Lokaniðurstaða ræðst þegar Rússland og Úkraína setjast að samningaborðinu
Óskar Hallgrímsson fjallar um bandamenn Úkraínu í Úkraínuskýrslu vikunnar. Hann segir óhugnanlegt að fylgjast með fundum Rússa og Bandaríkjamanna í Sádi-Arabíu, þar sem Úkraínu er haldið fyrir utan.
Úkraína hefur notið stuðnings frá bandamönnum þá einkum og í sérílagi frá Bandaríkjunum síðustu ár. Samt er ljóst að lokaniðurstaða ræðst þegar Rússland og Úkraína setjast að samningaborðinu.
Zelandia sagði nýverið í grein sem ég skrifaði nýlega í Heimildina: „Úkraína þarf ekki millimenn, heldur bandamenn sem standa við bakið á okkur í samningaviðræðum.“
Trump segist hafa rætt lengi við bæði Pútín og Zelensky eftir að hann tók við embætti. Í Truth Social-pósti talaði hann um vilja Pútíns til að semja og mögulegan fund í Sádi-Arabíu, sem Bandaríkin héldu síðan án aðkomu Úkraínu.
The Telegraph greindi frá drögum að samningi sem bárust Zelensky 7. febrúar. Þar munu Bandaríkin fá helmingshlut í auðlindum Úkraínu, innviðum og orku, auk leyfisgjalda, með veð í framtíðartekjum landsins. „Þessi grein þýðir: „Borgið okkur fyrst, og síðan getið þið gefið börnunum ykkar að borða“,“ sagði heimildarmaður The Telegraph, minnir óhugnanlega á líkindi við Holodomor.
Trump sagði við Fox News að Úkraína gæti orðið rússnesk ef hún hafnaði samningnum. Skilmálarnir virðast harðari en þeir sem Þýskaland og Japan fengu eftir 1945. Jafnvel verr en samningurinn um Versali sem gerðir voru í kjölfar fyrri heimstyrjaldar og knésettu þjóðverja.
Á Ramstein-fundi bandamanna Úkraínu kom varnarmálaráðherrann Pete Hegseth fram með þá skoðun að það væri óraunverulegt – en ekki ómögulegt – að Úkraína fengi aftur landamæri sín frá 2014. Hann nefndi mögulegt „Úkraínu-NATO,“ en útilokaði þátttöku bandarískra hermanna. Það vísar til þess að Bandaríkin vilji semja beint við Rússa, með framtíð Úkraínu í húfi, en án þátttöku Evrópu.
Stríðið er komið inn í fjórða árið. Úkraínumenn deyja daglega við að verja land sitt fyrir innrás sem vakið hefur ótal ásakanir um stríðsglæpi. Friður næðist ef Rússar drægju sig til baka, en engin teikn eru á lofti um slíkt.
Og svo skyndilega á miðvikudag hófust viðræður í Ryad í Saudi Arabíu og Trump kallaði Zelensky einræðisherra í landi án kosninga.
Ég bý í Úkraínu og hef treyst á Bandaríkin sem helsta bandamann okkar. Samt finnst mér óhugnanlegt að fylgjast með fundum Rússa og Bandaríkjamanna í Sádi-Arabíu, þar sem Úkraínu er haldið fyrir utan. Brosin á fundarmönnum þegar þeir gengu út kveikja hjá mér sérstaka blöndu af ótta og ógleði.
Handrit
3.265 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan
Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Rússland og Úkraína við borðið
Það liggur við að maður byrji þetta vídeó eins og Geir H. Haarde byrjaði sitt vídeó 2008, með því að segja: „Kæru Íslendingar.“ En já, svona staðarleikar. Markmið vikunnar var að gefa ykkur stöðutékk á því hvað var að gerast í Úkraínu. Ég var búinn að skrifa heilt handrit um stöðuna á vígvellinum sem átti að taka upp og birta síðasta föstudag.
En eins og oft áður yfirtók Donald Trump og gangur nýrrar ríkisstjórnar fréttasviðið. Aukaatburðir á öryggisráðstefnunni í München um helgina, einhliða fundur Bandaríkjanna og Rússlands í Sádi-Arabíu, viðbrögðin við því — já, ég verð að setja einhvers staðar stopp og það er hér. Allt sem gerist eftir klukkan 8.31 á föstudagsmorgni verður umfjöllunarefni framtíðarinnar.
Úkraína á sér marga bandamenn þar, framar öllum síðastliðin þrjú ár, Bandaríkin þó undir annarri ríkisstjórn, en einnig tæplega 50 önnur ríki. Samningaviðræður snúast ekki um Jaltasamninga stórveldanna eftir seinni heimsstyrjöld. Bandaríkin skipta miklu máli í stríðinu, já, en á endanum eru það Rússland og Úkraína sem setjast að borðinu til þess að binda endi á stríðið.
Eins og Zelenskí segir í nýlegri grein minni í Heimildinni, sem kom út á dögunum: Úkraína þarf ekki milligöngumenn heldur bandamenn sem standa við bakið á okkur í samningaviðræðum. En byrjum í síðustu viku. Fyrir öryggisráðstefnuna í München sagðist Trump á Truth Social hafa átt löng símtöl við bæði Pútín og Zelenskí eftir að hann tók við embætti. Hann skrifaði langan póst um samtal sitt við Pútín, þar sem hann ræddi vilja hans til að hefja samningaviðræður.
Hann segir að samtalið hafi verið níu mínútur að lengd og hægt sé að túlka það á ýmsa vegu. Ekki kemur allt fram í Truth Social-póstunum og ég mun því ekki eyða tíma í að greina orð Trumps þar, því það er ekki opinber miðill Hvíta hússins, heldur fylgjast með því sem hann og samstarfsmenn hans gera. Það sem skiptir mestu máli mun koma betur í ljós eftir því sem vikurnar líða.
Fyrrverandi erindreki KGB virðist hafa talað við Trump á bylgjulengd hans fremur en öfugt, sérstaklega þar sem þeir ákváðu að láta heilbrigða skynsemi ráða för. Þeir ræddu möguleikann á fundi í Sádi-Arabíu. Síðan þá hafa hlutirnir þróast hratt og komið hefur í ljós að fulltrúar Bandaríkjanna ætluðu að halda viðræður í Sádi-Arabíu án aðildar Úkraínu síðastliðinn þriðjudag, 18. febrúar.
Samkvæmt Truth Social-póstinum hringdi Trump í Zelenskí sama dag og hann ræddi við Pútín, í rúman klukkutíma. Lítið er vitað um samtalið, nema að J. D. Vance, varaforseti, og utanríkisráðherrann Marco Rubio myndu hitta Zelenskí á fundi í München 14. febrúar síðastliðinn. Það hefur verið fjallað um að stærðarsamningur upp á 500 milljarða dollara hafi verið gerður milli Úkraínu og Bandaríkjanna, en samkvæmt grein sem birtist í Telegraph 17. febrúar krefst Trump endurgreiðslu frá Úkraínu langt umfram stjórn á mikilvægum fágætum málmum og öðrum hráefnum landsins.
Samningur um auðlindir Úkraínu
Samningurinn sem lenti á borði Zelenskís 7. febrúar myndi veita Bandaríkjunum réttindi yfir auðlindum Úkraínu, innviðum, olíu og gasi. Hann felur í sér sjóð sem myndi tryggja að enginn annar en Bandaríkin myndi hagnast nokkuð á enduruppbyggingu eftir stríð. Bandaríkin myndu fá 50 prósent af framtíðartekjum Úkraínu og öllum leyfiskjöldum, með veð í þeim tekjum.
Það mætti segja að með samningnum hafi Trump ætlast til þess að Úkraína myndi velta sér á hliðina og verða næsta nýlenda Bandaríkjanna, þegjandi og hljóðalaust. Það virðist sem samningurinn um auðlindir landsins hafi verið saminn af lögfræðingum úr einkageiranum fremur en lögfræðingum úr utanríkis- og viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna. „Greinin þýðir: Borgið okkur fyrst, síðan gefið börnunum ykkar að borða,“ sagði heimildarmaður Telegraph.
Það er auðvelt að ímynda sér að Stalín sjálfur hafi sagt eitthvað á svipuðum nótum við bændur í Úkraínu í gegnum Holodomor. Zelenskí hafði áður lagt til að Bandaríkin fengju beina hlutdeild í auðlindum landsins til að fæla Rússa frá frekari árásum. Skilmálarnir sem nú liggja fyrir eru harðari en þeir sem Þýskaland og Japan fengu eftir 1945. Trump sagði við Fox News að Úkraína gæti orðið rússnesk einhvern daginn ef hún hafnaði samningnum. Ef Úkraína hefði samþykkt þessa skilmála hefði það verið hærra hlutfall af þjóðarframleiðslu landsins en
Fyrir Þjóðverja eftir Versalasamninginn, á meðan Rússland, árásaraðilinn, hefði sloppið án þess að greiða krónu. Hann hélt því fram að Bandaríkin hefðu þegar eytt 300 milljörðum dollara í átökin.
Þó samþykkt heildarfjárfesting þingsins í málefnum Úkraínu sé 175 milljarðar, fer brotabrot út fyrir landsteina Ameríku. Þar helst hefur verið fjárfest í innlendri vopnaframleiðslu til þess að endurbæta og nútímavæða bandarískan herafla. Vopnin sem hafa verið gefin til Úkraínu voru að stærstum hluta vopn sem annars hefðu verið afskrifuð og í raun spara bandarískum skattgreiðendum peninga til lengri tíma litið, því það kostar að farga þessum vopnum.
En við skulum fara aðeins aftur að þessum blessaða auðlindasamningi. Það er óljóst hvernig honum yrði framfylgt, þar sem meirihluti auðlindanna liggur undir víglínunni. Því þyrfti fyrst að benda enda átökin, færa svo herlið frá svæðinu í sitt hvora áttina til þess að ná til auðlindanna, síðan hreinsa milljónir jarðsprengja og annarra ósprunginna skotfæra. Selenskí hefur nú þegar hafnað því að gera slíkan samning, hvorki nú né til frambúðar, enda sagðist hann ekki eiga þessar auðlindir. Fólkið í Úkraínu á þær.
Yfirlýsingar Hegseth um frið
En við skulum fara aftur að munnlegri opnunarræðu Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á samráðsfundi bandamanna Úkraínu í svokölluðum Ramstein-fundi. Hún vakti athygli. Þar flutti hann fyrstu alvöru yfirlýsingu Bandaríkjanna um varnarstefnu þeirra undir stjórn Trumps. Þar byrjaði hann á að þakka fyrir sig, tala um vináttu og þakklæti, síðan undirstrika stefnu Bandaríkjanna: „Blóðsúthellingin verður að enda.“
Sammála, líklega eru allir sammála því hér. Hann sagði að eina leiðin til varanlegs friðar væri að tengja saman styrk bandalagsins og raunverulegt mat á vígvöllunum. Punktur. Hér erum við sammála upp að vissu marki, en líklega ósammála um niðurstöðu mats þeirra á vígvöllunum, svokallað BDA eða Battle Damage Assessment.
Hingað til, að mínu mati, hefur þetta ekki verið gert meðal bandalagsríkja. Bætin og morgunmálarráðið netið lagði of mikla áherslu á að forðast stigmögnun. Í áraraðir biðu bandalagsríkin eftir afgerandi leiðtogaákvörðun sem kom aldrei. Þess í stað var endalaust þrasað í bollaleggingum mánuðum saman eftir að beiðni barst frá Úkraínu, bæði í fjölmiðlum og annars staðar, áður en bárust Úkraínu vopn löngu eftir að þau hefðu verið nauðsynleg, ber að segja, þegar þau hefðu skilað árangri.
Opinberaði þetta fimbulfamb Rússum nægan tíma til þess að undirbúa sig, enda fylgdi ferlið alltaf sömu formúlu: bón, þráfl, bið, svo veiting. Rússar voru því ávallt að einhverju leyti viðbúnir, sérstaklega fyrir gagnárásina sumarið 2023.
Hegseth talaði sífellt um raunverulegt mat á aðstæðum. Mitt raunverulega mat á aðstæðum — og ég held að það komi engum á óvart sem fylgist með því sem ég hef að segja — er að helsta ástæðan fyrir því að stríðið sé nú að stíga inn í sitt fjórða ár sé stigmögnunarstefna. Evrópuþjóðir fengu ekki nægilega alvarlega viðvörun um það sem er handan við hornið. Þá er ég að tala um almenning, og treysti of mikið á síveru Bandaríkjanna, bæði í NATO og sem leiðtoga varnarmála álfunnar. Ég ætla hér með að kalla þetta „þetta reddast örugglega“-stefnu Evrópu.
