Ég tók saman lista yfir allar þær loftárásir sem ég fann upplýsingar um sem ullu mannfalli meðal almennings eða tjóni á innviðum á árinu. Alls fann ég yfir 150 einstaka árásir með hundruðum stýriflauga og skotflauga, svifsprengja, ásamt þúsundum dróna og stórskotaliðsárásum.
Samkvæmt minni samantekt, sem byggir á þeim gögnum sem ég hef náð að safna, létust yfir 1.500 almennir borgarar og þúsundir til viðbótar særðust í árásunum.
Ég vil taka það skýrt fram, að þó fjallað sé um mannskæðustu árásirnar á almenna borgara á árinu í þessu myndbandi, að líf sem ekki eru nefnd í upptalningunni eru ekki minna virði. Sorgin er jafn sár fyrir alla þá sem misstu ástvini, en vegna tímatakmarkana varð ég að velja árásir sem fyrir mér teljast þær skæðustu. Hafið í huga að fyrir hvert líf sem ég nefni eru mörg líf til viðbótar sem náðu ekki inn á listann.
Ég vil árétta að þessi samantekt nær aðeins yfir brot af þeim árásum sem gerðar hafa verið á almenna borgara og borgaralega innviði, og að það er erfitt að horfa á jafnvel þetta brot.
Árið hefur verið gríðarlega erfitt, bæði fyrir okkur hjónin og okkur öll hér í Úkraínu; það verður alltaf erfiðara og erfiðara að reyna að halda höfðinu hátt á meðan þjóðin spyrnir stöðugt við með afturfótunum.
Jafnvel á meðan ég skrifa þessi orð heyri ég í loftvarnarbyssunum fyrir utan gluggan sem eru að verja okkur gegn enn einni loftárisinni.
Á næstu dögum mun Heimildin birta svipuðan annál, nema þá snúum við kastljósinu að því sem hefur gerst á vígvellinum síðustu 12 mánuði og þeim bollaleggingum sem snúa að stöðu Úkraínu á alþjóðasviðinu.
Handrit
1.488 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan
Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Blóðugt ár fyrir almenna borgara
Komið þið sæl og gleðilegt nýtt ár. Rétt eins og árið á undan var árið 2024 blóðugt fyrir almenna borgara og nær daglegar loftárásir héldu áfram án afláts. Ég tók saman lista yfir allar þær loftárásir sem ullu mannfalli meðal almennings eða tjóni á innviðum á árinu. Alls fann ég persónulega yfir 150 einstakar árásir með hundruðum stýriflauga og skotflauga ásamt þúsundum dróna.
Í minni samantekt létust yfir 1.500 almennir borgarar og þúsundir til viðbótar særðust í árásunum. Ég vil taka það skýrt fram áður en ég fjalla um mannskæðustu árásir á almenna borgara á árinu að þau líf sem ekki náðu inn í þessa upptalningu eru ekki minna virði. Sorgin er jafn sár fyrir þá sem misstu ástvini, en vegna tímamarka varð ég að velja þær árásir sem mér teljast skæðastar.
Hafið þó það hugfast: fyrir hvert líf sem ég er að fjalla um eru mörg líf til viðbótar sem náðu ekki inn á listann. Tveimur dögum fyrir áramót, eða 29. desember 2023, sendu Rússar 158 dróna á helstu borgir víðs vegar um landið. Alls létust 30 og tugir til viðbótar særðust. Þetta var umfangsmesta loftárás á almenna borgara í landinu í stríðinu fram að þessu.
Ég fann mig knúinn til að taka þá árás inn í myndina er við lítum yfir árið sem var að líða. Aðeins fjórum dögum eftir þessa stóru árás, eða 2. janúar, sendu Rússar 99 flugskeyti og 35 dróna með það markmið að eyðileggja orkuinnviði landsins. Úkraínskar loftvarnir skutu niður aðeins 72 af þeim skeytum sem send voru. En vegna skorts á skotfærum fyrir loftvarnir, sem Bandaríkin höfðu lofað, urðu stór orkuver fyrir árásum.
Þann 23. janúar gerðu Rússar stóra árás um land allt. Átján létust þar, með fjögurra ára barn, og 130 slösuðust til viðbótar. Úkraínskar loftvarnir náðu aðeins að skjóta niður helming þeirra skeyta sem send voru og má rekja mannfallið beint til skorts á skotfærum í loftvarnarkerfi landsins. Þann 9. febrúar varð svo mikil sprenging í Kharkív þegar dróni lenti á bensínstöð og brennandi eldsneyti dreifðist um stórt svæði og olli stærðarinnar eldhafi allt í kring.
Alls urðu 57 manns heimilislausir í árásinni. Þann 17. febrúar, eftir um tíu ára umsátur, féll borgin Avdívka í hendur Rússa, nánar um það og afleiðingar þess í hernaðarhluta uppgjörsins sem kemur á næstu dögum.
Árásir á Odesa og orkuver
Þann 2. mars í Odesa létust tólf manns, þar á meðal fimm börn, þar af eitt þriggja ára, og móðir með ungt barn, þegar Shahed-dróni gereyðilagði fjölbýlishús með 18 íbúðum. Þann 6. mars lifði úkraínski forsetinn rétt af tilraun til þess að taka hann af lífi, ef marka má fjölmiðla heimsins, er stærðarinnar skotflaug lenti 300 metra frá bílalest hans er hann var í heimsókn í hafnarborginni Odesa.
Persónulega er ég ekki viss um að hann hafi verið fyrirhugað skotmark. Það tekur tíma að stilla inn hnit og senda skotflaugar og vita hvar bílalest Selenskíj mun vera nákvæmlega á þeirri sekúndu þegar hann keyrir fram hjá. Það þarf að vera gífurleg nákvæmni. Ferðir forsetans eru eitt helsta leyndarmál ríkisins og afar ólíklegt er að einhver hafi vitað nákvæmlega hvar hann muni vera, hvenær og hvenær bíllinn muni keyra fram hjá. Þetta er líklega slembilukka, að mínu mati.
15. mars réðust Rússar aftur á miðborg Odesa í svokallaðri tvíþættri árás. Þar lenti ein eldflaug og svo fylgdi önnur skömmu síðar, eftir að viðbragðsaðilar mættu á svæðið. Í þeirri árás létust 21 manneskja og 75 til viðbótar særðust. Viku síðar gerðu Rússar árás á orkunet Úkraínu með 151 eldflaug og dróna. Meira en milljón manns urðu rafmagnslaus í níu héruðum landsins. Alls létust fimm og 14 særðust.
Þann 11. apríl réðust Rússar með yfir 80 eldflaugum á orkuver víðs vegar um Úkraínu, þar á meðal stærsta og elsta orkuverið í grennd við Kænugarð, sem kallast Trypillia. Selenskíj gagnrýndi Bandaríkin harðlega fyrir aðgerðaleysi.
Í ljósi þess að loftvarnir hefðu skotið niður sjö af þeim ellefu flaugum sem stefndu að orkuverinu, en skotfærin í loftvarnarkerfi urðu uppurin og þær stýriflaugar sem voru á leiðinni náðu áfram óhindraðar að skotmarki sínu.
Árásir á fjölbýlishús og markaði
17. apríl skall rússnesk eldflaug á átta hæða fjölbýlishús í Tsjerníhív. 18 töpuðu lífinu og 78 til viðbótar særðust. Árásin stórskemmdi byggingar í kring, þar með talið háskóla og sjúkrahús.
25. maí varð risamarkaðurinn Epicentr í Kharkiv fyrir árás þar sem 19 manns létu lífið og 64 til viðbótar særðust, þar á meðal tvö börn. Það tók 16
klukkustundir að ráða niðurlögum eldsins enda var verslunin gríðarstór, um 15 þúsund fermetrar. Árásin var víða fordæmd um allan heim, meðal annars af forseta Frakklands, Emmanuel Macron, sem kallaði hana
óásættanlega, en fylgdi svo yfirlýsingunni ekki eftir með neinum beinum aðgerðum eða hjálp eða neinu, sem þýðir að við tveir séum ekki með sambærilegan skilning á því hvað óásættanlegt þýðir.
Loftárásir á borgir og spítala
12. júní lenti skotflaug í heimabæ Selenskíjs, Kryvyi Rih, á fjölbýlishúsi sem varð níu manns að bana og særði 29 til viðbótar, þar með fimm börn.
8. júlí réðust Rússar enn á ný á borgir um alla Úkraínu með 40 eldflaugum. Eitt skotmarkið var barnaspítalinn Okhmatdyt í Kænugarði, stærsti og fullkomnasti barnaspítali Úkraínu, sem var aðeins rúmlega kílómetra frá því þar sem ég var staddur, á vinnustofu minni
í Kænugarði. Ég ásamt þúsundum annarra hlupum að spítalanum að leggja hjálparstarfinu lið. Í sömu árás annars staðar í Kænugarði lenti stýriflaug á fæðingarsjúkrahúsi. Þar létu sjö manns lífið og tveir
særðust. Alls létust 47 manns þennan daginn og 196 til viðbótar særðust, þar á meðal tíu börn. Þetta var að mínu mati, alla vega persónulega fyrir mig sjálfan,
einn hræðilegasti atburður stríðsins og mun sitja með mér í huganum um ókomna framtíð. 9. ágúst gerðu Rússar árás á stórmarkaðinn Eko í Konstantínivka. Þar létust 14 manns, þar á meðal þrjú börn, og 44 til viðbótar særðust.
26. ágúst gerðu Rússar stærstu loftárás stríðsins með 127 eldflaugum og 109 drónum. Úkraínskar
loftvarnir skutu flestar ógnir niður en náðu þó nokkur skotmörk að valda skaða. Sjö létu lífið og hlutar orkunetsins féllu niður í 15 héruðum. Rafmagn til íbúa landsins hefur verið skammtað
Mannskæðar árásir í september
flesta daga síðan þá. 3. september var svo blóðugasta einstaka árás stríðsins. Rússar réðust á skóla þar sem tilvonandi hermenn voru við þjálfun og sjúkrahús í nágrenninu.
Þar létu alls 59 manns lífið og 328 til viðbótar særðust. Þótt árásin hafi ekki beinlínis verið árás á almenna borgara og tæknilega séð hernaðarlegt skotmark,
þótt þetta hafi reyndar verið inni í miðri borg, þá læt ég hana fylgja með eingöngu út af magni særðra.
Þar á meðal móðir á þrjár dætur hennar. Eiginmaðurinn lifði einn af árásina í fjölskyldunni og mátti sjá myndir af honum í fjölmiðlum um alla Úkraínu, alblóðugum, að horfa til baka
á rústir heimilis síns þar sem fjölskyldan hans lá grafin undir. Það var mikið grátið þann daginn hér á þessu heimili. 11. nóvember lenti skotflaug á húsi fjölskyldu í Kryvyi Rih og það
Árásir undir lok ársins
gerðist það sama og tveimur mánuðum áður: móðir ásamt þremur börnum létust. Fjölskyldufaðirinn lifði einn árásina af. 17. nóvember gerðu Rússar stórfellda árás á Úkraínu með 120
eldflaugum og 90 drónum. Þrátt fyrir miklar skemmdir sýndu úkraínskar loftvarnir enn meiri framfarir, líklega vegna aukins stuðnings frá Bandaríkjunum, skotfæra í loftvarnarkerfi og þátttöku F-16 orrustuþotna
í að elta og skjóta niður stýriflaugar. En því miður réðust Rússar daginn eftir á miðborg Odesa um hábjartan dag með skotflaug. Þar lágu átta í valnum og 18 til viðbótar særðust, þar með börn.
Þann 21. nóvember notuðu Rússar í fyrsta skipti Oreshnik-skeyti, sem er hluti af kjarnorkuvopnakerfi þeirra. Flaugin bar ekki kjarnorkuvopn í þetta skiptið, heldur steypuklumpa sem líktu eftir þunga kjarnavopna.
Klumpurinn sjálfur olli litlu tjóni. Það hefði verið annað mál hefðu verið raunverulegar vetnissprengjur þar á ferð, en tilætlunin var líklega viðvörun til Vesturlanda um að þeir væru líklegir til þess að nota kjarnorkuvopn. Ég fór vel yfir þau mál og viðbrögðin við árásinni hér hjá Heimildinni í síðustu skýrslu.
Svo, á jóladag, 25. desember, réðust Rússar enn á orkunetið, líklega til þess að eyðileggja jólin fyrir okkur hér. Þrátt fyrir það er ekkert jólalegra en kertaljós, og svo komst rafmagn fljótlega aftur á hjá flestum í landinu.
Og svo til að kóróna árið: Á gamlárskvöld, eða reyndar nýársmorgun, í gær þegar þetta er skrifað, réðust Rússar enn á alla Úkraínu. Dróni náði að lauma sér fram hjá öflugum loftvörnum höfuðborgarinnar og var skotinn niður rétt áður en hann átti að lenda á skrifstofu forsetans.
En því miður hafnaði hann í staðinn á heimili prófessors í líffræði og konu hans, sem var líka vísindamaður, og þau töpuðu lífinu ásamt heimiliskettinum. Ég vil árétta að þessi samantekt er aðeins brot af þeim árásum sem hafa verið gerðar á almenna borgara og borgaralega innviði á árinu.
Þetta ár hefur verið gríðarlega erfitt fyrir okkur hjónin og okkur öll hér í Úkraínu. Ég þakka ykkur fyrir að lesa greinar og fylgjast með skýrslum á árinu, og við sjáumst aftur á næstu dögum í næsta annál, sem fjallar um það sem gerðist á vígvöllunum og í heimsmálum í tengslum við stríðið í Úkraínu.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir