Úkraína prófar þol­mörk Rússa

Úkraína beitti víðtækum drónaárásum til að veikja loftvarnir Moskvu fyrir hersýningu 9. maí. Á meðan sýndi Rússland samstöðu með einræðissinnum og Kína styrkti áhrif sín. Lýðræðisríki virðast á undanhaldi, sérstaklega Bandaríkin.
· Umsjón: Óskar Hallgrímsson

Dagana fyrir 9. maí var skyldi slegið yfir Moskvu, höfuðborg Rússlands. Vikuna á undan höfðu Rússar bætt við um 280 loftvarnakerfum, komið þeim fyrir ofan á og milli íbúðablokka og dreift raftruflunarbúnaði víðsvegar um borgina. Farsímanetið var að hluta tekið úr sambandi – líklega ekki til að þagga niður í mótmælendum, heldur til að villa um fyrir úkraínskum drónum sem nýta rússneska netið til að stýra sér.

Þetta var auðvitað ekki gert að ástæðulausu. Úkraína var með plan: ráðast markvisst að Moskvu dagana fyrir gönguna og að neyða Rússa til að draga loftvarnir að höfuðborginni. Láta þá halda að mögulegt væri að ráðist yrði að göngunni og Xi Jinping, forseti Kína, yrði fyrir skaða. Flestir greinendur töldu ólíklegt að Úkraína myndi taka þá áhættu – að verða valdur að dauða þjóðarleiðtoga, hvað þá Xi, og draga fleiri ríki beint inn í stríðið – en það var veðmál sem Rússar vildu ekki taka. Þeir lokuðu lofthelginni yfir Moskvu. Um leið og ljóst var að Xi var lentur – hættu árásir á borgina. 

Frá 4. til 8. maí hófst stærsta drónaárásaherferð stríðsins. Mesta árásin var 7. maí. Rússar fullyrða að 500 drónar hafi verið skotnir niður. Ómögulegt að staðfesta það. Þeir sem komust í gegn beindust að skotmörkum sem voru bæði viðkvæm og varnarsvæði sem venjulega væru betur varin: flugherstöðvarnar í Shaikovka og Kubinka, SPLAV skotfæraverksmiðjan í Túla og ljósleiðaraverksmiðjan í Saransk – sú eina í Rússlandi sem framleiðir hernaðarhæfa ljósleiðara fyrir FPV dróna.

Á sama tíma skaut úkraínskur sjódróni niður rússneska Su-30 orrustuþotu yfir Svartahafi – fyrsta staðfesta skiptið sem mannlaus dróni fellir herþotu. Þetta atvik tengist göngunni í Moskvu ósköp lítið, en það var ógerlegt að sleppa því að skjóta þessu inn.

Í göngunni sáust herdeildir frá Kína, Egyptalandi, Víetnam, Laos, Mongólíu og hinum ýmsu „stönum“. Engir norður-kóreskir hermenn tóku þátt í göngunni sjálfri – en hópur herforingja sat í stúkunni, tók í höndina á Pútín og jafnvel föðmuðu. Xi var fremstur í röðinni, við hliðina á Pútín, og öll tækifæri nýtt til að sýna þá sem hina mestu kumpána.

Í Animal Farm er talað um að sumir séu jafnari en aðrir. Xi var gullgrísinn – ef svo má segja – í röð einræðisherra og einræðishyggju-hallandi leiðtoga sem mættu til að fylgjast með göngunni. Vissulega má deila um hvort sumir í hópnum séu einræðisherrar, eða á leiðinni þangað. En ef þú sem þjóðarleiðtogi þyggur boð um að standa við hlið stríðsherra eins og forseta Burkina Fasó og styður við Rússland – þjóð sem stundar þjóðarmorð og fremur daglega stríðsglæpi í Úkraínu – þá er líklegt að stefna þín sé ekki beinlínisi í átt að lýðræði.

Verst er að Bandaríkin – sem Evrópa og önnur lýðræðisríki hafa litið til sem skjaldar fyrir lýðræðisríki – virðast færast í átt að einræðishyggju. Þjóðir sem treystu á stuðning þeirra, bæði hernaðarlega og í gegnum mjúkt vald eins og US-AID, eru nú í hálfgerðri óvissu eftir að Donald Trump skrúfaði fyrir slíkan stuðning og þær hafa þurft að leita annað. Rússland – og þá sérstaklega Kína – eru tilbúin að fylla í skarðið. En þar er oft galli á gjöf Njarðar: harðræði, spilling og – eins og í tilfelli Rússlands í Afríku – bein hernaðarleg yfirtaka á auðlindum landsins.

Í síðasta myndbandi talaði ég um stöðuna í Úkraínu og sívaxandi stuðning bandamanna Rússa. Ég nefndi Emil Hacha og hlutverk hans í seinni heimsstyrjöldinni. Nú, nokkrum vikum síðar, velti ég fyrir mér hvar við stöndum á tímalínunni. Ef sagan er ekki bein endurtekning, þá rímar hún sannarlega. Og samkvæmt því stöndum við töluvert nær Molotov–Ribbentrop-samningnum en flestir vilja viðurkenna.

Handrit

1.093 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Dagana fyrir 9. maí var Moskva umkringd loftvarnarkerfum. Vikuna á undan höfðu Rússar bætt við um 280 kerfum og komið þeim fyrir á milli íbúðablokka og dreift raftruflunarbúnaði.

Farsímanetið hafði að mestu verið tekið úr sambandi, ekki endilega til að þagga niður í mótmælendum heldur líklega til þess að villa um fyrir úkraínskum drónum.

Úkraína var með plan í höndunum að ráðast mjög á Moskvu dagana fyrir, bara til þess að opna fyrir möguleikann á því að drónið gæti komist í gegn og jafnvel drepið Xi Jinping. Þó persónulega, og það reyndist á endanum vera niðurstaðan, þá hætti Úkraína árásum beint á Moskvu um leið og vitað var að Xi færi mættur á svæðið.

Ég held að Úkraína hafi áttað sig á því að það væri alls ekki farsælt til árangurs, mögulega óvart að drepa forseta Kína. Rússland var hins vegar ekki til í að taka upp það mál og lokaði lofthelginni með eins mörgum leiðum og mögulegt var.

Það jákvæða við að draga loftvarnir frá öðrum stöðum til að verja Moskvu er að auðveldara er að ná til þeirra staða sem skyldnir eru eftir óvarnir.

Frá 4. til 8. maí hóf Úkraína eina umfangsmestu drónaárásarherferðina frá upphafi stríðs. Stærsta árásin var 7. maí víða um Rússland, en einkum í og við Moskvu. Rússar segjast þar hafa skotið niður um 500 dróna, gagnvart kostnaði gegn, og hvort sú tala sé rétt er ómögulegt að segja.

En heimildir hér í Úkraínu segja að þetta hafi verið nokkuð stór árás. Í Moskvu lokuðu yfirvöld fjórum flugvöllum ítrekað og yfir 60 þúsund farþegar sátu fastir á meðan Xi Jinping og fleiri erlendir gestir lentu degi fyrir sigurgöngu.

Meðal skotmarka voru flugherstöðvarnar á Sækófa og Kúbíanka, skotfæraverksmiðjan í Splav í Túlu og ljósleiðaraverksmiðjan í Saransk, sú eina í Rússlandi sem framleiðir hernaðarhæfa ljósleiðara sem notaðir eru í FPV-dróna. Það er nú eitt helsta vandamálið sem báðar hliðar þurfa að vinna með þessa dagana á vígvellinum.

En svo fyrir utan það þá verð ég persónulega að minnast á, þótt það tengist hergöngunni nákvæmlega ekki neitt, þá þykir mér það merkilegt að á sama tíma skaut úkraínskur sjódróni niður rússneska Su-30-orrustuþotu yfir Svartahafi, í fyrsta staðfesta skiptið sem mannlaus dróni fellir herþotu.

Göngunni var ætlað að sýna nútímaherstyrk, en hún opnaði líka reglulega líf inn í fortíðina. Eftir að Pútín tók völdin varð gangan að árlegri sýningu á botnavaldi. Hann bauð til dæmis Stjörnustöðlabúsárið 2015 og fékk NATO-herdeild til að ganga árið 2010.

Fyrri göngur voru risavaxnar, tugþúsundir hermanna, skriðdrekar, botur og kjarnorkuvopn. En eftir innrásina skrapp þetta allt saman saman. Árið 2022 til 2024 mætti aðeins einn T-34-skriðdreki og um 9.000 ungir herskyldir menn, flestir ekki á löglegum aldri til að berjast utanlands.

Árið 2024 sáu nýju þjóðarleiðtogarnir. Í ár var annað uppi á teningnum: fleiri hermenn, nýju T-34-skriðdrekarnir úr seinni heimsstyrjöld, nokkrir T-80-skriðdrekar, PT og BMP-bardagabílar, Tígr-varin ökutæki og svo auðvitað RS-24-kjarnorkuskotpallurinn.

Það virtist vera eins og sumir af þessum RS-24, sem keyrðu niður Rauða torgið þennan daginn, væru gerðir með gervigreind. Allavega virtust myndbönd sýna það, en ég er enginn sérfræðingur í þeim málum.

Einnig var að því virtist stór hópur herþotna á flugi yfir hátíðarhöldin. Ég er ekki alveg viss hversu stór hópur þá var í raun og veru, þar sem augljóst var að sumt var gert með gervigreind, en allavega sex, sýndist mér, sovéskar Su-25-þotur flugu yfir með rússnesku fánalitina í reyk á eftir sér.

Í fyrsta sinn voru árásardrónar sýndir þar, þar með talið Shahed-drónar, eða Geran-2 ef þú horfðir betur á límiðann. Þeir eru nú framleiddir innanlands í Rússlandi og árásum með þeim hefur fjölgað úr 2.000 í nóvember 2024 í 4.300 í mars. Framleiðslan hefur líklegast tvöfaldast, ef ekki þrefaldast. Ég heyri í þeim.

Hérna nánast á hverju einasta kvöldi, kif. Þegar verið er að skjóta þarna. Sigurgangan átti upphaflega að tákna sigur kommúnisma yfir fasisma í sovéskri útgáfu sögunnar. Þar sigruðu þeir nasistana einir.

Stríðið heitir ekki heimsstyrjöld, heldur hið mikla þjóðernisstríð. Í dag er þetta sýning á samtökum einræðisríkja með mismunandi styrk og stíl, stundum litlu öðru en klíku. Þegar röðin í göngunni var skýr, var augljóslega efstur Pútín. Kemur líklega þar á eftir, en aðrir, eins og forseti Búrkína Fasó, voru líka mættir.

Með því styðja þeir Rússland, sem fremur opinberlega bæði þjóðarmorð og stríðsglæpi. Það er erfitt að horfa á þetta og hugsa ekki til Bandaríkjanna. Í áratugi voru þau skjöldur lýðræðis, bæði hernaðarlega innan NATO sem leiðtogar þar og með mjúku valdi í gegnum USAID.

USAID hefur bjargað um 25 milljónum lífa í Afríku með því að berjast gegn HIV-faraldrinum. Nú ríkir óvissa og mörg ríki sem þurfa stuðning leita annað. Kína og Rússland bjóða stuðning, en oft er galli á gjöf Njarðar.

Það er yfirleitt harðræði og kúgun sem fylgir, og spilling. Í Sýrlandi fengu Rússar til dæmis 50 prósenta hlut í öllum þeim olíulindum sem þeir náðu að frelsa frá uppreisnarmönnum frá ríkisstjórninni.

Hvar erum við á tímalínunni? Hver er staðan? Er ég einhverju nær eftir þessa göngu eða eftir þennan tíma? Ég gerði síðast myndband um stöðuna í stríðinu. Línan sjálf hefur nánast ekkert breyst. Það var engin ný vopn komin frá hvorugum aðila.

Síðast talaði ég við ykkur um Hacha, sem var fyrrverandi forseti Tékkóslóvakíu. Ég talaði um þegar Hitler og Göring eltu hann um borðið með penna í hönd og báðu hann að skrifa frá sér Tékkóslóvakíu.

Hann neitaði og neitaði og neitaði og neitaði og neitaði, þangað til hann fékk hjartaáfall og hneig niður. Göring náði að vekja hann með hjálp lækna Hitlers. Hitler gekk inn.

Tók yfir Tékkóslóvakíu, tók yfir vopnin, en nokkrum mánuðum seinna gekk hann inn í Pólland. Hvar erum við á þeirri tímalínu? Ef sagan endurtekur sig ekki beint, kann hún að ríma. Ætli við séum ekki á svipuðum stað og Molotov-Ribbentrop?

En hver er að fara að koma okkur til bjargar? Er það Evrópa? Er Evrópa nægilega sterk? Nei, hún er það ekki, ekki gegn Kína og Rússlandi og Norður-Kóreu. Gegn Rússum, já, en ekki gegn Kína, Rússlandi, Norður-Kóreu og öllum þessum bandamönnum sem við sáum.

Og Evrópa er alls ekki eins samstillt og kann að vera. Við sáum einn fulltrúa frá Evrópusambandinu til dæmis vera á svæðinu, forseta Slóvakíu. En af hverju staðan er svona, veit ég ekki. Er ég bjartsýnn? Er ég svartsýnn?

Nei, já, ég er svipað sjálfsýnn og bjartsýnn og ég hef verið, síðast því ég er reyndar rólegri. Ég kom úr fríi, eins og við töluðum um síðast. En annars eru þetta skrýtnir tímar sem við lifum í. Við skulum sjá til hvað gerist þangað til næst. Takk fyrir daginn.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    „Kæruleysi sem varð dóttur minni að bana“
    Fréttir00:45 ·

    „Kæru­leysi sem varð dóttur minni að bana“

    „Það hefur ekki liðið einn auðveldur dagur“
    Fréttir00:24 ·

    „Það hefur ekki liðið einn auð­veldur dagur“

    Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
    Áskrift
    Fréttir09:39 ·

    Syrgj­andi for­eldrar Hönnuh þakk­lát Íslandi

    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1