Þegar samn­ingar eru ekki val­kostur

Í kjölfar nýlegra atburða í Washington hefur staða Úkraínu versnað enn frekar, þar sem Bandaríkin hafa beitt þrýstingi á Volodymyr Zelensky til að samþykkja friðarviðræður við Vladimir Pútín. Saga samskipta stórvelda og minni ríkja endurtekur sig, eins og dæmin sýna frá Tékkóslóvakíu árið 1939.
· Umsjón: Óskar Hallgrímsson

Svo mikið hefur gerst í alþjóðamálum tengdum Úkraínu síðustu vikur, að ég hef nánast þurft að skrifa nýtt handrit að Úkraínuskýrslunni á hverjum degi – aðeins til að komast að því að það var þegar úrelt áður en ég náði að klippa upptökurnar. Eftir þriðju tilraun gafst ég upp og blandaði saman sjónarhorni hress, nývaknaðs blaðamanns með ferskar fréttir og þess, sem svefnlaus og örmagna, reynir að taka upp handrit klukkan tvö um nótt til að ná skilafresti daginn eftir.

Skýrsla vikunnar fjallar um þá flækju sem hefur skapast í samskiptum Bandaríkjanna, Úkraínu og bandamanna þeirra; sérstaklega í ljósi nýlegra atburða í Washington. Þar niðurlægðu Trump og varaforseti hans, JD Vance, Zelensky og húðskömmuðu hann eins og tveir þunnir helgarpabbar að öskra á hávær börn sín. Trump hefur lengi beitt sömu taktík, meðal annars gagnvart Palestínu, með því að tala við sterkara afl til að þrýsta á veikari aðilann. Hann bauð Netanyahu í Hvíta húsið til að ræða framtíð Gaza án þess að taka mið af þeim sem búa í rústunum þar.

Samskiptin við Úkraínu hafa fylgt sama mynstri. Donald Trump lagði til svokallaðan „friðar“samning, sem í raun hefði þýtt uppgjöf Úkraínu – þar sem landið hefði þurft að greiða fyrir eyðilegginguna á meðan Rússland hefði ekki þurft að gefa neitt eftir. Þegar Zelensky hafnaði samningnum tók alþjóðasamfélagið afstöðu með honum. 

Þetta gerðist á sama tíma og hernaðaraðgerðir Rússa héldu áfram í Úkraínu. Nóttina eftir að Úkraína settist að samningaborðinu skutu Rússar eldflaugum á almenn skotmörk, sem sendi skýr skilaboð um að hernaðarátökin héldu áfram óháð viðræðum. Ljóst er að Evrópa þarf að efla stuðning sinn við Úkraínu, en án Bandaríkjanna skortir henni bolmagn til að veita nægjanlega hernaðarlega og fjárhagslega aðstoð.

Bandaríkin tilkynntu að vopnasendingum til Úkraínu yrði hætt og að deilingu upplýsinga yrði stöðvuð, nema úkraínskir ráðamenn samþykktu að hefja friðarviðræður. Þetta hafði strax áhrif á varnir landsins og hernaðaraðgerðir á jörðu niðri, þar sem mikilvæg gögn og gervihnattaupplýsingar hættu að berast.

Eftir að utanríkisráðherrar ríkjanna settust við samningaborð í Sádi-Arabíu til að ræða mögulegt vopnahlé, ákvað ríkisstjórnin í Washington, sem betur fer, að aflétta þvingunum gegn Úkraínu.

Í mars 1939, að boði Sir Basil Newton, sendiherra Breta í Tékkóslóvakíu, fór Hácha til Berlínar til að ræða við Hitler um framtíð landsins. Seint um kvöld bauð Hitler honum að ríkisbústaðnum en lét hann bíða einn í nokkrar klukkustundir á meðan hann horfði á kvikmynd. Að lokum, um klukkan 1.30 um nóttina, hitti Hitler Hácha ásamt Hermann Göring, yfirmanni flughersins, og tilkynnti honum að þýski herinn væri að undirbúa innrás í það sem eftir var af landinu.