Ef þetta er það sem hann á við, þá er ég sammála. Já, ég meina, góðir punktar um þörfina, en hvernig ætlarðu að leysa vandamálið? Hann kemur aðeins inn á það seinna, en hér kastar hann fyrstu sprengjunni, sem blaðamenn hafa verið að bíta vel í síðan fyrir helgi.
Hegseth sagði að það væri óraunhæft markmið að fara aftur að landamærum Úkraínu fyrir 2014. Ég veit að hann vandaði til orða sinna hér. Hann notaði orðið „óraunhæft“ en ekki „ómögulegt“. Eins og staðan er núna, með þau vopn sem Úkraína býr yfir og þann mannskap sem til er og verður þjálfaður í náinni framtíð, er það óraunhæft markmið, ekki ómögulegt, en óraunhæft.
Hann ítrekaði að öryggistryggingar milli Úkraínu og Rússlands þyrftu að vera nægilega traustar til að tryggja varanlegan frið. Þeir vildu ekki … minnst þrjú komma núll. Ókei, frábært. Núna erum við farin að tala saman.
NATO og öryggistryggingar
Hann ítrekaði einnig að niðurstaða samningaviðræðna yrði sú að Úkraína fengi ekki NATO-aðild. Mér fannst hann orðræðuna þannig að sumir gætu haldið að aðild Úkraínu að NATO væri ekki lengur á borðinu.
Það er að segja ekki á neinu borði. Nei, orðrétt sagði hann að niðurstaða þessara samninga væri líklega ekki NATO-aðild, enda væri það fáránlegt. Aðild að NATO er annað ferli á milli annarra aðila, en það er hægt að setja það á borðið að Úkraína sæki ekki um NATO-aðild.
Það mun hún þó aldrei samþykkja nema önnur öryggistrygging, jafnörugg og 5. grein sáttmálans, sé tryggð fyrir þá sem viðhalda friðnum, hvað sem kæmi út úr þessu. Samkvæmt því sem Hegseth sagði yrði samkomulagið bæði að vera tryggt með evrópskum og utan evrópskum hermönnum. Mér sýnist hann vera að opna dyrnar fyrir allan þann hóp ríkja sem vill vera með, til þess að mynda einhvers konar Úkraínu-NATO, eingöngu til þess að vernda Úkraínu.
Ég meina, þegar ég heyrði þetta þá var ég bara: „Frábært, þetta hljómar vel.“ En því miður fer hann hér algjörlega út af sporinu og í raun setur allar þjóðir innan bandalagsins á afturlappirnar. Hann segir að þær þjóðir sem tækju þátt í friðargæslu yrðu ekki lengur verndaðar af 5. grein NATO.
Engin NATO-þjóð er til í að leggja 5. grein sáttmálans niður til þess að vernda Úkraínu. Ef svo væri væru Pólland, Ísland eða Litháen löngu komin í stríðið með Úkraínu. En það myndi þýða að afsala sér vernd gegn árásum á borgir sínar. Þess vegna hafa Pólland og aðrar Eystrasaltsþjóðir vígbúist nær stöðugt í þrjú ár, sérstaklega Pólland, sem verður með stærsta her Evrópu eftir Úkraínu árið 2026.
Engin þjóð í NATO er að fara að taka þátt án verndar 5. greinar. Til þess þyrfti að breyta eða bæta við klausu um friðargæslu í NATO-samninginn. Það mun ekki fara að gerast; allar þjóðir yrðu að samþykkja það. Það er einfaldlega ekki raunhæfur möguleiki.
Og svo, til að kóróna yfirlýsinguna, sagði hann að bandarískir hermenn myndu ekki taka þátt í þessu samkomulagi. Ókei, ég skil það, en það þarf að semja við aðrar þjóðir um að skrifa undir bandarískan samning með Bandaríkin við borðið og engar aðrar þjóðir viðstaddar, en Bandaríkin og Rússland, án þess að Bandaríkin taki nokkra áhættu eða taki þátt í verndinni og njóti af samningnum. Þarna minnti hann mig alveg, hugsa ég, og líklega restina af samstarfshópnum, á að þeir ásamt Rússum halda að Jalta sé enn í gildi.
En tími stórvelda til þess að ákveða örlög fullvalda og frjálsra ríkja í Evrópu er liðinn. Hornsteinar alþjóðakerfisins, sem byggðist upp eftir seinni heimsstyrjöldina, verða fyrir aftöku. Evrópa var í rústum þegar Jalta var ákveðið. Að mínu mati var margt í orðum Hegseth satt: Evrópa þarf að taka sig á. Staðan er alvarleg.
Það væri frábært ef fólk myndi hætta að deyja og friður kæmist á, en ég ítreka og endurtek: Það eru Rússland og Úkraína sem sitja við samningaborðið. Það eru Úkraínumenn sem eru að deyja á hverjum degi til þess að verja land sitt eftir tilefnislausa, ólöglega innrás Rússa inn í Úkraínu.
Það eru hræðilegir stríðsglæpir framdir af Rússum í Úkraínu nær daglega. Vissulega deyja Rússar líka töluvert fleiri, ef marka má flestar talningar, en það var þeirra ákvörðun að ráðast ólöglega inn í landið. Gleymum því ekki: Byssurnar gætu þagnað á morgun ef Pútín drægi herlið sitt til baka inn fyrir landamæri sín. Þá gerðust hlutirnir hratt.
Vance gagnrýnir Evrópu
Stuttu eftir viðræður Hegseth við kollega sína í bandalaginu kom varaforseti Bandaríkjanna, J. D. Vance, fram fyrir blaðamenn og sagði að helsta vandamál Evrópu væri ekki Rússland heldur Evrópa sjálf. Hann nefndi sérstaklega brot á frjálsri orðræðu í Bretlandi. Hann var á móti því að öfgahægrieldveggur væri til staðar í Evrópu, því það stæði gegn öllu tjáningarfrelsi.
Þó eru þeir nú sjálfir, í fyrsta skipti síðan Joseph McCarthy sótti landa sína til saka fyrir tengsl við kommúnista, með lista yfir bönnuð orð innan allra ríkisstofnana. Það eru bönnuð orð í menntakerfinu. Þeir hafa lokað stofnunum hægri og vinstri vegna meintra mannréttindabrota, en það er tilefni í annað myndband.
Það var merkilegt á varnarráðstefnu, sem sérstaklega var ætlað að verja varnarstefnu bandalagsins um málefni Úkraínu, að hann talaði nánast ekkert um Úkraínu. Ég held hann hafi minnst á hana einu sinni. Ræðan um öryggi Evrópu hljómaði eins og hún hefði átt að fara fram fyrir bandaríska kjósendur á kosningafundi, en hefði óvart endað á öryggisráðstefnu um Úkraínu.
Hann lagði upp með að Evrópa ætti í raun ekkert að vera að hugsa neitt sérstaklega mikið um Rússland, heldur einbeita sér að eigin vandamálum, innflytjendum og tjáningarfrelsi. Eftir ráðstefnuna sagði hann í viðtali að hann væri nokkuð viss um að Bandaríkin hefðu hvort eð er aldrei verið sérstaklega viljug til að taka Úkraínu inn.
Í NATO hvorki undir Biden né þá sérstaklega undir Trump. Ég verð að vera sammála því. Utanríkisráðherra Rússlands, Sergej Lavrov, sagði fyrir viðræðurnar: „Ef Evrópa vill halda áfram með stríðið í Evrópu, af hverju ætti henni að vera boðið að taka þátt í samkomulagi?“ Það er ekki satt.
En eftir að stjórnvöldum í Evrópu varð ljóst að þeim yrði ekki boðið að taka þátt í viðræðum í Sádi-Arabíu lýstu leiðtogar Þýskalands, Bretlands, Póllands, Spánar, Danmerkur, Svíþjóðar og fleiri ríkja því yfir að þeir hygðust koma saman í París, ásamt leiðtoga NATO, Mark Rutte, og forseta Evrópuráðsins, Ursula von der Leyen, til þess að halda nýjar viðræður í ljósi aðstæðna.
Evrópa leitar leiða
Eftir ráðstefnuna í Ríad komu yfirlýsingar hver af annarri um stuðning Evrópu við Úkraínu. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir að hann væri tilbúinn að leggja til breska hermenn sem friðargæslulið.
Svíþjóð og fleiri þjóðir eru líklegar til að fylgja í kjölfarið með svipaðar yfirlýsingar. Starmer ítrekaði að hann myndi fljúga til Washington á næstu dögum til að ræða við Trump og leggja áherslu á að engar viðræður sem innihéldu ekki Úkraínu við borðið væru ásættanlegar.
Slíkt myndi einfaldlega þýða að samþykkja stöðu Rússlands um að Úkraína væri ekki fullvalda þjóð. Nánar um það seinna. Yfirlýsingar um að Evrópa myndi standa saman bárust frá hinum ýmsu aðilum fyrir ráðstefnuna nærri Ríad.
Flestar voru á þeim nótum að staðan væri virkilega alvarleg, að Pútín og Trump gætu komist að einhliða samkomulagi og að Trump myndi á endanum leggja einhvers konar samning fyrir Evrópu sem útilokaði þátttöku Bandaríkjanna, og Evrópa gæti þurft að standa ein.
Svo kom einhver hugmynd um að Sameinuðu þjóðirnar gætu stigið inn, eins og þær gerðu á tímum Kósóvó á sínum tíma, ekki bara sem eftirlitsaðilar heldur með alvöru herafla og alvöru vopnum til þess að tryggja að friður haldist.
Spurningin er hvernig það myndi líta út, eða hvort til þess kæmi, en ekkert slíkt hefur verið rætt innan þeirra dyra hingað til, þar sem Rússland hefur neitunarvald í öryggisráðinu.
Ef málið færi fyrir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna myndi það útiloka Rússland frá því að nýta neitunarvald sitt. En ef við komum aftur að raunveruleikanum þá var það líklega ómögulegt, þar sem Rússland á marga bandamenn innan Sameinuðu þjóðanna og þeir væru nokkuð gulltryggðir. Það myndi ekki ganga í gegn.
Sumir horfa til Joint Expeditionary Force, eða JEF, sem er norður-evrópskt fjölþjóðlegt hernaðarsamstarf. Það samanstendur af Bretlandi og Norðurlöndunum, Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, Eystrasaltsríkjunum Eistlandi, Lettlandi og Litháen og Hollandi.
Ísland er þar á meðal, þó óljóst sé hvað við getum lagt til, en einhvers staðar erum við hluti af því bandalagi. Síðan eru ríkin í JEF, með Bretland í fararbroddi, með kjarnorkuvarnir, nuclear umbrella, eins og við köllum það, háþróað og þjálfað viðbúið herlið og reyndar hinar þjóðirnar líka, og góða command and control, eða stjórnunarmiðstöð.
Viðræður Bandaríkjanna og Rússlands
Svo aftur til Ríad. Eftir um fjögurra klukkutíma viðræður kom utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, með tilkynningu um að Rússland og Bandaríkin ætluðu að vinna náið saman að friðarsamkomulagi í Úkraínu.
Ríkisstjórn Trumps virðist ætla að fara fram hjá fórnarlambinu í þetta skiptið, semja við þá sem hófu blóðugasta stríð í Evrópu síðan í seinni heimsstyrjöld, opinberlega án afsakana eða afneitunar fyrir að fremja daglega stríðsglæpi, allt frá því að senda flugskeyti í fjölbýlishús eða taka úkraínska stríðsfanga af lífi.
Þegar Rubio var spurður hvað hefði komið fram á fundinum sagði hann að Trump hefði einfaldlega gert það sem enginn hefði þorað síðustu þrjú ár: að fá Rússland að einhvers konar samningaborði.
En stemningin var mun líflegri hinum megin við borðið. Það má segja að Rússar hafi verið himinlifandi og lýst fundinum, samkvæmt nýjasta, sem gleðilegu spjalli.
Dmitrijev, sem er stjórnarformaður rússneska þjóðarsjóðsins, sagði: „Það var mikið um brandara og hádegisverðurinn var nokkuð bragðgóður.“ Herra Dmitrijev sagði fyrir fundinn að bandarísku olíufyrirtækin hefðu stór tækifæri í Rússlandi og að þeir væru vissir um að þau vildu á einhverjum tímapunkti koma aftur.
„Af hverju í ósköpunum ættu þeir að ganga fram hjá tækifærunum sem Rússland er að gefa þeim í náttúruauðlindum?“ Já, af hverju í ósköpunum ættu þeir að ganga fram hjá alþjóðalögum, þjóðarmorðum, landamærum og réttlæti?
Marco Rubio ræddi við blaðamenn eftir fundinn og lýsti þriggja þrepa áætlun til þess að hefja afnám þvingana á milli Rússlands
Bandaríkin sögðu að fyrst yrði hafist handa við að stækka sendiráð landanna eftir mörg ár af aðgerðum þar sem starfsfólki í ráðuneytunum var fækkað. Í öðru lagi myndu löndin ræða hvaða breytur væru til staðar til að enda stríðið í Úkraínu. Það var mjög óljóst. Í þriðja lagi, sem mér finnst vera hrollvekjandi, sagði Rubio: „Það verður samráð við Úkraínu og samstarfsaðila okkar í Evrópu og aðra, en á endanum verður rússneska hliðin ómissandi við þessa viðleitni.“
Evrópa er tilbúin að veita Úkraínu öryggistryggingar samkvæmt Mark Rutte. Það er merkilegt að leiðtogi NATO, sem venjulega fylgir Bandaríkjunum í einu og öllu, virðist nú skyndilega vera hluti af Evrópuhópnum, enda Evrópubúi sjálfur.
Samkvæmt Telegraph, sem vitnar í þýsk fjölmiðlaskrif, er Evrópusambandið að undirbúa vopnapakka upp á 700 milljarða dollara til að senda til Úkraínu. Hann verður þó ekki tilkynntur fyrr en eftir þýsku kosningarnar, þann 23. febrúar. Stóra spurningin fyrir Evrópu núna er hvað hún ætlar að gera, hvort hún sé tilbúin til að setja saman einhvers konar bandalag. Þátttöku í varnarsamstarfinu er lokið í NATO? Hvað með vinsamleg samskipti eða viðskiptasambönd?
Lögmæti Zelenskís og viðbrögð
Það sem virðist vera að koma frá Sádi-Arabíu frá rússneskum embættismönnum er í grundvallaratriðum það sama og þeir hafa sagt í öryggisráðinu og annars staðar: Pútín sé tilbúinn að tala við Zelenskíj, en ekki fyrr en skýrt hafi verið hvort hann hafi lagalegan rétt til þess að semja fyrir hönd þjóðarinnar, þar sem engar kosningar hafi verið haldnar í landinu. Þetta er endurtekin taktík til að kasta efa á lögmæti Zelenskíjs sem leiðtoga Úkraínu. Lagalega séð gilda herlög í Úkraínu. Þau eru samþykkt af úkraínskum þingmönnum, sem eru lýðræðislega kosnir í lýðræðislegum kosningum.
Samkvæmt þeim lögum situr forseti Úkraínu í embætti á meðan þau eru í gildi. Það er samkvæmt stjórnarskrá. Þetta eru bara punktar sem eru síendurteknir í sífellu til að sá efasemdum um lögmæti Zelenskíjs sem forseta. En hann er forseti og verður þar til herlögum er aflétt, og þá munu kosningar svo sannarlega fara fram. Úkraína er frjálst lýðræðisríki, en áróðurinn virkar.
Sundurlyndi í Bandaríkjunum kórónaðist að lokum í einhvers konar grand finale. Ég dytti til við þá álagsins. Zelenskíj ber á móti þessu, sagði Trump að Zelenskíj væri einræðisherra án kosninga. Zelenskíj ætti að hafa hraðar hendur, annars ætti hann ekki eftir að eiga neitt land eftir. Ég verð að setja stopp einhvers staðar. Það er ágætt að gera það hér.
Þetta verður örugglega úrelt þegar það lendir hjá ykkur, en athugið: Fyrir mig, sem manneskju sem býr í Úkraínu og hefur treyst á Bandaríkin sem stærsta bandamann okkar, fyllir það mig af furðulegri blöndu af ótta og ógleði að sjá brosin og gleðina á andlitum þeirra sem gengu út af fundinum í Sádi-Arabíu. Það er það, það er það, það er það.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir