Fjórir flokkar mynduðu meirihluta í lífeyrismálinu

Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur, Björt fram­tíð og Viðreisn mynd­uðu áfram meiri­hluta í atkvæða­greiðslu um frum­varp um breyt­ingar á líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins í gær­kvöldi. Þingmenn þess­ara fjög­urra flokka greiddu atkvæði með frum­varp­inu, 38 þing­menn sam­tals.

Málið varðar jöfnun á líf­eyr­is­rétt­indum opin­berra starfs­manna og almenna vinnu­mark­að­ar­ins, og byggir á sam­komu­lagi sem gert var fyrr á árinu. Aðilar að sam­komu­lag­inu, BSRB, BHM og KÍ, hafa mót­mælt afgreiðslu máls­ins því sam­tökin segja það ekki í sam­ræmi við sam­komu­lagið.

Það er mik­il­vægt að laga líf­eyr­is­sjóðs­kerfin okkar og jafna þau milli opin­bera vinnu­mark­að­ar­ins og hins almenna,“ sagði Björt Ólafs­dóttir þing­maður Bjartrar fram­tíðar, við afgreiðslu máls­ins í gær­kvöldi. Hún var eini þing­mað­ur­inn í þessum meiri­hluta sem tók til máls og sagði að ef ekk­ert yrði aðgert myndu iðgjöld hækka, sem þýddi tekju­skerð­ingu fyrir fólkið í land­inu. „Ég vil bara að við skoðum þetta í heild­ar­sam­hengi,“ sagði hún, og sagði málið hafa verið til umræðu frá því í haust. 

Þingmenn Pírata og Vinstri grænna greiddu ýmist atkvæði á móti eða sátu hjá við afgreiðslu frum­varps­ins, en þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar sátu allir hjá, vegna þess að vinnu­brögðin við málið voru flokknum von­brigði, sagði Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, við afgreiðslu máls­ins í gær­kvöldi.

Fimm þing­menn Vinstri grænna greiddu atkvæði gegn mál­inu en fjórir sátu hjá. Einn þing­maður Pírata, Viktor Orri Val­garðs­son, sat hjá en allir hinir greiddu atkvæði gegn mál­inu. „Málið er ekki til­búið,“ sagði Birgitta Jóns­dóttir Pírati. Smári McCarthy sam­flokks­maður hennar sagði ekki nægi­lega vel tekið til­lit til þeirra sem munu verða fyrir skerð­ingu með laga­breyt­ing­unum, og sagði einnig að vinnu­brögðin væru ekki til fyr­ir­myndar.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, sagði málið vera grund­vall­ar­kerf­is­breyt­ingu, og mjög slæmt væri að gera slíkar breyt­ingar með þeim hraða sem hefði ein­kennt afgreiðsl­una í þing­inu. Það sé umhugs­un­ar­efni hversu miklar deilur hafi skap­ast um málið, og hún telji að þingið geti gert betur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár