Árásin aðfar­arnótt 17. júní

Ég get gengið undir sprengjuregni allan daginn, valsað um skurðgrafir á eftir hermönnum og sofið í bíl undir tré með stórskotaliðskúlur fljúgandi á milli fylkinga – en það eru augnablik eins og þessi sem sitja eftir í huganum.
· Umsjón: Óskar Hallgrímsson

Við enduðum síðustu skýrslu á umfjöllun um árás úkraínsku öryggisþjónustunnar, SBU, á rússneska herflugvelli í umfangsmikilli aðgerð sem bar nafnið Köngulóarvefurinn.

Við höfum haft fókusinn á stóru myndina, ekki átökunum á jörðu niðri í Úkraínu – þó ekki að ástæðulausu. Ég hef ítrekað bent á að þetta stríð er ekki, og verður ekki, bundið víglínunni innan landamæranna.

Mulningstríð Rússa mætir harðari vörnum og hver kílómetri kostar þá sífellt meira í mannskap og tækjum. Vinir mínir segja það sama um alla víglínuna: fáliðaðir Rússar keyra að vörnum og eru teknir út með stórskotaliði eða drónum.

Sumir ná að koma sér fyrir, setja upp varnir og færa sig fram um nokkur hundruð metra í einu. Akurlendi þar sem línan hefur legið mánuðum saman er nú þakið vef úr þunnum ljósleiðaraþráðum.

Í flestum skýrslum sem ég les daglega frá OSINT-sérfræðingum er vígvellinum lýst sem algeru blóðbaði. Rússar reyna að færa sig fram með misjöfnum árangri.

Ég sé loksins merki um „Defence in depth“ – lagskipta vörn með skriðdrekagildrum, vírum, jarðsprengjubeltum og fleira. Verkefnið er yfirgripsmikið og aðeins unnið á fáum lykilstöðum. Allt of seint að mínu mati – en þó skref í rétta átt.

Að mínu mati hefur Úkraína ekki burði til gagnsókna – hvorki búnað, skotfæri né mannskap. Þess í stað hefur hún hert varnir á flestum vígstöðvum, aukið fjárfestingar í margskonar drónahernaði og lætur Rússa borga dýru verði fyrir hvern kílómetra.

Styrkur Úkraínu í augnablikinu liggur í langdrægum árásum á hernaðarleg skotmörk – bæði innan Rússlands, eins og í aðgerðinni sem kennd er við Köngulóarvefinn.

„Næstum á hverri nóttu er svefninn rofinn – suð í drónum, loftvarnarhvellir og sprengingar“

Úkraína hefur einnig sótt að fleiri mikilvægum skotmörkum innan Rússlands – þar á meðal efnaverksmiðju sem framleiðir sprengjuefni, verksmiðju sem framleiðir íhluti fyrir vopnaiðnaðinn, drónaverksmiðjur og fleira í þeim dúr.

Til að bæta upp fyrir hægan gang á vígvellinum og hefna fyrir tap á strategískum mannvirkjum, bæði í Rússlandi og á herteknu svæðum, hafa Rússar í auknum mæli beint árásum að almennum skotmörkum.

Frá byrjun júní og fram til 17. júní voru 3.340 drónum og 135 eldflaugum skotið á borgir víðs vegar um Úkraínu. Næstum á hverri nóttu er svefninn rofinn – suð í drónum, loftvarnarhvellir og sprengingar.

Degi fyrir þjóðhátíðardag Íslendinga, 16. júní, hittust leiðtogar G7 í Kanada. Trump sat aðeins einn dag á fundinum og fór svo heim til Washington. Hann sagðist þurfa að einbeita sér að ástandinu í Miðausturlöndum. Daginn eftir áttu leiðtogarnir að ræða Úkraínu – Zelensky hafði flogið 5.000 mílur til að hitta forseta Bandaríkjanna, sem lét hann ekki vita að hann hygðist yfirgefa fundinn.

Það sem verra var: sendinefnd Bandaríkjanna hafnaði sameiginlegri yfirlýsingu ríkjanna um stríðið í Úkraínu – hún taldi hana of and-rússneska. Hún beitti neitunarvaldi við lækkun hámarksverðs á rússneska olíu og hafnaði nýjum viðskiptaþvingunum gegn Rússum með þeim rökum að þær „kostuðu fullt af peningum“ og gætu truflað framtíðarviðræður.

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada og fundarstjóri, gaf út yfirlýsingu sem hann kallaði „Chair’s Summary“ – eða ágrip formanns – að líkindum til að hlífa Bandaríkjunum formlega við þátttöku í sameiginlegri niðurstöðu. Þar notaði hann orðræðu sem öll aðildarríkin sem sátu eftir að Trump yfirgaf fundinn náðu að sameinast um.

Kanada og Bretland kynntu nýjar refsiaðgerðir og stuðningspakka til Úkraínu og sögðu í yfirlýsingunni að skuldbinding þeirra stæði óhaggað – þrátt fyrir að sameiginleg yfirlýsing G7 hafi ekki náðst.

„Pútín virtist taka þessu sem grænu ljósi til að halda áfram árásum óhikað á almenna borgara“

Í símtölum sem Trump hefur átt við Pútín telur hann Pútín vera tilbúinn í friðarviðræður og gefa yfirlýsingu um tveggja vikna afdráttarlausan frest eftir hvert samtal – sem svo virðist renna út í hvert skipti án refsiaðgerða frá Bandaríkjunum.

Pútín virtist taka þessu sem grænu ljósi til að halda áfram árásum óhikað á almenna borgara og hóf þá þriðju stærstu samþættu dróna- og eldflaugaárás stríðsins aðfaranótt 17. júní – ein sú lengsta og erfiðasta hingað til, allavega fyrir okkur hér í Kyiv.

Ég vakti nær alla nóttina. Í níu klukkutíma dundu háværar sprengingar og suð í drónum mátti heyra víða um borgina, ásamt nær látlausum hvellum í loftvarnarbyssum. Ég og konan mín bjuggum um okkur á baðherberginu í enn eitt skiptið og dvöldum þar nær alla nóttina.

Alls voru 472 drónar og eldflaugar notaðar í árásinni. Loftvarnir skutu niður 428 þeirra – þrátt fyrir hátt hlutfall ollu þeir samt óbærilegum skaða fyrir borgara.

Yfir vikuna sem ég hef unnið að því að safna efni og staðfesta það sem fram kemur í skýrslunni hefur dánartalan hækkað dag frá degi – nú eru 28 látnir og 140 særðir.

Í Solomianskyi-hverfinu féll heill stigagangur í níu hæða íbúðablokk þegar skotflaug skall á bygginguna. Í stað þess að rjúka af stað, ósofinn, á vettvang árásarinnar, ákvað ég réttilega að vera kyrr. Fljótlega birtust myndir frá björgunaraðgerðum sem stóðu fram á kvöld.

Á myndunum frá aðgerðum mátti sjá stóran hóp aðstandenda sem biðu í von um að einhver kær komi út á lífi. Ein fjölskylda stóð sérstaklega upp úr – full örvæntingar og með von í augunum um að sonur þeirra fyndist. Þegar hann fannst og var dreginn undan rústunum, látinn, hnigu þau saman úr sorg og reiði.

Ég skrifa vanalega ekki um að hlutir hafi áhrif á mig persónulega – þó ég ætti líklega að gera það meira. Ég hefði líklega ekki umborið að vera vitni að því. Að sjá sársauka þeirra með berum augum allan daginn, ósofin eins og þau og öll við hin, og svo enda hann á sjón sem þessari.

Ég get gengið undir sprengjuregni allan daginn, valsað um skurðgrafir á eftir hermönnum og sofið í bíl undir tré með stórskotaliðskúlur fljúgandi á milli fylkinga – en það eru augnablik eins og þessi sem sitja eftir í huganum.

Bandarískur ríkisborgari lést í húsinu á móti. Skemmdir urðu á leikskóla, heimavist, fjölbýlishúsum og fjölda íbúða.

Seinna kom í ljós, samkvæmt borgarstjóra Kyiv, að sumar flauganna sem beint var að íbúðabyggðinni báru klasasprengjur – eitthvað sem ég hef ekki séð áður í höfuðborginni, en margoft í framlínuborgum.

Þegar Trump steig úr flugvélinni í Washington og var spurður um árásina, sagðist hann ekki vita hvaða árás væri í gangi – hann hafði ekki heyrt neitt ennþá. Meira en tveir tímar voru liðnir frá árásinni. Hann sagðist þurfa að „athuga málið.“

Daginn eftir var útnefndur sorgardagur í höfuðborginni. Við hjónin eyddum restinni af 17. júní í rúminu – að lokum setti ég símann minn á hljóðlaust og tók hann ekki upp aftur fyrr en daginn eftir þegar ég hóf skrif á handritinu að myndbandinu hér fyrir ofan.

„Eins og leikar standa nú klukkan þrjú var verið að ná níundu látnu manneskjunni úr rústum fimm hæða fjölbýlishúss sem féll saman er skotflaug lenti á því“

Nú hefur tæp vika liðin síðan þá, árásum hefur haldið linnulaust áfram. Ég eyddi nóttinni í nótt til dæmis á baðherbergisgólfinu og í annað skipti síðan ég hóf vinnu að skýrslunni. Bara í nótt voru 339 drónar, 11 Iskander/KN-23 og 5 Iskander-K skotflaugar send í átt að Kyiv. Af þeim 368 var 354 skotið niður, 6 hittu skotmark og 25 ollu skemmdum – eldur kviknaði á jafn mörgum stöðum.

Eins og leikar standa nú klukkan þrjú var verið að ná níundu látnu manneskjunni úr rústum fimm hæða fjölbýlishúss sem féll saman er skotflaug lenti á því. Vitað er um 28 sem eru alvarlega slasaðir, þar á meðal börn og ólétt kona.

Að því virðist beinast meirihluti árásanna að borgarlegum skotmörkum.

20. júní kom Pútín fram í Pétursborg og ítrekaði enn á ný að markmið hans varðandi Úkraínu hefðu ekki breyst frá fyrsta degi. „Ég hef sagt það margsinnis – Rússar og Úkraínumenn eru ein þjóð og í þeim skilningi er öll Úkraína okkar,“ sagði hann – hvort sem þeim líkar það betur eða verr.

Árásir sem þessar eru einfaldlega hryðjuverk – tilgangurinn er að hræða. Við berjumst gegn því með því að lyfta hökunni. Við syrgjum þá sem látast, finnum til með særðum og syrgjum með fjölskyldum fórnarlambanna – auðvitað. En það er annað en að leyfa ótta að vinna. Nei, við höldum áfram. Þangað til þessu lýkur – í hvora áttina sem það fer.

And so it goes…

Handrit

1.561 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Staðan á vígstöðvunum

Í síðustu tveimur skýrslum hef ég verið að greina frá árás úkraínsku öryggisþjónustunnar, SBU, á herflugvelli víða um Rússland í stórri aðgerð sem bar heitið Köngulóarvefurinn. Aðgerðin hefur þvingað Rússa til að færa stóra hluta Tu-160-flotans til flugstöðva langt austur, eins og til Tjúkótku og Tatarstan, stöðva sem eru nær Boston en Kyiv. Þetta gerir Rússlandi kleift að tryggja að þriðji hluti kjarnorkuþríforksins sé að hluta til öruggur.

Við höfum lengi lítið fjallað um stríðið sjálft hér á jörðinni í Úkraínu og haft fókusinn svolítið utan landamæranna, þó ekki að ástæðulausu. Ég hef reynt að benda á að stríðið í Úkraínu er ekki og verður ekki bundið við víglínuna innan landamæra landsins. En ef við færum fókusinn aftur inn fyrir landamæri Úkraínu sést að stríðið hefur breytt um ham enn á ný. Það er ennþá mannlíkt stríð.

En mannlíkt stríð Rússa mætir harðari vörnum Úkraínu og hver kílómetri kostar þá sífellt meira, bæði í mannskap og tækjum. Vinir mínir segja það sama: víða um víglínuna eru fáliðaðir Rússar, tíu, tuttugu í einu kannski, að keyra á varnirnar. Þeir eru teknir út með stórskotaliði eða drónum, en sumir ná að koma sér fyrir, setja upp varnir, fara sig fram nokkur hundruð metra í einu og bíða eftir að fleiri komist að.

En línan hefur legið lengi og tæknin hefur þróast áfram. Drónar sem eru með ljósleiðara í eftirdragi þekja akra Úkraínu og þar sem línan hefur legið lengi, jafnvel mánuðum saman, eru nú þaktir vefþunnum ljósleiðaraþráðum, alveg eins og köngulóarvefur. Í flestum skýrslum sem ég les daglega frá óháðum sérfræðingum eða sérfræðingum í Open Source Intelligence er vígvöllunum lýst sem algeru blóðbaði.

Rússar reyna að færa sig fram með misjöfnum árangri, en flestar skýrslur enda á því að annars séu ekki merkilegar hreyfingar á vígvöllunum. Úkraína hefur ákveðið að byggja upp svokallaðan drónavegg. Við getum rætt aðeins nánar um hann síðar. En ég sé loks merki um „defence in depth“, eða svokallaða lagskipta vörn, með skriðdrekagildrum, vírum, jarðsprengjubeltum og fleiru.

En verkefnið er yfirgripsmikið og aðeins unnið á fáum lykilstöðum á yfir þúsund kílómetra framlínu, að mínu mati alltof seint, en þó skref í rétta átt. Það er mitt mat að Úkraína hafi ekki burði til gagnsókna eins og staðan er í dag, hvorki hvað varðar búnað, skotfæri né mannskap. Þess í stað hefur hún hert varnir á flestum vígstöðum og aukið fjárfestingar í margs konar drónahernaði og lætur Rússa borga dýrlega fyrir hvern kílómetra.

Við sjálfa víglínuna verja Úkraínumenn sig betur en í baklandinu liggur styrkur þeirra í langdrægum árásum á hernaðarleg skotmörk, bæði innan Rússlands, eins og þegar þeir tóku út stóran hluta sprengjuflugvélaflotans á nokkrum klukkutímum, og innan hertekinna svæða. Fjórum dögum eftir árásina á flugvellina var lest með yfir hundrað ökutækjum og þrettán skriðdrekum sprengd í Zaporizhzhia-héraði, í hertekna hlutanum.

Við höfum ekki hágæðamyndband, aðeins gervihnattamyndir, hitakort og merki um að eitthvað stórt hafi gerst, en ekki er hægt að staðfesta það að svo stöddu. Heimildir sem ég hef eru ágætlega traustar. Úkraína hefur einnig sótt að fleiri mikilvægum skotmörkum innan Rússlands, þar á meðal efnaverksmiðjum sem framleiða sprengiefni, íhluti og búnað í alls konar dróna og fleira í þeim dúr.

Árásir á almenning

Til að bæta upp fyrir hægan gang á vígvöllunum hjá Rússum og hefna fyrir töp á strategískum mannvirkjum í Rússlandi og á herteknu svæðunum hafa Rússar beint árásum að almennum borgaralegum skotmörkum og almenningi í miklu magni. Frá byrjun júní fram til 17. júní, þjóðhátíðardags Íslands, var 3.340 drónum og 135 mismunandi eldflaugum skotið á borgir um alla Úkraínu.

Hugsið ykkur aðeins: sautjánda, næstum á hverri nóttu er svefninn rofinn. Það er suð í drónum fyrir ofan höfuð, maður fellir þá með loftvarnarbyssum og háværar sprengingar heyrast þegar drónar eru skotnir niður eða ná skotmarki.

Það var gott farið yfir áður. Það var það eina kerfið sem nær að skjóta niður skotflaugar, því ef þær ná á áfangastað eru afleiðingarnar yfirleitt skelfilegar. Ég ætla ekki að telja upp hvert einasta voðaverk sem fylgt hefur í kjölfarið eftir árásina á flugflota Rússa.

G7 og stuðningur við Úkraínu

En þær eru margar og mjög hræðilegar. Þann dag, degi fyrir þjóðhátíðardag Íslendinga, 16. júní, hittust leiðtogar G7 í Kanada. Trump var aðeins einn dag á fundinum, eða jafnvel hálfan dag, og fór heim til Washington. Hann sagðist þurfa að einbeita sér að ástandinu í Miðausturlöndum.

Daginn eftir áttu leiðtogarnir að ræða Úkraínu. Zelensky hafði flogið 5.000 mílur til þess að hitta bandaríska forsetann, sem lét hann ekki vita að hann hygðist yfirgefa fundinn.

Sendinefnd Bandaríkjanna bætti gráu ofan á svart og hafnaði sameiginlegri yfirlýsingu ríkjanna um stríðið í Úkraínu. Hún taldi hana vera andrússneska, beitti neitunarvaldi við lækkun hámarksverðs á rússneskri olíu og hafnaði nýjum viðskiptaþvingunum gegn Rússum með þeim rökum að þær kostuðu fullt af peningum og gætu truflað framtíðarviðræður.

Til að reyna að bjarga andliti hinna aðildarríkjanna gaf Mark Carney, forsætisráðherra Kanada og fundarstjóri, út yfirlýsingu sem hann kallaði „chair's summary“, eða ágrip fundarstjóra, til að sleppa því að formlega Bandaríkjunum þátttöku, þar sem hann notaði orðræðu sem öll aðildarríkin höfðu sameinast um.

Fréttamenn í Kanada og Bretlandi kynntu nýjar refsiaðgerðir og stuðningspakka til Úkraínu og sögðu í yfirlýsingunni að áframhaldandi skuldbinding væri skýr, þrátt fyrir að sameiginleg yfirlýsing G7 hefði ekki náðst.

Svo eru Trump og Pútín sagðir hafa rætt saman nokkrum sinnum í síma. Trump segir Pútín vera tilbúinn í viðræður, en fái tveggja vikna afdráttarlausan frest sem virðist renna út aðgerðalaust, og hann lengist í tvær vikur í hvert skipti sem þeir tala saman.

Árásin á Kænugarð

Í síðasta símtalinu virtist Pútín taka þessu sem grænu ljósi á að hefja þriðju stærstu samþættu dróna- og eldflaugaárás stríðsins. Þótt met séu slegin hér vikulega var aðfaranótt 17. júní sú lengsta og erfiðasta hingað til. Alla nóttina fyrir okkur hér í Kyiv dundu sprengingar, loftvarnabyssur eða suð í drónum um borgina.

Konan mín og ég bjuggum um okkur á baðherberginu og sváfum þar í stutta stund. Íbúðin fylltist reykjarlykt sem lá yfir borginni. Alls voru 472 drónar og eldflaugar notaðar í árásinni. Loftvarnir skutu niður 428 þeirra, mjög hátt hlutfall, en samt komust sum í gegn og ollu óbærilegum skaða fyrir borgara.

Að minnsta kosti 22 létust, reyndar er talan komin upp í 25 núna, og 134 særðust til viðbótar í Solomjansky-hverfinu, hverfinu sem ég bý í, þar sem heill stigagangur féll í nýju háhýsi þegar skotflaug skall á byggingunni. Þar fundust 17 látnir.

Svo var talan lækkuð niður í 10, svo aftur upp í 12, svo aftur upp í 17, svo 20 og nú 25. Ég heyrði viðtal við manneskju sem var með að bjarga fólki úr stömmu og réttarmeinafræðing. Þarf að tala um að ástæðan fyrir því að þessar tölur eru oft mikið á reiki er ekki eingöngu út af því að fólk er að látast af sárum sínum, heldur er fólk oft talið tvisvar, því það er ekki að koma út úr byggingunni í heilu lagi.

Sprengingar eiga til að sprengja í sundur fleiri hluti en steinsteypu. Ég veit að þetta kannski hljómar gróft fyrir hlustendur, en þetta er raunveruleikinn okkar hér sem við búum við. Ég ákvað um morguninn að vera kyrr heima. Ég var alltof þreyttur eftir að vaka alla nóttina til að fara á vettvang.

Sem betur fer biðu aðstandendur við blokkina í von um að einhver fyndist á lífi. Ég veit ekki hvort ég hefði höndlað að bíða við foreldra sem lágu grátandi á hnjánum, algjörlega ósvefnandi eins og þau og allir í kringum okkur, í von um að sonur þeirra fyndist á lífi.

Þegar hann loks var dreginn fram látinn og fjölskyldan fékk fregnirnar hrundu þau saman úr sorg og reiði. Ég hefði ekki umborið að vera vitni að því að sjá sársauka þeirra með berum augum allan daginn, að horfa á þau hníga niður þegar fregnirnar bárust.

Ég hef sofið í bíl undir tré með stórskotaliðskúlur fljúgandi á milli stríðandi fylkinga, en augnablik eins og þessi sitja eftir í huganum og sækja stundum að mér á nóttunni. Ég fer að sofa á kvöldin og óttast daginn líka.

Bandarískur ríkisborgari lést í húsinu á móti. Seinna kom í ljós, samkvæmt borgarstjóra Kænugarðs, Vitali Klitsjko, að sumar flauganna sem beint var að íbúabyggð báru klasasprengjur, eitthvað sem ég hef ekki

Ég hef ekki séð þetta í höfuðborginni áður. Selenski kallaði árásina eina þá skelfilegustu og lýsti henni sem hreinu hryðjuverki, en hvatti Bandaríkin og Evrópu til að bregðast við af alvöru í þetta skiptið. Þegar Trump steig úr flugvélinni í Mosintún var hann spurður um árásina. Þá sagðist hann ekki vita um hvaða árás væri í gangi; hann hefði ekki heyrt neitt. Þá voru meira en tveir tímar frá því að árásinni hafði lokið.

Við hjónin eyddum restinni af 17. júní í rúminu á meðan myndirnar streymdu inn. Í hvert skipti sem við kíktum á símann setti ég símann minn á silent, en tók hann ekki aftur upp fyrr en í dag, 18. júní, sem er yfirlýstur sorgardagur af forseta landsins. Áður en ég skrifaði þessi orð: „Árásir sem þessar eru einfaldlega hryðjuverk. Tilgangurinn er að hræða okkur. Við berjumst gegn því með því að lyfta upp hökunni, halda höfðinu háu og láta ekki hræða okkur. Við syrgjum þá sem látast, við finnum til með særðum og syrgjum með fjölskyldum fórnarlambanna, auðvitað, en það er annað að leyfa honum að vinna með ótta.“

Nei, við höldum áfram og höldum áfram að vera hér þangað til þessu lýkur, í hvora áttina sem það fer. Hvað er næst? Það er…

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    „Kæruleysi sem varð dóttur minni að bana“
    Fréttir00:45 ·

    „Kæru­leysi sem varð dóttur minni að bana“

    „Það hefur ekki liðið einn auðveldur dagur“
    Fréttir00:24 ·

    „Það hefur ekki liðið einn auð­veldur dagur“

    Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
    Áskrift
    Fréttir09:39 ·

    Syrgj­andi for­eldrar Hönnuh þakk­lát Íslandi

    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1