Hitler og Göring öskruðu á Hácha, niðurlægðu hann í klukkutíma og buðu honum tvo kosti: annaðhvort að gefa eftir, skrifa undir og leyfa þeim að ganga inn í Prag eða horfast í augu við innrás með vopnavaldi.

Hácha neitaði að skrifa undir.

Hácha fékk hjartaáfall og hneig niður á gólfið í ríkisbústaðnum. Þetta skapaði vandamál fyrir Þjóðverja, því ef þeir réðust inn myndu þeir mæta mótspyrnu frá Tékkum, sem áttu á þeim tíma einn öflugasta vopnaiðnað í heimi – og sem Þjóðverjar höfðu nýlega gert samning við í München, aðeins nokkrum mánuðum fyrr. Hitler var ekki viss um hvort hann hefði Tékkana alla á valdi sínu.

Sem betur fer fyrir Hitler tókst lækni að koma Hácha aftur til meðvitundar – nóg til að Göring gæti otað símtóli að honum, þar sem hann neyddist til að gefa skipun um að leggja niður vopn. Þannig gengu nasistar inn í Prag án mótspyrnu.

En hvað ef Tékkar hefðu barist? Það hefði ef til vill kostað þá hálfa þjóðina – en ekki alla Evrópu. Kannski, hver veit? Helvíti stórt veðmál að taka í ríkisbústaðnum klukkan 01:30 um nótt með Hitler og Göring eltandi þig með penna í kringum borð.

Líklega var það auðveldara fyrir Zelensky að standast það sem á gekk í Hvíta húsinu, hversu erfitt sem það kann að hafa verið.

Sagan endurtekur sig ekki, en hún á það til að ríma. Að mínu mati er Úkraína í dag í svipaðri stöðu og Tékkóslóvakía í september 1938. Hácha ákvað að berjast til baka – því hann vissi, eins og Tékkarnir, að það var samningur á borðinu, bara ekki þessu borði. Stóru ríkin gerðu samning um Tékkland í München, rétt eins og í Búdapest var gerður sambærilegur samningur um Úkraínu. Báðir samningarnir áttu að tryggja vernd gegn innrás, en hvorugur stóðst loforðin. Zelensky stóð upp gegn yfirþyrmandi mótmælti – Hácha fékk hjartaáfall.

Von er góð, en óskhyggja er það sem gerir styrjöldum kleift að hefjast og halda áfram – en sjaldnast að ljúka.

Handrit

2.206 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Trump og Úkraínudeilan

Það hefur svo gífurlega margt gerst á þessari rúmu viku síðan ég hóf að vinna þessa skýrslu að ég þurfti að stytta hana um helming, bara til þess að geta bætt nýjum elementum við söguna. Ég er búinn að taka hana upp allavega þrisvar sinnum. Ég gafst upp á því, þannig að ef þið sjáið mig hoppa úr einum fatnaði yfir í annan, dagur eða nótt, og ég kannski hljóma hálf samhengislaus svona inn á milli, þá er það eingöngu út af því að ég er að reyna að sauma saman tæpar tvær vikur í alþjóðamálum.

Tæpar tvær vikur í alþjóðamálum síðan seinni heimsstyrjöldin endaði. Flest af því sem kemur fram þar er tekið upp áður en tilkynningin barst um mögulegt vopnahlé. En við skulum hefja leikinn fyrir um það bil viku síðan.

Í grein Heimildarinnar, „Leikflétta Trumps og framtíð Palestínu“, fer samstarfskona mín, Magnea Marínósdóttir, yfir hvernig Trump hefur nýtt yfirgang og háværa rödd sína. Eitt af hans fyrstu verkum í embætti var að bjóða vini sínum, eftirlýstum stríðsglæpamanni, Benjamin Netanyahu, í Hvíta húsið til að ræða framtíð Gaza án þess að íhuga milljónirnar sem búa í rústum borganna á Gazaströnd.

Hann deildi síðan gervigreindarmyndbandi af lúxusíbúðum við strendur Miðjarðarhafsins. Hið sama gerði hann við Úkraínu. Fyrsta símtalið í þeirri deilu, eins og hann kallaði það, var til Pútíns, því hann er í sterkari stöðu eins og er. Síðan sá hann hvað hann gæti gert til að þvinga fram frið og hagnast í leiðinni. Eins og við fjölluðum um í síðasta myndbandi var þetta hinn alræmdi auðlindasamningur.

Svo hræðilegur að hann var verri en Versalasamningurinn við Þjóðverja eftir fyrri heimsstyrjöld. Úkraína, fórnarlambið, átti að borga fyrir skaðann. Rússar ekki neitt. Eftir að Zelensky sagði nei og alþjóðasamfélagið lagðist gegn öllu samstarfi við Bandaríkin fóru bæði Starmer og Macron til Washington til þess að reyna að sleikja sárin hjá Trump.

Þá var okkur sagt að nýr samningur hefði verið gerður og samkvæmt öllu átti Zelensky að koma til Washington síðastliðinn föstudag til þess að undirrita hann í skiptum fyrir hernaðaraðstoð. En í staðinn gerðist þetta.

Það var svo margt sem var sagt á þessum fundi sem var rangt, ýkt, illa sett fram og gripið fram í, en ég ætla ekki að greina hvert einasta af þeim atriðum, því það var ekki það sem þeir vildu reyndar. Ég ætla þó hins vegar að leyfa mér að gera það örlítið. Fyrir mér var þetta hreint fyrirsjáanlegt. Þeir skömmuðu hann eins og tveir þunnir helgarpabbar skamma krakka að gráta hátt eftir að hafa meitt sig.

„Þú ert að stunda hættuspil upp á þriðju heimsstyrjöldina og líf milljóna. Það sem þú ert að gera er vanvirðing við þessa þjóð, þjóð sem hefur stutt þig meira en nokkur önnur, meira en við hefðum átt að gera.“

Ókei, þá heyrist skyndilega í J. D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, skjóta inn í: „Hefurðu þakkað fyrir þig einu sinni?“ Já, ég sá tölur sínar. Zelensky hefur þakkað bandarísku þjóðinni og leiðtogum hennar meira en hundrað sinnum opinberlega, allavega fyrir framan myndavélar, örugglega töluvert oftar í einrúmi. Hann er þakklátur forseti fyrir alla hjálp frá öllum, fyrir hönd þjóðarinnar.

Sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum tók hreinlega fyrir andlitið og hélt höfðinu í höndunum. Hún var mjög augljóslega miður sín yfir þessum atburði. Lýðræðislega kjörinn forseti þjóðar gengur í gegnum þjóðarmorð, en yfirlýstur bandamaður hans útskammar hann með lygum og samsæriskenningum. Svo er hann ásakaður um að vanvirða forsetaskrifstofuna, þótt hann geri ekkert annað en að reyna eftir bestu getu að svara spurningunum á heiðarlegan hátt.

Trump talar um Pútín

Svo endaði Trump fundinn öskrandi á blaðakonu sem spurði svo hljóðlega að J. D. Vance þurfti að endurtaka spurninguna fyrir hana: „Hvað ef Rússland brýtur vopnahléið?“ Svarið frá Trump var: „Hvað? Ég sendi sprengju á hausinn á þér?“ Hann brýndi gegn Obama. Hann gerir það ekki gegn mér, því hann virðir mig, Pútín.

Gekk í gegnum helvíti mikið með mér. Hann gekk í gegnum falska nornaveiði þar sem þeir notuðu hann og Rússland, Rússland, Rússland, Rússland, Rússland. Hefur einhverntímann heyrt um [óljóst]? Það var ósatt, ósatt.

Hunter Biden, djúpríkið, svindl, Hillary Clinton, Sleepy Adam Schiff. Þetta var demókratasvindl og hann, Pútín, þurfti líka að ganga í gegnum það. Og við fórum ekki í stríð. Hann var ásakaður um allt þetta.

Það kom frá Hunter Biden. Það kom frá baðherberginu á Hunter Biden. Það kom frá svefnherberginu á Hunter Biden. Ég get nú sagt ykkur það að það var viðbjóður. Hann var ásakaður um allt þetta dót.

Hersveitir Pútíns hafa slátrað fólki í stríðinu og notað kynferðisofbeldi sem stjórntæki, þar með nauðgað ungum börnum. Til eru myndbönd af því; yngsta barnið þar var tveggja mánaða. Þeir settu þetta á internetið og grobbuðu sig af því.

Ég sjálfur hef komið að nokkrum fjöldagröfum. Sú stærsta inniheldur 452 manneskjur í Ísjum, allar án kistu og mjög oft án klæða. Það er ljóst og hefur reyndar verið lengi ljóst fyrir mér. Ég hef sagt það í þrjú ár að Evrópa verði að vakna til lífsins og raunverulega fjárfesta í varnarmálum.

Evrópa og varnir Úkraínu

Það var ekki gert og hér erum við. Þriðja neyðarráðstefnan um varnarmál á þremur vikum er í gangi akkúrat núna í Brussel, þegar ég er að taka upp þetta handrit. Ísland stendur með Úkraínu. Þeir eru ekki einir. Við styðjum Úkraínu heilshugar í baráttu þeirra fyrir réttlátum og varanlegum friði gegn tilefnislausri og ólöglegri árás Rússlands.

Koalísjón of the willing, eða hvað sem það ætti að kallast, Evrópa hefur ekki hernaðarlega burði til þess að verja Úkraínu ein og sér. Starmer sagðist ætla að halda áfram að veita aðstoð, lofaði skóm á jörðinni og flugvélum í loftinu, það er að segja eftir að friðarsamningur hefur verið undirritaður.

Macron var sammála í ræðu sem hann flutti á miðvikudagskvöld, á svipuðum nótum. Hann vildi vera skýr: Úkraína er fórnarlambið, Rússland er árásaraðilinn. Möguleikinn á því að framlengja kjarnorkuvernd Frakklands hefur verið til umræðu, og sterkar yfirlýsingar hafa komið um það.

Hann var skýr: Verjast þangað til Úkraína getur samið um frið við Rússa, frið sem er traustur fyrir þau sjálf og okkur öll. Friedrich Merz, sem er verðandi kanslari Þýskalands, er almennt talinn mun herskárri en Scholz og hefur óskað eftir því að veita Úkraínu þrjá milljarða evra í viðbót í gegnum þýska þingið.

Hvergi í neinum umræðum er talað um að árásaraðilinn, Rússland, þurfi að greiða einhvers konar gjöld fyrir enduruppbyggingu. Af hverju erum við að stofna sjóð frá Evrópusambandinu fyrir enduruppbyggingu Úkraínu? Bandaríkin gáfu svo út yfirlýsingu seinna í vikunni um að þau myndu stöðva allar vopnasendingar og deilingu á öllum upplýsingum til Úkraínu þar til Rússland og Úkraína væru tilbúin að ganga að samningaborðinu.

Ég fékk skilaboð frá virkilega áreiðanlegum heimildarmanni, sem ég fór svo og hitti. Við fórum í göngutúr og fórum að [óljóst] þar sem við stoppuðum. Hann sagði mér að myndir og gervihnattagögn hefðu hætt að koma í miðri aðgerð hjá Úkraínumönnum.

Hann, ásamt mörgum erlendum aðilum sem eru hér í Úkraínu til þess að aðstoða Úkraínumenn við varnir þeirra, var annars vegar bannað að deila gögnum sem þeir hefðu aðgang að og hins vegar voru þeir kallaðir heim sama dag. Allar aðgerðir sem þeir voru þátttakendur í voru settar á ís. Úkraínumenn voru svo hverjir sem blindir í þó nokkurn tíma.

Bandarísk gögn og vopnasendingar

Einhver gögn fóru inn á öðrum sambærilegum gervihnöttum, ásamt leyniþjónustugögnum í Evrópu, og hafa síðan þá farið að flæða aftur inn. Enginn hafði búist við því að þessi aðgerð myndi ganga svona hratt yfir og ekki gefa Úkraínu neinn möguleika til þess að aðlagast breyttum aðstæðum. Hvað segir þetta um Five Eyes, ef Bandaríkin taka einhliða ákvörðun um að hætta að deila gögnum með bandamanni, taka upp rússneskan áróður, stilla sér upp gegn bandamönnum í rökræðu, bjóða Rússum í einhliða samskipti og ganga gegn bandamönnum sínum í alþjóðamálum? Eru þau orðin öryggisógn fyrir Evrópu?

Hefði tilkynningin um þessa tilvonandi samninga milli Úkraínu og Bandaríkjanna um…

Hefði áframhaldandi vopnasending ekki komið í gær hefði ég getað sagt ykkur að þetta hefði verið stærsta gjöf sem Rússland hefði fengið í stríði frá bandamanni. Ekki skyndilegur hæfileiki til að hreyfa sig leynilega inn á ný svæði í Rússlandi, þar sem öflugt upplýsinganet Úkraínu nær ekki til þeirra, hefði verið guðsgjöf.

Hvað þá að vita til þess að það eina sem þeir þurftu að gera var að samþykkja ekki neina dagsetningu til þess að koma að samningaborðinu með Úkraínu, og Úkraína myndi á endanum vera uppiskroppa með skotfæri í loftvarnir sem þær eru háðar sendingum frá Bandaríkjunum, eins og til dæmis Patriot-kerfið.

Það hefði þýtt að Rússar hefðu haldið áfram að ráðast á innviði, borgaraleg skotmörk og sjúkrahús og því um líkt, algjörlega óhindrað. Engin vopnasending frá Íran eða Norður-Kóreu hefði jafnast á við þann hæfileika.

En sem sagt, núna, aðeins í gær, var tilkynnt að sendinefnd frá Úkraínu, þar sem utanríkisráðherrar beggja þjóða, Bandaríkjanna og Úkraínu, náðu samkomulagi um að Úkraína samþykkti 30 daga vopnahlé ef Rússar væru til í að gera slíkt hið sama.

Nánari upplýsingar um innihald samkomulagsins eru ekki komnar þegar ég tek þetta upp, en nægilegt var að lyfta kvöðum varðandi deilingu gagna á milli þessara tveggja þjóða og vopnasendingar skyldu halda áfram. Allavega var andað léttar hér í mínum heimagarði eftir þessar fregnir.

Lærdómur af München

Nú er her Rússlands í Úkraínu þrisvar sinnum stærri en hann var við upphaf innrásarinnar. Þá, við landamærin, voru þeir 190 þúsund, nú eru þeir 650 þúsund.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, orðaði það ágætlega í ræðu á landsfundi flokksins: „Ég er handviss um að sagan muni fara óblíðum höndum um þá sem láta blekkjast af því sem er raunverulega að gerast og við horfum upp á.“ Ég hef nefnilega oft minnst á að sagan á það til að ríma en sjaldnast endurtaka sig.

Í september 1938, eftir þrýsting frá Þýskalandi um Súdetaland, gerðu Bretar, Frakkar og Ítalía samning um Tékkóslóvakíu. Chamberlain kom til baka til Bretlands fagnandi með samninginn í höndunum og veifandi honum, undirritaðan fyrir hönd Tékkóslóvakíu, reyndar án þátttöku hennar, til að forðast stríð í Evrópu.

Hann var hylltur heima fyrir sem hetja í nokkra mánuði. Stjórnmálamenn höfðu tekist á við táknrænt verkefni.

Í mars 1939, að boði Nevile Hendersons, sendiherra Breta, fór Hácha til Berlínar til að ræða við Hitler um framtíð landsins. Þegar hann kom þangað ræddi hann fyrst við Joachim von Ribbentrop, þáverandi utanríkisráðherra Þjóðverja.

Síðar um kvöldið kallaði Hitler Hácha að ríkisbústaðnum og lét hann bíða einan í nokkrar klukkustundir á meðan Hitler horfði á kvikmynd. Að lokum, klukkan 1.30 um nóttina, hitti Hitler Hácha ásamt Hermann Göring, yfirmanni flughersins.

Hitler og Göring öskruðu á Hácha og niðurlægðu hann í klukkutíma saman. Þeir buðu honum tvo kosti: annaðhvort að gefa eftir, skrifa undir og leyfa þeim að ganga inn í Prag, eða horfast í augu við innrás með vopnavaldi.

Hácha neitaði að skrifa undir, með pennann á lofti. Þeir þrýstu jafnvel pennanum í hönd hans til þess að hann skrifaði undir. Hann gerði það ekki, en í staðinn fékk hann skyndilegt hjartaáfall og hneig niður á gólfið í skrifstofu kanslarans um miðja nótt.

Líklega ekki niðurstaðan sem Þjóðverjar ætluðu. Heildaryfirtaka Tékkóslóvakíu væri mögulega búin án þess að hleypa af skoti, því þeir þurftu að útskýra hvers vegna þeir voru með látinn leiðtoga landsins á gólfinu á skrifstofu Hitlers um miðja nótt í Berlín.

En eftir röð lyfjasprautna frá þýskum lækni Hitlers náðist Hácha til einhvers konar meðvitundar og hann var þvingaður í gegnum síma til að gefa skipun til Prag um að leggja niður vopn og leyfa nasistum að taka yfir landið. Hins vegar, hefði forsetinn haft næga rænu og gefið…

Skipunum að berjast ekki. Hefði hann ekki gefist upp, hefðu þeir þurft að ráðast inn í alvöru og brjóta sáttmála og fá heiminn á móti sér strax. En hann vissi að hann væri tilbúinn að mögulega mæta hermönnum Tékkóslóvakíu, en líklega ekki öllum heiminum.

Mótspyrna gegn nasistum þarna hefði getað hafist fyrr. Tékkóslóvakía hefði getað barist og hægt töluvert á nasistum, hefði það…

Sagan og friðarsamningar

Það er auðvelt að horfa á söguna með þessum gleraugum, þar sem við sögðum þá: Hún rímar oftast en endurtekur sig ekki. En ef við leikum okkur að því að hugsa: Hvar á tímalínunni eða lagalínunni erum við?

Erum við bandalagsþjóðirnar að þvinga Þýskaland til samninga árið 1919 í Versölum, eða erum við eins og Hagga gamli, hlaupandi í kringum borðið, neitandi einum kúgara að taka yfir þjóðina með pennastriki og öðrum með vopnavaldi?

Erum við Bandaríkin, sem sitjum hjá og ýtum og potum í alla, fjarlægð við hafið með alls konar stáli og peningum, og svífum inn á síðustu stundu til að hrifsa sigurinn af þeim sem börðust fyrir frelsinu? Bandaríkin lentu á ströndum Normandí í júní 1944, fimm árum eftir að nasistar réðust til Póllands.

Ég get þó sagt ykkur eitt: Ekkert af þessu hræðir mig meira en það gerði fyrir ári. Það er vissulega uggandi. Það er vonandi að þið, kæru Íslendingar, sem eruð að átta ykkur á því að réttur er raunverulegur, munið líklega ekki laga sig sjálfur, og hugsið hlýlega til okkar.

Að standa við bakið á okkur leysir nákvæmlega engan vanda. Það leysir heldur engan vanda að gera stuðningsyfirlýsingar. Það leysir heldur engan vanda að vona að þetta fari nú á besta veg. Það leysir engan vanda, því von er góð, en óskhyggja er það sem leyfir styrjöldum að hefjast og halda áfram, en sjaldnast að enda.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    „Kæruleysi sem varð dóttur minni að bana“
    Fréttir00:45 ·

    „Kæru­leysi sem varð dóttur minni að bana“

    „Það hefur ekki liðið einn auðveldur dagur“
    Fréttir00:24 ·

    „Það hefur ekki liðið einn auð­veldur dagur“

    Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
    Áskrift
    Fréttir09:39 ·

    Syrgj­andi for­eldrar Hönnuh þakk­lát Íslandi

    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1