Úkraína slær til baka: Köngu­ló­ar­vef­ur­inn og tíma­móta­árásir

Óskar Hallgrímssonn fjallar um ferð sína með Íslendinga til Bucha og mestu drónaárásir stríðsins hingað til. Úkraína lét til skara skríða með árás sem hefur verið lengi í vinnslu djúpt inn í Rússlandi – sem gæti breytt gangi stríðsins.
· Umsjón: Óskar Hallgrímsson

Undanfarið hef ég fjallað um alþjóðamál, friðarviðræður og síbreytilega línu Trumps gagnvart Úkraínu. En nú skulum við færa fókusinn aftur hingað – til Úkraínu, þó með smá viðkomu í Rússlandi síðar – og fara yfir það sem gerðist í raun síðustu daga.

Vikan byrjaði illa. Bíllinn – helsta öryggis- og vinnutækið síðustu þrjú ár – gaf háflpartinn upp öndina. Eftir ótal ferðir um víglínuna og ýmisleg skakkaföll og þrautagöngur sem hann hefur þurft að þola, tók hann þetta hetjulega á hökuna en haltraði til baka heim á bílastæðið.

Það sem verra var – ég hafði lofað mér í túr til Butcha og Irpin með Íslendingum í heimsókn, eitthvað sem ég er óvanur að gera nema sem greiða eða/og gegn greiðslu.

Ég lét þau vita að bíllinn væri óökuhæfur og við yrðum að aflýsa. En þau redduðu því – tóku bíl á leigu og við lögðum af stað, í túristaferð aftur til fortíðar, að heimsækja staði þar sem ég upplifði fyrstu af verstu dögum lífs míns.

Á þremur árum hefur Butcha hefur verið endurbyggð að mestu, þó sárin sjáist enn á milli.

Ég sagði þeim frá aðkomunni – brunnum skriðdrekum, sundurskotnum bílum, sumum merktum „börn“ – og hvernig það var að ganga einn að opinni fjöldagröf í þögulli þokunni.

Fyrir mér var þetta lifandi minning. Fyrir þeim minnisvarði – í bæ sem hafði lifnað við með merki um eitthvað skelfilegt sem hafði gerst – en ekki var að gerast. Sem er auðvitað góð þróun, en súrrealískt fyrir okkur sem komu fyrstu dagana eftir að svæðið var frelsað.

Eftir túrinn skilaði ég þeim á hótelið og ég lét þau vita að ég myndi halda þeim upplýstum ef eitthvað kæmi upp á. Sem gerist strax sama dag.  Viðvörunarkerfið fór af stað um miðnætti og hélt áfram næstu nætur. Ég fylgdist með bylgjum af drónum og skotflaugum dynja yfir borgina næstu nætur og hélt þeim upplýstum – sagði þeim að fara í skjól og hvað væri á leiðinni inn í hvert skipti. Sumir nýttu sér skýlið, aðrir nýttu baðkarið. En á endanum sluppu allir ómeiddir frá því sem yfir gekk. Fyrir utan mögulegt svefnleysi.

Alls yfir helgina – samtals yfir þrjár nætur – skutu Rússar 903 Shehed-drónum, 23 skotflaugum og 69 stýriflaugum. Hver nótt sló hvert metið á fætur annari um magn dróna sem flugu yfir landamærin. Í fyrradag, þegar þetta er skrifað, var metið slegið enn eitt skiptið. 

Alls létust 30 óbreyttir borgarar, þar af sex börn. Yfir hundrað slösuðust, þar af að minnsta kosti tólf börn.

En svo, sunnudaginn 1. júní, sló Úkraína hressilega til baka með árás sem hafði samkvæmt úkraínsku öryggisþjónustunni (SBU) verið í undirbúningi í eitt og hálft ár.

Aðgerðin, með dulefnið „Köngulóarvefurinn“ fól í sér að sérútbúnir kofar með fölsku þaki voru fluttir með rússneskum flutningabílum inn til Rússlands og skildir eftir í nágrenni stærstu herflugvalla landsins – langt frá því svæði þar sem fram að þessu hafði verið talið að Úkraína gæti gert árásir, allt að 5.500 kílómetra frá landamærum landanna.

Svo virðist sem þakið af kofunum hafi á sama tíma þeyst af og drónarnir tekið á loft og hver og einn í átt að skotmarki sínu. Drónunum gat bæði verið stjórnað af stjórnanda og með sérþróaðri úkraínskri gervigreind sem gat leitt drónan að áfangastað án þess að rússnesk raftruflunar tæki gætu stöðvað ferð þeirra með því að trufla samskipti og GPS mið.

Þegar þetta er skrifað er erfitt að staðfesta upplýsingar nákvæmlega. Hér er flóð mynda og allskonar yfirlýsinga, svo ég ætla að taka mér tíma til að sigta í gegnum þær næstu daga. Næsta myndband verður tileinkað þessari árás, þegar betri upplýsingar liggja fyrir og auðveldara verður að staðfesta hvað raunverulega gerðist.

Ég get þó staðfest strax að minnsta kosti tveir flugvellir urðu fyrir árásinni og að í það minnsta 41 flugvél af ýmsum gerðum sé ónýt eða óstarfhæf. Þar á meðal stór hluti sprengjuflugvéla sem notaðar hafa verið til að ráðast á borgir Úkraínu og myrða almenna borgara.

Aðgerðin markar tímamót í stríðinu, sýnir kænsku Úkraínu – og minnir okkur enn á ný að það er aldrei gott að vanmeta getu Úkraínumanna, eins og Rússar hafa gert í sífellu frá upphafi stríðsins. En nánar um það næst.

Handrit

1.492 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Heimsókn til Bútsja

Ég hef undanfarið einblínt á alþjóðamál og friðarviðræður. Nú skulum við fara okkur aftur hingað til Úkraínu og yfir í það sem raunverulega gerðist síðustu daga. Vikan byrjaði alls ekki vel. Bíllinn minn, helsta öryggis- og vinnutæki síðastliðin þrjú ár, gjörsamlega bilaði.

Hann hefur lifað af margt upp og niður eftir víglínunni margoft og oft þurft að þola sitt. En verra var að ég hafði lofað mér í túr til Útsaga á Irpin með Íslendingum sem voru hér í heimsókn, eitthvað sem ég geri aldrei nema sem greiða. Ég lét þau vita að bíllinn væri óökuhæfur og við yrðum því miður að aflýsa ferðinni. En þau ræddu það, tóku bílaleigubíl og við lögðum af stað í eins konar túristferð aftur til fortíðar, til að heimsækja staði þar sem ég upplifði fyrstu verstu daga lífs míns.

Bútsja hefur að mestu verið endurbyggð, þó hægt sé að sjá sárin svona inn á milli. Ég sagði þeim frá aðkomunni, brunnu skriðdrekunum, sundurskotnu bílunum, sumum merktum börnum, og hvernig það var að ganga einn að opinni fjöldagröf í þögulli þokunni. Það eina sem maður heyrði var skrapið í glerbrotunum sem verið var að sópa alls staðar í kringum. Fyrir mér var þetta lifandi minning; fyrir þeim var þetta minnisvarði í bæ sem hafði lifnað aftur við.

Við skiluðum þeim svo á hótelið og sagði þeim að ég myndi láta vita ef eitthvað sérstakt kæmi upp, ef loftvarnarflautur færu að óma yfir daginn eða nóttina.

Um miðnætti á föstudagskvöldi hljómaði viðvörunarbjallan og ég teygði mig hálfsofandi í símann. Sá margar bylgjur af drónum vera á leiðinni.

Við sjálf vorum með næturgest í heimsókn. Konan mín byggði um sig á baðherberginu; ég sat á kolli í forrýminu. Sumir vinir okkar á hótelinu bjuggu um sig í baðinu á meðan árásin gekk yfir, aðrir fóru í skýlið á annarri hæð undir.

Næturárás á Kænugarð

Fljótlega heyrðist í drónum sveima yfir okkur og loftvarnarsprengjurnar fóru að dynja með hávaða í kring. En ég þekki orðið hljóðið þegar það sprengir dróna í lofti. Þeim virtist ganga það nokkuð vel. Svo bárust okkur skilaboð á Telegram um að skotflaugar væru á leiðinni til Kænugarðs.

Þar sendi ég vini mínum á hótelinu: „Loftárás á Kænugarð, í skjól. Hásprenging væntanleg, allir í skjól.“

Þá heyrðist frá einni: „Vá, ég heyrði þetta alla leið niður í mínus tvö.“ Þetta eru öflugustu vopnin, saman sprengur í tonn af sprengiefni í loftinu, auk sprengingarinnar sem myndast þegar 312 kílógramma hlutur fer á fimmföldum hljóðhraða upp til þess að stoppa þær og hálft tonn á tíföldum hljóðhraða í átt að jörðu.

Viðureignin stóð yfir í sjö klukkutíma. Um fimmleytið sofnaði ég loks, bókstaflega. Ég rýmdi upp úr rúminu klukkan tíu til þess að komast að því hversu mikill skaðinn var. Alls voru það 250 árásardrónar og 14 skotflaugar sem Rússar sendu á Úkraínu yfir nóttina.

Loftvarnir felldu sex af 14 flaugum og 214 skotflaugar. 45 af 250 drónum. Nýjar vestrænar árásarþotur skipta þar meginmáli; þær finna og skjóta niður bæði dróna og stýriflaugar, oft fjórar í hverri árás.

Þetta dregur ekki úr mikilvægi færanlegra sveita sem valsa um sveitavegi með vélbyssur eða loftvarnabyssur á pallbílum. Það er bara ekki jafn hraðvirkt. Kænugarður og aðrar stærri borgir í Úkraínu eru með marglaga loftvarnarkerfi, með vélbyssum eða loftvarnarkerfi. Loftvarnabyssurnar sem ég nefni hér að ofan eru neðsta lagið, Patriot er það efsta og þar á milli eru ýmis önnur kerfi sem fylla í skörðin.

Í Kænugarði slösuðust um 15 manns, enginn lést, sem er ótrúlegt miðað við hvað árásin var stór, en sýnir mikilvægi öflugra samhæfðra loftvarna.

Andrij Sybiha, utanríkisráðherra, sagði á laugardag: „Þegar allur heimurinn kallar eftir því að drápin hætti skipar Pútín enn fleiri árásir.“ Og já, það var nákvæmlega það sem fylgdi í kjölfarið. Um miðnætti kom tilkynning um fyrstu

Bylgja dróna af mörkum, sem voru á leiðinni. Skömmu síðar kom tilkynning um sprengjuflugvélar, sem oft bera stýriflaugar, á loft frá stöðvum sínum. Konan mín nennti engan veginn að standa í þessu og var þreytt.

Þegar hún var orðin nokkuð viss um að engar skotflaugar væru á leiðinni fór hún að sofa og treysti mér fyrir vaktinni. Vinir okkar á hótelinu höfðu lært sitt: einfaldlega dregið dýnuna fram á ganginn og látið það duga. Þau fóru að sofa enda höfðu þau ekki sofið mikið nóttina áður.

Stærsta drónaárásin

Ótrúlegt hvað er hægt að venjast hlutunum fljótt þegar maður er orðinn þreyttur. Það voru gífurleg læti, en bardaginn var greinilega háður aðeins lengra frá miðborginni en daginn áður. Árásin reyndist þó, þrátt fyrir að vera stærri, dreifðari um landið.

Þetta var stærsta drónaárás stríðsins fram að þessu: 9 skotflaugar, 60 stýriflaugar og 298 árásardrónar. Heilt yfir landið létust 13 og 70 slösuðust.

Þar á meðal létust þrjú systkini úr Marteini og fjölskyldunni: 8 ára Tamara, 12 ára Danislav og 17 ára Róman. Þau létust þegar brot úr eldflaug féllu á heimili þeirra.

Báðir foreldrarnir slösuðust. Faðirinn, sem er enn að ná sér, sótti samt útförina 28. maí ásamt tveimur eftirlifandi börnum þeirra hjóna. Móðirin lá áfram illa slösuð á sjúkrahúsi í Kænugarði.

Þar létust fjórir og 16 slösuðust þegar heimavist stúdenta varð fyrir árás. Viðbrögð alþjóðaaðila voru eins og vanalega bara flóð fordæminga.

Samúð Trumps, mögulega orðinn þreyttur á Pútín, sagði í færslu á Truth Social: „Ég hef alltaf átt mjög gott samband við Vladimir Pútín frá Rússlandi, en eitthvað hefur gerst. Hann er orðinn algjörlega brjálaður. Þetta er í kapphlaupi.“

„Hann er að drepa fullt af fólki að óþörfu og ég er ekki bara að tala um hermenn. Eldflaugum og drónum er skotið á borgir í Úkraínu án nokkurrar ástæðu.“ Ekki það að ég vilji lesa of mikið í Trump, en hann er forseti Bandaríkjanna og stundum finn ég mig knúinn til þess.

Trump gagnrýnir Pútín

Hann er að segja að Pútín sé að drepa helling af fólki að óþörfu, ekki bara hermenn, og hann sé að senda flugskeyti og dróna inn í borgir í Úkraínu án ástæðu. Þetta hljómar eins og Pútín sé fyrst að gera það núna eða að Trump sé að uppgötva það.

Hann er ekki fyrst að gera það núna. Við skulum hafa það á hreinu: hann veit þetta. Hann hefur alltaf vitað þetta. Það er ekki eins og Trump hafi fattað skyndilega að Pútín sé að fletja út borgir og myrða saklaust fólk um alla Úkraínu.

Hann fær daglega skýrslu frá Pentagon. Hann veit hvað hann er að segja. Hvað er hann að segja með þessu? Ég ætla ekki einu sinni að reyna að greina það, og af hverju, það veit enginn.

Hann sagði líka Zelenskíj að halda sér saman í sama pósti. Hver veit? En svona var netið aftur sama og dagana áður. Hér er ein mínúta úr þeim fjórum eða fimm klukkutímum sem árásin stóð yfir.

Alls voru það 355 drónar og 9 K-101 stýriflaugar sem voru sendar inn til Úkraínu þessa nóttina. 288 drónar voru skotnir niður eða teknir niður með einhverjum öðrum leiðum og allar níu K-101-flaugarnar einnig.

Alls létust sex og 24 slösuðust. Þó að það sé ömurlegt þegar fólk deyr eða slasast í stríði, eða bara yfirhöfuð, sérstaklega almennir borgarar, þá er þessi tala samt gífurlega lág miðað við magn skotfara sem Rússland sendi yfir landamærin þessa nótt.

Loftvarnir Úkraínu eiga hrós og þakklæti skilið fyrir að standa vaktina alltaf.

Úkraína slær til baka

Þetta var stærsta drónaárás sem Úkraína hefur upplifað í stríðinu. Yfir helgina, ef þú tekur allar þrjár næturnar saman, skutu Rússar 903 Shahed-drónum, sem eru nú alfarið þróaðir og framleiddir í Rússlandi.

Alls létust 30 óbreyttir borgarar, þar af sex börn, yfir 100 slösuðust og þar af að minnsta kosti 12 börn.

Eins og þið kannski sjáið á þreytunni í augunum og öðrum fötum þá er vika síðan. Þessi hérna Kagi, sem var að tala í klippunni hér á undan, var að tala um árásir Rússa með drónum yfir landamærin. Þeir slógu nýtt met á

Hvern dag sem leið héldu þeir áfram að setja ný met. Í gær settu þeir nýtt met: 477 stykki, þannig að það hefur lítið verið sofið á mínu heimili. En við erum auðvitað ekki komin til að tala um það.

Í morgun, sunnudaginn 1. júní, sló Úkraína ansi hressilega til baka. En ef svo leikar standa, þá var svakalega mikil bakkavinna. Það koma inn upplýsingar; ég þarf annars að fá að greiða úr því hvað er satt og hvað er rétt.

Hvar falsfréttir geta fljótt undið upp á sig. Margir hafa brennt sig á því að fara eftir þeim og segja frá þeim og þurfa síðan að biðjast afsökunar, eða bara ekki gera það. Ég er bara þannig blaðamaður að ég verð að fá að sjá gervihnattarmyndir fyrir og eftir.

Og telja vélarnar á vellinum og alls konar annað slíkt. En í þessum árásum, þetta voru tveir flugvellir, kannski þrír. Ég hef alltaf sagt ykkur að það eru allavega 40, jafnvel 41 flugvél, sem er ónýt eða mjög illa

skemmd. Restina verð ég að segja ykkur í lok vikunnar eða í byrjun næstu viku, þegar ég er búinn að fara í gegnum gögnin. Þangað til næst, takk fyrir mig.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    "The operation marks a turning point in the war... ." A game changer!? Another one!? Sorry but this is utter nonsense! Its nothing more than a distraction out of desperation!
    -4
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    „Kæruleysi sem varð dóttur minni að bana“
    Fréttir00:45 ·

    „Kæru­leysi sem varð dóttur minni að bana“

    „Það hefur ekki liðið einn auðveldur dagur“
    Fréttir00:24 ·

    „Það hefur ekki liðið einn auð­veldur dagur“

    Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
    Áskrift
    Fréttir09:39 ·

    Syrgj­andi for­eldrar Hönnuh þakk­lát Íslandi

    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1