Cameron fundar með Sigmundi Davíð í Reykjavík

David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, mun taka þátt í mál­þingi í Reykja­vík dag­ana 28. til 29. októ­ber næst­kom­andi. Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu segir að for­sæt­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna og Eystra­salts­ríkj­anna hafa þegar þekkst boð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar til að sitja mál­þingið.

Samhliða mál­þing­inu munu Cameron og Sig­mundur Davíð funda um sam­skipti Bret­lands og Íslands og sam­starf ríkj­anna. Cameron verður fyrsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands sem kemur í heim­sókn til Íslands síðan Winston Churchill steig á hafn­ar­bakkan í Reykja­vík í ágúst 1941 þegar Bretar höf­uðu hér her­lið á stríðs­ár­unum.

Northern Futurer Forum er haldið í fimmta sinn og í fyrsta sinn á Íslandi. Mál­þingið er umræðu­vett­vangur níu þjóða, Íslands, Noregs, Sví­þjóðar, Finn­lands, Dan­merkur, Eist­lands, Lett­lands og Litháen auk Bret­lands. Á þing­inu skipt­ast þjóð­ar­leið­togar, fræði­menn og sér­fræð­ingar á skoð­unum um valin mál.

Í þetta sinn verður fjallað um skap­andi atvinnu­greinar og nýsköpun í opin­berum rekstri. Nánar má lesa um dag­skrá þings­ins á vefnum nff2015.is. Sig­mundur Davíð lætur hafa eftir sér að Northern Future Forum sé „líf­legri og óform­legri umræðu­vett­vangur en venja er til í alþjóða­skiptum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár