlegum skotmörkum í Rússlandi hafi verið skotnir niður. Hins vegar birtust fljótlega myndbönd af stórum sprengingum á svæðinu.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Allur þátturinn · 7 mín. Opna þáttinn
Yfirlit yfir helstu árásir Rússa á almenna borgara í Úkraínu á síðastliðnum mánuði.
Myndband: Óskar Hallgrímsson
Allur þátturinn · 14 mín. Opna þáttinn
Óskar Hallgrímsson slóst í för með dýraverndarsamtökum sem ætluðu að bjarga hundum úr bráðri hættu. Ferðin skilaði ekki árangri þar sem svæðið þótti of hættulegt til að hægt væri að sækja hundana.
Myndband: Óskar Hallgrímsson