Rúmlega hálfur milljarður króna til viðbótar úr ríkissjóði vegna flóttamanna

Heild­ar­út­gjöld vegna útlend­inga­mála verða aðeins lægri í ár en 2017 þótt fyrir liggi að umsóknum um hæli hér­lendis muni fækka umtals­vert. Á fjár­auka­lögum er rúm­lega hálfum millj­arði króna ráð­stafað í mála­flokk­inn.

Í fjár­auka­lögum árs­ins 2019 var sam­þykkt að leggja 500 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag til að mæta auknum kostn­aði vegna þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Auk þess var fram­lag til að mæta auknum kostn­aði við flýti­með­ferð dvalar- og atvinnu­leyfa hækkað um 29,2 millj­ónir króna. Því fram­lagi er ætlað að mæta launa­kostn­aði þriggja starfs­manna sem ráða þurfti til að sinna þess­ari þjón­ustu.

[links]Í frum­varpi vegna fjár­auka­laga segir að þrátt fyrir að dregið hafi úr til­hæfu­lausum umsóknum vegna breyt­inga á reglu­verki, hafi umsóknum um alþjóð­lega vernd fjölgað. „Miklar sveiflur hafa ein­kennt mála­flokk­inn bæði hvað varðar fjölda umsókna, eðli mála, máls­með­ferð­ar­tíma og dvöl í þjón­ustu eins sem heil­brigðis­kostn­aður hefur verið stór óvissu­þáttur.“

Framlög á fjárlögum hafa dregist saman og flóttamönnum fækkað

Heild­ar­út­gjöld vegna útlend­inga­mála voru um 4,2 millj­arðar króna árið 2017. Þau áttu að lækka umtals­vert á þessu ári og sam­kvæmt fjár­lögum var reiknað með því að þau yrðu tæp­lega 3,6 millj­arðar króna. Með við­bót­ar­fram­lag­inu munu þau ekki ná því að vera jafn há og þau voru árið 2017.

[adspot]Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2019 var gert ráð fyrir að heild­ar­út­gjöld vegna útlend­inga­mála verði rúm­lega 3,6 millj­arðar króna.

Í lok nóv­em­ber síð­ast­liðnum höfðu alls 710 sótt um vernd á Íslandi það sem af er ári. Alls fengu 154 vernd hér­lendis á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins.

Það er því nokkuð ljóst að mun færri flótta­menn sæki um hæli á Íslandi í ár en á und­an­förnum árum. Á öllu árinu 2017 sóttu hér um 1.096 manns um slíkt og því stefnir í að fjöldi hæl­is­leit­enda verði tæp­lega 60 pró­sent af því sem hann var í fyrra. Þá fengu 115 flótta­menn hæli hér.

Flestir flótta­menn komu hingað til lands árið 2016 þegar þeir voru 1.130 tals­ins. Þá fengu 110 manns hæli á Íslandi.

Fyrir utan þá flótta­menn sem koma að sjálfs­dáðum til lands­ins þá tekur Ísland líka við svoköll­uðum kvótaflótta­mönn­um. Stefnt er að því að taka við allt að 75 slíkum á næsta ári, að mestu Sýr­lend­ingum sem eru staddir í Líbanon og hinsegin flótta­mönnum og fjöl­skyldum þeirra frá Kenýa.

Áður hafði Ísland tekið við sam­tals 695 kvótaflótta­mönnum á 62 árum.

Borga flóttamönnum fyrir að draga umsóknir til baka

Kjarninn greindi frá því í ágúst að Sig­ríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra vildi að Útlend­inga­stofnun fengi heim­ild til þess að greiða end­urað­lög­un­ar- og ferða­styrk til umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í til­teknum til­vik­um.

Þau til­vik sem um ræðir eru þegar flótta­maður hefur annað hvort dregið umsókn sína um vernd hér­lendis til baka eða hann hefur fengið synjun og ákvörðun hefur verið tekin um að veita aðstoð til sjálf­viljugrar heim­far­ar.

Þeim yrði þá greitt fyrir að fara frá Íslandi í tveimur greiðsl­um. Sú fyrri, svo­kall­aður ferða­styrk­ur, yrði greiddur út á Kefla­vík­ur­flug­velli. Sá síð­ari, svo­kall­aður end­urað­lög­un­ar­styrk­ur, yrði greiddur í heima­ríki við­kom­andi.

Reglu­gerð sem inn­leiddi þessar greiðslur tók gildi í byrjun nóv­em­ber síð­ast­lið­ins.

[adspot]Upp­hæð­irnar sem standa til boða sem styrkur til þess­ara aðila fara meðal ann­ars eftir því hvort við­kom­andi er barn eða full­orð­inn og hvaðan hann kem­ur. Þannig eiga full­orðnir ein­stak­lingar frá Afganistan, Íran, Írak, Níger­íu, Sómal­íu, Palest­ínu og Pakistan að fá allt að eitt þús­und evr­ur, um 123 þús­und krón­ur, ef þeir sam­þykkja að fara sjálf­vilj­ugur frá íslandi eða hafa fengið synjun á beiðni um alþjóð­lega vernd. Barn frá sömu löndum getur hins vegar fengið 600 evrur sam­tals, um 74 þús­und krón­ur.

Full­orðnir ein­stak­lingar frá Alsír, Egypta­landi, Kasakstan og Marokkó eiga að fá allt að 700 evr­ur, 86 þús­und krón­ur, fyrir að fara frá Íslandi en börn frá sömu löndum fá 37 þús­und krónur sam­tals í ferða- og end­urað­lög­un­ar­styrk.

Fylgd­ar­laus börn frá öllum ofan­greindum ríkjum geta fengið allt að eitt þús­und evr­ur, 123 þús­und krón­ur, sam­þykki þau að draga vernd­ar­um­sókn sína til baka eða að það sé þegar búið að synja þeim um alþjóð­lega vernd.

Flótta­menn frá öðrum löndum en ofan­greindum geta fengið á bil­inu 100 til 200 evrur í ferða- og end­urað­lög­un­ar­styrk fall­ist þeir á þau skil­yrði sem eru fyrir styrk­veit­ing­unni.

Þurfa að und­ir­rita skulda­við­ur­kenn­ingu

Umsókn um end­urað­lög­un­ar­styrk skal lögð fram innan tveggja daga frá því umsókn um alþjóð­lega vernd er dregin til baka eða henni synj­að. Ef umsókn um vernd er dregin til baka er Útlend­inga­stofnun heim­ilt að greiða fullan end­urað­lög­un­ar­styrk. Ef umsókn um end­urað­lög­un­ar­styrk er lögð fram eftir að ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar liggur fyrir drag­ast 100 evrur af heild­ar­upp­hæð á hvern ein­stak­ling. Ef umsókn er lögð fram eftir að úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála liggur fyrir drag­ast 200 evrur af heild­ar­upp­hæð á hvern ein­stak­ling.

Samhliða því að reglu­gerðin tók gildi fékk Útlend­inga­stofnun heim­ild til þess að greiða styrk­ina sem um ræðir á meðan styrkt­ar­veit­ingin rúm­ast innan þeirra fjár­heim­ilda sem stofn­unin hef­ur. Hver útlend­ingur hefur ein­ungis rétt á end­urað­lög­un­ar­styrk einu sinni. Í drögum að reglu­gerð­inni sagði að „sam­hliða umsókn um styrk ber umsækj­anda að und­ir­rita skulda­við­ur­kenn­ingu hjá Útlend­inga­stofnun þess efnis að hann sam­þykki að end­ur­greiða veittan styrk komi til þess að hann sæki síðar um dval­ar­leyfi hér á land­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár