Margir vildu lýsa stöðunni í lok árs 2023 sem pattstöðu, sem fyrir mér hljómar eins og skák í lamasessi. Ekkert hreyfist, allt stopp.

Stríðandi fylkingar skiptu þá, eins og nú, oft aðeins nokkrum metrum eða kílómetrum á dag. Kostnaðurinn, sérstaklega fyrir Rússa, var gífurlegur fyrir hvern unninn metra. Hundruðir manna og þúsundir sprengja féllu hvern einasta dag.

Fram í lok desember 2023 höfðu Rússar beitt aðferð, sem þeir lærðu er þeir tóku yfir Bakhmut, að senda menn í opinn dauða í svokölluðum kjötbylgjum. Í desember 2023 er talið að Rússland hafi tapað um 20.000 manns og yfir 600 ökutækjum bara í tilraunum til að ná yfirráðum yfir framlínu borgarinnar Avdiivka með þeirri aðferð.

Hinn vinsæli Valeriy Zalushnyi var skipt út sem yfirmanni hersins og sendur til Bretlands. Við tók Oleksandr Cyrski, ekki eins vinsæll og bar viðurnefnið „Slátrarinn.“

Napóleon sagði að herir marsera á maganum. Þeir ganga þó einnig á skotfærum, mannskap, loftvörnum og vilja – helst góðri blöndu af öllu saman. Það var ekki tilfellið í febrúar 2024 fyrir Úkraínumenn, og fyrsta stóra borgin eftir Bakhmut sem féll í hendur Rússa var Avdiivka.

Avdiivka varð stökkpallur fyrir árásir á bæi og borgir síðar á árinu. Hefði Úkraína fengið mannskap og vopn hefði þróunin getað snúist við – kannski ekki lykillinn að Donetsk-fylki, en ansi nálægt því.

Eftir fall borgarinnar opnuðust margar leiðir fyrir Rússa til að halda áfram aðgerðum á svæðinu með stefnuna á Pokrovsk. Þegar þeir mættu sterkri mótstöðu á einum stað, færðu þeir þrýstinginn á annan.

Í byrjun mars hófu Tékkar átak til að leita að og kaupa skotfæri fyrir stórskotalið úkraínska hersins. Þjóðir víða um heim, þar á meðal Ísland, tóku þátt í átakinu, sem var í fyrsta skipti sem Íslendingar veittu beina hernaðaraðstoð í stríði.

Úkraínu vantaði ekki aðeins skotfæri heldur einnig mannskap. Flestar herdeildir höfðu ekki fengið frí í rúm tvö ár, og álagið hafði tekið sinn toll á hermennina.

Að lokum, 24. apríl, eftir mánuði af deilum milli forseta, öldungadeildar og fulltrúadeildar, var 61 milljarður dollara í aðstoð til Úkraínu samþykktur í bandaríska þinginu. Aðeins dögum seinna fóru vopn og birgðir að streyma inn á vígstöðvar, en það tók marga mánuði að fylla upp í skarðið sem hafði skapast.

Þann 6. ágúst hófu Úkraínumenn óvænta innrás í Kúrsk-hérað í Rússlandi. Aðgerðin kom öllum að óvörum, sérstaklega Rússum, þar sem engar varnir, skurðir eða hindranir voru til staðar. Rússar höfðu ekki búist við að Úkraína myndi ráðast inn í Rússland sjálft – kannski skjóta flugskeytum yfir landamærin, en ekki meira.

Á nokkrum dögum, gegn litlum sem engum vörnum, tóku Úkraínumenn yfir 1.000 ferkílómetra í Rússlandi. Þaulskipulögð leyni­aðgerð í anda Cyrsky náði nær öllum hernaðarlegum ætlunarverkum sínum á örfáum dögum.

Óljóst er hvers vegna ákveðið var að fara inn í Rússland, líklega til að minnka þrýsting á önnur svæði í Úkraínu með því að draga herlið þaðan. Ef það var veðmálið, þá misfórst það.

Mulningsherferð Rússa hélt áfram í september og október, sérstaklega með þrýstingi í kringum Toretsk, Niu York og Pokrovsk.

Virkisborgin Vuhledar var næst að falla, og þrýstingurinn á aðra staði hefur aðeins aukist síðan þá.

Eftir fall Vuhledar komst Rússland á sitt mesta skrið á svæðinu á árinu og tók yfir meira landsvæði í október einum saman en allt árið á undan samanlagt.

Í byrjun október bárust fregnir af því að Norður-Kórea hefði sent um 3.000 hermenn til Rússlands, en suðurkóreska leyniþjónustan uppfærði síðar töluna í um 12.000.

Mikill kvíði ríkti í Úkraínu fyrir niðurstöðum bandarísku forsetakosninganna í nóvember. Óvíst var hvað myndi gerast ef Donald Trump yrði forseti, þar sem stefna hans gagnvart Úkraínu var óljós. Ég hafði áhyggjur af yfirlýsingum hans um að stöðva allan stuðning, tengslum hans við Pútín og fleira.

Að lokum var Trump kjörinn forseti í annað sinn, og spurningin á allra vörum er hvað mun gerast er hann tekur við embætti. Hvað sem gerist er eitt ljóst: Stefnan sem var í gangi var ekki að virka. Stigmögnunarstjórnun Bidens, og líklega Harris, hefði haldið áfram. Til að binda enda á stríðið þarf stórar og afgerandi breytingar – í hvora áttina sem líður.

Staðan við framlínuna um áramót er sú að Rússar viðhalda þrýstingi á helstu stöðvum en taka á sig gífurlegt mannfall – nær tvöfalt meira en á sama tíma í fyrra.

Hvað árið framundan ber í skauti sér er alger ráðgáta – em eitt er víst það mun líklega ráðast í Washington frekar en í Kyiv.

Handrit

2.798 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Staðan og langdrægar árásir

Komið sæl. Hér er síðari hluti annálsins um árið 2024. Í þetta skiptið förum við yfir stöðuna á vígvellinum. Mér fannst það vera viðeigandi að ég væri í gallanum. Við skulum sjá hvað ég næ að duga lengi.

Margir vildu lýsa stöðunni í lok árs 2023 sem einhvers konar pattstöðu. Stríðandi fylkingar skiptu þá, eins og nú, aðeins oft nokkrum metrum eða kílómetrum á dag. Kostnaðurinn ...

Fyrir Rússa var hann gífurlegur. Fyrir hvern unninn metra var það augljóslega ekkert frosið við átökin sjálf. Fram í lok desember 2023 hafði Rússland beitt aðferð sem þeir lærðu er þeir tóku yfir borgina Bakhmut: að senda menn út í opinn dauðann í svokölluðum kjötbylgjum.

Bara í desember 2023 er talið að Rússland hafi tapað meira en 20.000 manns og yfir 600 ökutækjum í tilraunum til þess að ná yfirráðum yfir framlínuborginni Avdívka með sömu aðferð. Ég skil samt hvað fólk á við: ekkert gengur, línan hreyfist ekki.

Staðan í janúar var vægast sagt alvarleg, en eins og Megas sagði: Það sem er vont, það á til að versna. Árið 2024 sýnir það glöggt. Við hefjum þessa upptalningu 2. janúar, sama dag og Rússar gerðu eina stærstu og blóðugustu loftárás á landið. Þá tóku þeir þátt í stærstu fangaskiptum hingað til.

248 vel nærðir Rússar í ágætu ásigkomulagi gegn 230 glorsveltum Úkraínumönnum, sem flestir báru merki um ofbeldi, hungursneyð, jafnvel pyntingar. Þetta er sjón sem við hér, ótrúlegt en satt, erum farin að venjast: Úkraínumenn að koma til baka úr haldi í hræðilegu ástandi sem minnir einna helst á þá sem sluppu úr útrýmingarbúðum nasista, á meðan Rússar eru yfirleitt í góðum holdum eftir mannúðlega meðferð í úkraínskum fangabúðum, sem virðast fara eftir Genfarsáttmálanum um meðferð stríðsfanga.

Þann 14. janúar kom Úkraína Rússum að óvörum og skaut niður Beriev A-50-stjórnflugvél yfir Asófhafi, fulla af ómetanlegum og óbætanlegum hátæknibúnaði ásamt sérþjálfuðu starfsfólki.

Þið verðið að afsaka, ég get ekki verið með hjálm á mér endalaust. Það er óþarfi að vera með hann hérna í þessu. Ég ætla nú bara að sýna hvernig þetta lítur út. Skulum við sjá hvað ég endist lengi í brynjunni.

Það sem gekk upp hjá Úkraínu árið 2023 að mestu leiddi það sama á árinu 2024: langdrægar árásir með nýrri tækni, bæði heima gerðri og sóttri að utan. Gátu þeir skotið dýpra inn í Rússland og ráðist á viðkvæmari skotmörk þegar árið leið. Sama gildir um innlenda drónaframleiðslu.

Í lok árs 2023 voru Rússar að framleiða fimm sinnum fleiri árásardróna en Úkraína, en í lok árs 2024 hafði Úkraína að öllum líkindum náð þeim eða jafnvel farið fram úr þeim í framleiðslugetu.

Nei, ég hugsa að ég fari líka úr brynjunni. Það er svolítið sniðugt: tekur hann bara einfaldlega að sér svona með því að toga niður og síðan smeygir maður bara fyrir úr henni og skellir inn á gólfið. Þetta er gert til þess að yfirskyldi slasast á vígvellinum. Ef ég er með sár eða eitthvað, þá er auðvelt að klæða mig úr henni. Það tekur ekki nema nokkrar sekúndur.

Storm Shadow og ATACMS ollu usla, en ekki nægilega miklu til þess að snúa við. Á sama tíma fengu Rússar langdrægar skotflaugar að gerðinni KN-23 frá Norður-Kóreu. Samstarf Norður-Kóreu og Rússlands jókst verulega á árinu og um 60 slíkar flaugar voru skotnar á skotmörk víða um Úkraínu. Þrátt fyrir kraft þeirra voru þær þekktar fyrir framleiðslugalla.

Um helmingur sprakk á miðri leið eða mistókst að hitta skotmörk. Rússland hélt áfram að fá stórskotaliðsskotfæri úr geymslum Norður-Kóreu.

Þann 3. febrúar réðust Úkraínumenn á olíuhreinsistöðina í Volgograd, sérstaklega á svokallaðan þéttniturn eða kæliturn stöðvarinnar. Sérfræðingur sagði að slíkur búnaður væri nær óbætanlegur, þar sem hann er sérframleiddur í Evrópu eða Bandaríkjunum. Úkraína hefur líklega séð tækifæri til þess að valda rússnesku hagkerfi tjóni með slíkum árásum. Árásirnar á olíuhreinsistöðvarnar, einkum þéttniturnana, héldu áfram allt árið 2024.

Ný herstjórn og fall Avdíívku

Þann 8. febrúar var tilkynnt að Valerí Zalúzjný, yfirmaður hersins, hefði verið rekinn eða færður í annað hlutverk. Þetta hafði lengi legið í loftinu og það var enginn leyndarmál að Zalúzjný og Zelenskí ...

Zalúzjnyj og Zelenskí áttu grátt silfur saman árum saman. Engu að síður var ákvörðunin um að láta hershöfðingjann víkja mjög óvinsæl hér í Úkraínu, meðal hermanna og almennings. Líklega hefði Zelenskí dregið að reka hann vegna vinsældanna, en í febrúar þurfti breytingu.

Hann hélt móralnum háum meðal hermanna og almennings, brosmildur og jákvæður, alltaf að stappa stálinu í okkur. Í hans stað kom yfirmaður landhersins, Oleksandr Syrskyj, sem var þá ekki eins vinsæll meðal almennra hermanna. Vinur minn í hernum sagði mér að Syrskyj væri kallaður slátrarinn eða „tvö hundruð“, með vísun í herkóðann eða talstöðvarkóðann 200, sem er notaður um fallna hermenn á vígvellinum.

Á svipuðum tíma sagði reyndur sérsveitarmaður mér að þeir hermenn sem væru ósáttir við breytinguna á toppnum væru oft þeir sem vildu helst sitja í skurðunum, reykja sígarettur og bíða eftir að vaktin þeirra kláraðist. Hann sagði við mig: „Þetta er stríð. Við þurfum að berjast til þess að vinna, ekki sitja og bíða eftir að eitthvað gerist.“ Nú í lok árs, þegar ég lít sjálfur yfir öxl, verð ég að vera sammála.

En við lítum á stærstu aðgerðir stríðsins hingað til, eins og brottrekstur Rússa úr norðrinu og aðgerðirnar í Kharkív og Kherson árið 2022, voru þær allar skipulagðar og stýrðar af Syrskyj? Hann var einnig ábyrgur fyrir ákvörðuninni um að halda Bakhmut mánuðum saman, á meðan borgin var hægt og rólega moluð niður með gríðarlegu mannfalli beggja vegna. Þess vegna skilur maður kannski viðurnefnið.

Þann 13. febrúar samþykkti bandaríska öldungadeildin 95 milljarða dala herstyrk til Úkraínu, Ísraels og Taívan. Hins vegar tafðist aðstoðin í marga mánuði í fulltrúadeildinni, þar sem þingforsetinn og lítill hópur repúblikana vildu nota hana sem vogarafl til að þrýsta á um aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.

Þann 17. febrúar, eftir tíu ár sem framlínuborg og nú rústir einar, féll Avdíívka í hendur Rússa. Hart hafði verið barist um borgina mánuðum saman. 110. herdeild Úkraínu hafði staðið af sér síendurteknar árásir, en baráttan sýndi að aðferðir Rússa, sem þeir hófu árið áður í Bakhmut, að sækja fram í svokölluðum kjötbylgjum, virkuðu hér.

Hér var ljóst að yfirvöld í Kreml og rússneski herinn voru reiðubúin að sætta sig við gríðarlegt mannfall svo lengi sem hernaðarmarkmiðinu yrði náð. Beinum aftökum stríðsfanga sem gáfust upp fjölgaði á árinu og í lok árs voru flestir sem ég talaði við sammála um að Rússar væru alfarið hættir að reyna að taka stríðsfanga á lífi. Aftökur voru oft framkvæmdar undir berum himni um miðjan dag, teknar upp á myndband af rússneskum drónum og deilt á internetinu.

Það þýðir að hinn almenni rússneski hermaður óttast ekki Alþjóðadómstólinn í Haag eða aðra eftirmála þess að brjóta Genfarsáttmálana, eða jafnvel þekkir ekki orðið stríðsglæpur. En nóg um það. Napóleon sagði einu sinni að herir marséruðu á maganum. Þeir ganga þó einnig á skotfærum, mannskap, loftvörnum og vilja.

Avdíívka var stökkpallur fyrir árásir á bæi og borgir síðar á árinu. Hefði Úkraína fengið mannskap og vopn gæti þróunin hafa snúist við, kannski ekki lykillinn að Donetsk-fylki, en ansi nálægt því.

Þann 23. febrúar skutu Úkraínumenn niður aðra af 50 A-50 eftirlitsvélum, eina af aðeins sex sem Rússar áttu eftir. Þeir skutu niður 13 þotur á 13 dögum, sem þýðir að loftvarnir eru ekki aðeins skjöldur gegn flugskeytum heldur einnig árásarvopn.

Í byrjun mars hófu Tékkar átak til þess að kaupa og leita að skotfærum fyrir stórskotalið úkraínska hersins. Þjóðir víða um heim, þar með talið á Íslandi, tóku þátt í átakinu, sem var í fyrsta skipti sem Íslendingar veittu beina hernaðaraðstoð í stríði.

Þrátt fyrir tilraunir Evrópu til að fylla í skarðið sem Bandaríkin sköpuðu hélt alvarlegur skotfæraskortur áfram á framlínunni. Uppurnar loftvarnir höfðu hræðileg áhrif á borgir og innviði, eins og ég nefndi í síðustu skýrslu. Í mars hélt Úkraína áfram að ráðast á olíuhreinsistöðvar og sökkva skipum í Svartahafi, á meðan Rússar tryggðu stöðu sína í Avdíívka og undirbjuggu sig fyrir næstu átök.

Mannafli og orrustan um Kharkív

Úkraínu vantaði ekki aðeins skotfæri heldur líka mannskap. Flestar herdeildir höfðu ekki fengið frí í rúm tvö ár frá því að allsherjarinnrásin hófst. Álagið hafði tekið toll af hermönnunum. Zelenskí hafði barist gegn almennri herkvaðningu.

Og lækkun aldurs, en samþykkti að lokum lög um hvort tveggja þann 16. apríl, að mínu mati ári og seint. Almenn herkvaðning átti að fara fram með skipulögðum hætti og aldurstakmörkin yrðu lækkuð úr 27 í 25 ár. Að mínu mati var löngu ljóst að það sárvantaði menn í herinn, skortugur á öllu, sérstaklega mannskap.

Fyrst frétti ég af alvarlegri manneklu í byrjun árs 2023, þegar Úkraína var í hörðum átökum um borgina Bakhmút og að tapa henni á grimmilegan hátt. Ég skil að ákvörðunin sé óvinsæl. Enginn leiðtogi vill senda fólk í stríð sem leiðilega gegn vilja þess, en það var augljóst að Rússar, þrátt fyrir gífurlegt mannfall, bættu ekki aðeins fyrir tap heldur fjölguðu í liði sínu með hverjum mánuði sem leið.

Að lokum, 24. apríl, var 61 milljarður dollara í aðstoð til Úkraínu samþykktur í bandaríska þinginu. Úkraína fékk fyrstu sendingar frá Bandaríkjunum fáum dögum síðar, en það tók marga mánuði að bæta upp skortinn. Samþykkt fjárveitingar leiddi líklega til þess að Rússar voru þann tíma í maí örugglega undan áætlun. Eftir að hafa safnað gífurlegu liði norðan Kharkív-fylkis réðust þeir inn í gegnum borgina Vovtsjansk.

Harðir bardagar hófust um borgina. Fyrst gekk Rússum vel og þeir sóttu hratt fram, en Úkraínumenn einangruðu þá mest innan borgarmarka og þar stöðvaðist lestin. Verst var að Rússar gátu skipulagt sig og safnast saman í rólegheitum fyrir utan varnarmærin, utan seilingar hefðbundins stórskotaliðs, þar sem Úkraínumenn höfðu ekki heimild til þess að nota bandarísk langdræg stórskotaliðsvopn inni í Rússlandi.

Bardaginn um borgina var harður og borgin að mestu lögð í rúst. Á sama tíma virtust Rússar vera að undirbúa sig fyrir næsta stig sóknarinnar í austri, þar sem spjótin beindust að Pokrovsk, næsta rökrétta markmiði eftir fall Avdíívku. Ef við setjum hlutina í samhengi var fall Bakhmút slæmt, fall Avdíívku mjög slæmt, en fall Pokrovsk yrði katastrofískt fyrir Donetsk-fylki, þar sem flestar birgðalínur svæðisins liggja um borgina.

Í lok júní, eftir að stórskotalið Úkraínu fékk skotfæri, náði það loks að snúa vörn í sókn í Vovtsjansk. Fljótlega varð ljóst, allavega að mínu mati, að Rússar höfðu líklega aldrei ætlað sér alvarlega að ráðast aftur á Kharkív-borgina eða fylkið. Þetta var annaðhvort tálbeita eða leið til þess að binda niður stóran herafla annars staðar í landinu.

Innrásin í Kúrsk

Þann 4. ágúst síðastliðinn tilkynnti Selenskí forseti að fyrstu F-16 orrustuþoturnar væru loks komnar í hendur úkraínska flughersins eftir töluverða bið. Svo þann 6. ágúst hófu Úkraínumenn óvænta og umfangsmikla aðgerð: innrás í Kúrsk-hérað í Rússlandi.

Aðgerðin kom öllum að óvörum, sérstaklega Rússum, þar sem engar varnir, skurðir eða hindranir voru til staðar. Rússar höfðu ekki búist við því að Úkraína myndi ráðast inn í Rússland sjálft, kannski skjóta nokkrum flugskeytum yfir landamærin, en ekki mikið meira. Á nokkrum dögum, gegn litlum sem engum vörnum, tóku Úkraínumenn yfir þúsund ferkílómetra í Rússlandi.

Líklega var markmiðið að þvinga Rússa til þess að hægja á aðgerðum í Donbas og færa stóran hluta herliðs frá Pokrovsk til Kúrsk-héraðs. Ef það var veðmálið, þá misfórst það því miður. Í stað þess að senda herlið til Kúrsk styrktu Rússar sóknina í kringum Pokrovsk, á meðan 20 til 30 þúsund reyndir úkraínskir hermenn voru bundnir við svæði í Kúrsk.

Rússar sendu á endanum um 50 þúsund manna herlið á svæðið til þess að bregðast við innrásinni, sem veikti reyndar stöðu þeirra í Kharkív-héraði. Úkraínumenn náðu því aftur stærstum hluta af því sem var eftir af borginni Vovtsjansk, sem Rússar höfðu ráðist inn í í maí.

Mölinniherferð Rússa hélt áfram í september og október, sérstaklega með þrýstingi í kringum Toretsk, Niu-Jork og Pokrovsk. Eftir fall Avdíívku opnuðust margar leiðir fyrir Rússa til að halda áfram aðgerðum á svæðinu með stefnuna á Pokrovsk. Þegar þeir mættu sterkri mótstöðu á einum stað færðu þeir þrýstinginn á annan og juku þannig hraða landtöku miðað við árið áður.

Í október var staðan í Donetsk-fylki orðin alvarleg á mörgum lykilsvæðum. Spurningin var ekki hvort næsta skotmark myndi falla heldur hvenær. Og það var fljótlega ljóst. Í mánuðinum, þann 4. október, gaf yfirstjórn skipun um að yfirgefa virkisborgina Vuhledar. Eftir fall Vuhledar komst Rússland á sitt mesta skrið á svæðinu á árinu. Tóku…

Meira landsvæði í október einum saman en allt árið á undan samanlagt. Er það vegna Vuhledar, Avdíívku eða vegarins sem tengir þessi svæði saman, eða Toretsk, New York, Tsjasiv Jar, eða, eins og ég hef sagt, blanda af þessu öllu saman? Stríð er marglaga, margþátta, margátta, virkilega flókið fyrirbæri.

Í byrjun október bárust fregnir af því að Norður-Kórea hefði sent um 3.000 hermenn til Rússlands, en suðurkóreska leyniþjónustan uppfærði síðan töluna í um 12.000. Síðan þá hafa myndbönd og bein staðfesting sýnt þátttöku þeirra í átökunum í Kúrsk-héraði.

Bandaríkin og framtíð stríðsins

Mikill kvíði ríkti í Úkraínu fyrir niðurstöðu bandarísku forsetakosninganna í nóvember. Óvíst var hvað myndi gerast ef Donald Trump yrði forseti, þar sem stefna hans gagnvart Úkraínu var óljós. Ég persónulega hafði áhyggjur af yfirlýsingum hans um að stöðva allan stuðning og tengslum hans við Pútín og margt annað fleira. En líklegt var að Harris myndi halda áfram stefnu Bidens, svokallaðri stigmögnunarstjórnun, sem að mínu mati og margra annarra er meginástæðan fyrir því að við stefnum nú inn í fjórða ár stríðsins.

Hefði Úkraína fengið þau vopn sem hún hefur nú þegar fengið á þeim tíma sem hún bað um þau, í stað þess að þurfa að hnjábiðja ríkisstjórn Bidens mánuðum, jafnvel árum saman, væri staða stríðsins allt önnur í dag. Sú stefna var augljóslega ekki að ganga upp og allt benti til þess að Harris myndi halda henni áfram. Að lokum var Trump kjörinn forseti í annað sinn. Ég, eins og margir aðrir, tók andköf, en eftir tvo mánuði til þess að melta niðurstöðurnar er ég ekki eins svartsýnn.

Trump hefur valið fólk í lykilstöður hingað til sem hefur sýnt vilja til þess að senda vopn og aðstoð til Úkraínu, eins og til dæmis Marco Rubio sem utanríkisráðherra og Michael Waltz sem þjóðaröryggisráðgjafa. Hvað sem gerist, eitt er ljóst: Stefnan sem var í gangi var ekki að virka. Til þess að binda enda á stríð þarf stórar, afgerandi breytingar í hvora áttina sem það er.

Þegar niðurstöður kosninganna urðu ljósar og staðfest var að Norður-Kórea væri beinn þátttakandi í átökunum í Kúrsk gaf Biden loks leyfi til að nota langdræg vopn á skotmörk innan Rússlands. Á meðan umræðum um ósk Úkraínu um vopn stóðu yfir nýttu Rússar tækifærið og færðu sprengjuflugvélarnar sem bera ábyrgð á dauða almennra borgara úr skotfæri vopnanna.

Hefði leyfið komið strax og umræðurnar hefðu verið haldnar í leyni, hefðu líf þúsunda borgara mögulega verið bjargað. Rússar hótuðu að beita kjarnorkuvopnum, eins og þeir gera alltaf þegar Úkraína fær nýja möguleika og hæfni. Hingað til hefur engin notkun kjarnorkuvopna átt sér stað.

Fljótlega eftir það bárust tilkynningar í símann okkar um að bandaríska sendiráðið og tvö önnur væru að loka vegna áforma Rússa um notkun kjarnorkuvopna á kerfi sínu gegn Úkraínu. Eins og ég fjallaði um í síðasta annál var vopnið Oreshnik, vopn sem átti að geta flogið á milli heimsálfa en flaug aðeins 800 kílómetra og dældi steypu- og stálklumpum yfir borgina Dnipro.

Mark Rutte, nýr yfirmaður NATO, sagði að engin merki væru um að Rússar væru að gera sig líklega til þess að nota kjarnorkuvopn. Hættustigið hefur ekki aukist, staðan er óbreytt. Ég verð að vera sammála, reyndar með smá fyrirvara: Rússland hefur engin önnur þrep á stigmögnunarstiganum til þess að stíga en að beita kjarnorkuvopnum. Þetta byggi ég á skoðunum nær allra yfirmanna leyniþjónusta Evrópu og hæstu herforingja.

Kjarnorkuvopnum er hægt að beita aðeins oftar en viðkomandi kýs án nokkurra afleiðinga. Hins vegar kostar meira en það gefur af sér að beita kjarnorkuvopnum, sérstaklega sem árásarvopnum.

Staðan við framlínuna er sú að árásir viðhalda þrýstingi á helstu stöðum, en Rússar taka á sig gífurlegt mannfall, nær tvöfalt meira en á sama tíma í fyrra. Ég vil árétta að þessi samantekt er aðeins brotabrot af þeim atburðum sem hafa gerst á víglínunni eða í geopólitík sem tengjast stríðinu í Úkraínu. En hvað er að fara að gerast á næsta ári? Hvert er stríðið að stefna? Hefðirðu spurt mig að spurningu eins og þeirri...

Síðustu áramót hefði ég getað gefið þér einhvers konar gróft svar. Núna hef ég ekki hugmynd. Þetta ár hefur verið gríðarlega erfitt, bæði fyrir okkur hjónin og fólkið í Úkraínu, og auðvitað fyrir þær hetjur sem ég er búinn að fjalla hér um í þessu myndbandi. Ansi margir hafa látið lífið í baráttu fyrir frelsi.

Ég vil þakka ykkur fyrir að lesa greinar sem ég hef skrifað, horfa á myndbönd sem ég er að framleiða og auðvitað að halda áfram að kaupa áskrift að Heimildinni, svo ég geti borgað launin mín. Fyrir utan það óska ég ykkur gleðilegs nýs árs og við sjáumst í næstu skýrslu.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    „Kæruleysi sem varð dóttur minni að bana“
    Fréttir00:45 ·

    „Kæru­leysi sem varð dóttur minni að bana“

    „Það hefur ekki liðið einn auðveldur dagur“
    Fréttir00:24 ·

    „Það hefur ekki liðið einn auð­veldur dagur“

    Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
    Áskrift
    Fréttir09:39 ·

    Syrgj­andi for­eldrar Hönnuh þakk­lát Íslandi

    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1