Köngu­ló­ar­vef­ur­inn

Aðgerð Úkraínumanna, sem gengur undir heitinu Köngulóarvefurinn, hefur af sumum verið líkt við Pearl Harbor Rússa vegna hins gríðarlega tjóns sem hún olli. Árásin markar mögulega stærsta ósigur Rússlands í stríðinu til þessa – ef ekki þann allra stærsta.
· Umsjón: Óskar Hallgrímsson

Við enduðum síðustu skýrslu á að nefna aðgerð úkraínsku öryggisþjónustunnar (SBU) sem hafði verið í undirbúningi í eitt og hálft ár; árás á rússneska flugvelli til að taka út stóran hluta sprengjuflugvélaflota þeirra. Á þeim tíma höfðu árásirnar bara nýlega átt sér stað, upplýsingar voru á reiki og mikið að koma inn, þannig að ég beið í viku með að fjalla um málið; safnaði gögnum, skoðaði gervihnattamyndir og reyndi að staðfesta það sem ég ætlaði að segja. Aðgerðin, sem bar heitið „Köngulóarvefurinn“, var undir persónulegri stjórn Zelensky og yfirmanns SBU, Vasyl Maliuk.

Pearl Harbour Rússa

Í átján mánuði smyglaði SBU smádrónum, svokölluðum Vespum með þriggja kílóa sprengihleðslu, inn fyrir landamæri Rússlands. Þeir voru faldir í þaki gámahúsa sem flutt voru af rússneskum bílstjórum, ráðnum af SBU í gegnum gerviverktaka – allir grunlausir um hvaða eyðileggingu þeir höfðu í eftirdragi. Ferlið var eins í öllum tilfellum: bílstjórarnir fengu símtal skömmu fyrir komu og var sagt að stoppa og bíða eftir „fulltrúa fyrirtækisins“. Þegar bíllinn stöðvaði fuku þökin af og drónarnir – 117 samtals – tóku á loft í átt að herflugvöllum. Hverjum dróna var stjórnað af manneskju, en bjó einnig yfir sérhannaðri úkraínskri gervigreind sem tók við og hélt áfram að skotmarkinu ef truflun varð á merki.

Bílarnir stoppuðu nærri helstu herflugvöllum Rússlands þar sem stærstur hluti strategískra sprengjuvéla voru geymdar. Drónarnir flugu hratt og lágt að skotmörkum sínum og hófu árásir óhindraðir. Fjórir flugvellir urðu fyrir árás: Belaya, Olenya, Dyagilevo og Ivanovo. Tilraun var gerð á Ukrainka, rúmlega 8.000 km frá Úkraínu, en mislukkaðist af einhverjum ótilgreindum ástæðum. SBU greindi strax frá því að 41 flugvél hefði orðið fyrir árás – um þriðjungur alls flotans í landinu. En, við verðum að athuga að þeir notuðu þó orðið „hittu“, ekki „gereyðilögðu“ og ég hef eytt vikunni í að greina opin gögn og gervihnattamyndir til að meta raunverulegan skaða eftir árásina. Það verður að teljast stórfenglegt að engin úkraínskur hermaður lést, eða slasaðist og skaðinn markar mögulega stærsta ósigur Rússlands til þessa í stríðinuu – ef ekki þann stærsta. Margir líkja þessu við Pearl Harbor Rússa, og það er ekki fjarri lagi.

Upplýsingastríð um umfangið

Strax eftir aðgerðina hófust upplýsingastríð – Rússar drógu úr umfangi, Úkraína ýkti árangur. SBU birti myndband með upptökum frá drónunum þar sem skaðinn sést greinilega. Tölur voru á reiki, en miðað við öll gögn tel ég að að minnsta kosti 25 vélar séu óstarfhæfar – flestar brunnar upp eða svo gamlar að viðgerðir eru nánast útilokaðar. Þar á meðal eru TU-95, TU-22, AN-12 og tvær A-50 eftirlitsvélar. Maliuk sagði að stór hluti þeirra hefði orðið fyrir óafturkræfum skaða og að viðgerðir myndu taka mörg ár. Þar er ég sammála, það er ómögulegt að vita hvað mikið af þeim sem gjöreyðilögðust náðu að skemma út frá sér þegar þær brunnu upp. Sumar hverjar voru fullhlaðnar með nýjum flugskeytum sem ætlaðar voru til árása á Úkraínu þegar þær urðu fyrir árás.

Neyðast til endurskipulagningar

Áhrif árásarinnar eru víðtæk. Hæfileiki Rússa til að skjóta stýriflaugum inn í Úkraínu hefur verið lamaður að stórum hluta, sérstaklega til skemmri tíma. Þeir neyðast nú til að endurskipuleggja viðhaldskerfi og flutninga og hafa engar raunverulegar varnir gegn sambærilegum árásum, sem gætu átt sér stað hvar sem er í landinu. 

Samhliða þessu er valdvörpun Rússa veikluð – sprengjuflugvélar þeirra gegna lykilhlutverki í kjarnorkuvopnastefnu ríkisins, en Úkraínumenn létu nýjustu útgáfur véla í friði til að forðast að gefa Rússum tilefni til að segja að þeir væru að reyna að veikla kjarnorku varnir landsins. 

Að auki markar aðgerðin fyrsta dæmið um samhæfða „drónasveims“-árás á landi, eitthvað sem lengi hefur verið spáð fyrir en aldrei áður framkvæmt með þessum hætti. Enn ein sönnun þess að Úkraína er á undan í nýtingu hernaðarþróunar.

Fyrsta árás sinnar tegundar

Aðgerðin vakti spurningar um hvort önnur ríki séu að þróa sambærileg árásar- eða varnarúrræði, þar sem þetta var fyrsta árás sinnar tegundar. Varnir gegn henni reyndust engar – tja, ef maður mínusar frá gúmmídekkin á vængjunum. Rússnesk stjórnvöld beindu athyglinni tafarlaust að lestarslysi sem gerðist sama dag og drógu úr umfangi árásarinnar. Pútín kallaði úkraínska stjórnvöld „hryðjuverkasamtök“ og aðrir í kringum hann líktu árásinni við hryðjuverk – þrátt fyrir að hér væri verið að ræða um augljós hernaðarleg skotmörk.

Árásin hefur verið kölluð stefnumótandi augnablik í stríðinu – jafnvel í hersögunni. Milljarðar dollara í tjóni og breytt strategísk staða Rússa fyrir svipað verð og Trump ver í að fara golfhring. Zelensky lýsti árásinni sem „algerlega úkraínskri“, til að undirstrika getu Úkraínu til að slá til baka án vestrænnar aðstoðar. Trump sagði aðeins að „Pútín þyrfti líklega að svara fyrir þetta“ og líkti svo stríðinu við leik tveggja barna. Merz, kanslari Þýskalands, hafnaði því strax á fundi með forseta Bandaríkjanna og lagði áherslu á að þetta væri árásarstríð – og yrði þannig litið á það af hálfu Þýskalands.

Svar Rússa kom fljótt – stór árás á Kyiv með fjölmörgum drónum og eldflaugum. Fimm létust, þar af þrír slökkviliðsmenn, og um tuttugu slösuðust. Yfir 1000 drónum og eldflaugum hefur verið beint að Úkraínu síðustu daga. En aðeins tvær sprengjuflugvélar tóku á loft strax daginn eftir árásina – tíu hefðu líklega gert það ef restin hefði ekki brunnið upp.

Áhrifin af Köngulóarvefnum halda áfram að malla.

Handrit

1.409 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Aðgerðin Köngulóarvefurinn

Við enduðum síðustu skýrslu á því að segja frá aðgerð öryggisþjónustunnar SBU, sem hafði verið undirbúin í eitt og hálft ár. Aðgerðin bar heitið Köngulóarvefurinn og var undir persónulegri stjórn Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, og Vasil Maljúk, yfirmanns öryggisþjónustunnar.

Þegar ég tók upp þann hluta höfðu árásirnar nýlega átt sér stað, bara rétt um morguninn. Upplýsingar voru á reiki og mikið var að koma inn, þannig að ég ákvað að bíða í viku, safna gögnum og skoða gervihnattamyndir og telja þoturnar sem voru eftir, og reyna að staðfesta það sem ég er að segja.

Markmiðið var að slá gegn rússneskum flugvöllum og lama flotann af strategískum sprengjuflugvélum. Í 18 mánuði smyglaði úkraínska öryggisþjónustan sérhönnuðum FPV-drónum, sem nefndir voru vespur og báru um 3 kíló af sprengiefni, yfir rússnesku landamærin.

Þeim var svo komið fyrir í þaki gámahúsa sem litu út eins og smáhýsi eða litlir sumarbústaðir. Okkur er sagt að verksmiðjan hafi verið staðsett við hliðina á SBU-skrifstofunni í Lviv. Flutningarnir voru svo framkvæmdir af rússneskum bílstjórum sem SBU hafði ráðið í gegnum gerviverktaka innanlands, gjörsamlega grunlausum um hvað þeir væru að flytja.

Bílstjórarnir lýsa allir svipuðu ferli. Þeir voru ráðnir í venjulegt verkefni rétt áður en þeir komu á áfangastað. Þá fengu þeir símtal um að stöðva við vegkant eða bensínstöð, og fulltrúi fyrirtækisins myndi mæta þeim og fylgja þeim á áfangastað.

Um leið og vörubílarnir stöðvuðu þeyttust þökin af og drónarnir tóku á loft, einn af öðrum, í átt að skotmörkum sínum. Alls voru þeir 117 talsins, hver með sinn stjórnanda, en með möguleika á að stýra þeim með úkraínskri gervigreind.

Hver bíll stöðvaði nálægt mikilvægustu herflugvöllum Rússlands, þar sem megnið af strategískum flugflota landsins var geymt. Drónarnir flugu hratt og lágt til að forðast ratsjárgreiningu og héldu beint að skotmörkum sínum. Í lokasprettinum, ef tengingin rofnaði vegna truflana á samskiptum með einhvers konar rafbúnaði eða truflana á GPS, hóf hver þeirra árásina án hindrana.

Fjórir flugvellir urðu fyrir árás: Belaja, Olenja, Djagilevo í Rjazan-héraði og Severnyj í Amúrhéraði, yfir 8.000 kílómetra frá Úkraínu, var einnig skotmark, en sú árás mistókst strax í upphafi.

SBU sagði að hún hefði hitt 41 flugvél, um þriðjung sprengjuflugflota Rússlands. Það eitt er fordæmalaust. En athugið: þeir sögðu „hittu“, ekki „gerðu óvirkar“. Þetta er engu að síður einn stærsti ósigur Rússa hingað til í stríðinu, ef ekki sá stærsti.

Og það besta er að enginn úkraínskur hermaður lést við framkvæmdina og enginn var handtekinn. Margir líkja þessu við Pearl Harbor Rússa. Ég myndi nú kannski ekki alveg ganga svo langt, en það er ekki fjarri lagi.

Ég eyddi vikunni í að kafa í opinberar gervihnattamyndir sem birtust eftir árásina og reyndi að meta skaðann eftir bestu getu. Ég verð reyndar ekki einn um það; fullt af fólki er að gera nákvæmlega það sama. Á miðvikudag birti SBU samsett myndband með upptökum frá drónunum sjálfum, þar sem sést að skaðinn er greinilegur.

Sumir töldu að allt að 16 vélar hefðu verið gerðar óvirkar, en eftir að hafa skoðað myndbandið og ný gögn get ég sagt með vissu að talan er hærri. Ég legg þessa tölu fram út frá þeim gögnum sem mér hafa borist, þó hún gæti reynst hærri.

En eins og leikar standa nú, viku eftir árás, get ég svona lauslega talið menn staðfesta eftirfarandi vélar sem annaðhvort eru brunnar upp eða munu líklega aldrei fljúga aftur. Flestar eru gamlar, ekki lengur framleiddar og viðgerð á þeim er því nær ómöguleg, eða stór hluti þeirra varð fyrir óafturkræfum skaða. Viðgerðir myndu taka mörg ár.

Samtals tel ég að 25 vélar séu óstarfhæfar, líklega til frambúðar. Hér er uppfærslan eins og hún stendur nú hjá mér: sjö Tu-95-sprengjuflugvélar, þær eru gerðar óvirkar; þarftu að sprauta sumar af með vatnsslöngu. Fjórar Tu-22M3-sprengjuþotur líka gerðar óvirkar. Ein An-12, líklega gerð óvirk, þar sem flutningavél. Níu Tu-22-þotur til viðbótar eru skemmdar mismikið og óvíst hversu mikið, en þær eru ekki alveg gerðar óvirkar. Svo voru tvær Beriev A-50-eftirlitsvélar skemmdar, líklega ekki hægt að gera við þær. Þær vélar eru gífurlega mikilvægar.

Fyrir Rússa er þetta óbætanlegt. Tvær Tu-95-vélar skemmdust líka, en ekkert er hægt að meta umfang tjónsins eins og er. Ég er nokkuð viss um að þessar tölur eigi ekki eftir að lækka. Hvað þýðir þetta fyrir stríðið í Úkraínu?

Áhrif árásarinnar á stríðið

Númer eitt: Hæfileiki Rússa til þess að skjóta stýriflaugum inn í Úkraínu hefur verið lamaður, sérstaklega til skemmri tíma. Þeir þurfa nú að endurskipuleggja flutninga og viðhald á þeim vélum sem eftir eru. Þeir hafa enga vörn gegn svona árás, sem getur átt sér stað hvenær sem er í Rússlandi. Nú þegar er herinn að leita í vörubílum um land allt í grennd við vallaflugvelli í leit að næsta Köngulóarvef.

Númer tvö: Kannski ekki alveg eins augljóst, en engu að síður mikilvægt. Valdbeiting Rússa í tengslum við kjarnorkuógnina hefur fengið einhvern hnekki. Þeir fljúga reglulega upp að landhelgi Bandaríkjanna. Úkraínumenn létu nýjustu útgáfur flugvélanna algjörlega ósnertar, þar sem um nýjustu útgáfur sprengjuflugvéla var að ræða, og þannig forðuðust þeir að Rússar gætu haldið því fram að fælingarmáttur þeirra væri rofinn.

Númer þrjú: Úkraína hefur verið fyrst með margt í þessu stríði. Þetta er stærsta dæmið til þessa: fyrst með sjódróna til þess að sökkva skipum, fyrst með dróna til þess að skjóta niður þyrlur og orrustuþotur frá sjónum, nú fyrst með skipulagða árás með drónasveimi á skotmörk djúpt inni í Rússlandi. Hugmynd sem lengi hafði verið spáð að einhver myndi framkvæma, en hafði aldrei áður verið framkvæmd.

Ef við tökum árásina í aðeins stærra samhengi þá standa herir heimsins frammi fyrir tveimur spurningum: Er verið að þróa sambærilegt árásarkerfi hjá okkur og hjá óvinum? Og eru til varnarkerfi hjá okkur eða hjá óvininum gegn slíkum aðgerðum? Ég get sagt ykkur það að svarið í flestum tilfellum er nei. Þá er ég líka að tala um Bandaríkin, Breta og Þýskaland, þá sem eiga peninga.

Úkraína framkvæmdi fyrstu árásina af þessu tagi. Varnir gegn henni voru engar, fyrir utan gúmmídekkin á vængjunum og nokkrar grindur sem voru lagðar utan á flugvélina til að dreifa athyglinni. Rússnesk stjórnvöld sneru sér strax að lestarslysinu. Pútín hélt svo fund 4. júní og beindi nánast allri athygli að slysinu. Þar sagði hann að stjórnvöld í Úkraínu, sem áður náðu völdum með valdi, sem greinilega voru ekki kosin í lýðræðislegri kosningu, væru smám saman að breytast í hryðjuverkasamtök.

Þrátt fyrir að hafa augljós hernaðarleg skotmörk á meðal okkar, greinenda, blaðamanna og þeirra sem eru að fylgjast með þessu, hugsandi fólks, prófessora og annarra spekúlanta, er þetta stefnumótandi augnablik í stríðinu og jafnvel í hersögunni. Milljarðar dollara brunnu og strategísk mynd Rússlands gjörbreyttist fyrir svipaðan kostnað og að fylgja Trump í nokkra golfhringi.

Zelenskí lýsti niðurstöðunni sem algjörlega frábærri og algjörlega úkraínskri, til þess að undirstrika að Úkraína væri fær um að slá vel til baka án mestrar aðstoðar Trumps. Eftir símtal við Pútín sagði Trump ekkert um árásina nema að hann þyrfti líklega að svara fyrir hana núna. Á fundi með Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, líkti hann stríðinu við slagsmál barna í garði: „Stundum sérðu tvö lítil börn berjast eins og brjálæðingar og verður bara að leyfa þeim að berjast. Það þýðir ekkert að slíta þau í sundur. Þau verða bara að fá að leysa þetta sjálf.“

Hann reyndi ítrekað að ramma átökin inn sem deilu á milli tveggja jafnrétthárra aðila, en Merz brást skjótt við og lagði áherslu á að þetta væri árásarstríð og yrði metið sem slíkt af Þýskalandi. Eins og Trump hvatti Pútín nánast til þess að gera það, kom svarið fljótt: Öflug árás. Já, hún var stærri varðandi fjölda skotflauga og dróna, en áhrifin af Köngulóarvefnum voru augljós: aðeins tvær sprengjuflugur tóku á loft í stað til dæmis 15.

Viðbrögð við árásinni

Fimm létust í Kíev, þar af þrír slökkviliðsmenn við störf sín. Í kjallara, dökkur ljós toppöld, teppaárás, og 20 til viðbótar slösuðust. Rússneskir herbloggarar fylgja yfirleitt línu stjórnvalda, en stundum fá þeir svigrúm til að gagnrýna. Ég hef aldrei séð eins beinskeytta gagnrýni frá þeim eins og eftir þessa árás.

Flestir eru sammála um að þetta hafi verið versti ósigur Rússlands hingað til. Aðrir létu orðin fjúka beint að forsetanum, eins og við sjáum í þessu myndbandi.

Strætóið honum takist það, misþyga sig út um glugga á næstu mánuðum. Hjónin hlupu minni á bað. Þeirra fyrstu skotflugurnar voru á leið til Kíf.

Við bjuggum um okkur þar og biðum þar til mesta hætta var liðin hjá. Við...

Sjáum til hvað næsta vika ber í skauti sér. Vonandi meiri sáfn fyrir mig liðheil. Þangað til næst. Það er það.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    „Kæruleysi sem varð dóttur minni að bana“
    Fréttir00:45 ·

    „Kæru­leysi sem varð dóttur minni að bana“

    „Það hefur ekki liðið einn auðveldur dagur“
    Fréttir00:24 ·

    „Það hefur ekki liðið einn auð­veldur dagur“

    Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
    Áskrift
    Fréttir09:39 ·

    Syrgj­andi for­eldrar Hönnuh þakk­lát Íslandi

    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1