Þórólfur: Samfélagslegt smit útbreiddara en áður var talið

Ellefu manns greindust með COVID-19 inn­an­lands um helg­ina, þar af voru fimm í sótt­kví.

Það er áhyggju­efni hversu margir hafa greinst með COVID-19 utan sótt­kvíar hér inn­an­lands að mati Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis. „Það mynstur sem við sjáum núna bendir til að sam­fé­lags­legt smit sé útbreidd­ara heldur en talið var,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna.

Hann sagði óvenju marga hafa greinst inn­an­lands yfir helg­ina. Á laug­ar­dag greindust sex ein­stak­lingar með veiruna, þar af þrír í sótt­kví en í gær greindust fimm með veiruna og þar af þrír í sótt­kví. Þórólfur gerir ráð fyrir að á þriðja­hund­ruð muni þurfa að fara í sótt­kví vegna smita helg­ar­innar.

Alls greindust 19 á landa­mær­unum, þar af fimmtán með virk smit. Inni í þeirri tölu eru tíu skip­verjar á súráls­skipi sem kom til Reyð­ar­fjarðar í gær frá Brasilíu. Beðið er rað­grein­ingar vegna smits­ins í skip­inu. Þórólfur gerir ráð fyrir að öll áhöfnin, alls 19 manns, sé smituð þrátt fyrir að tíu þeirra hafi greinst í gær.


Þórólfur sagði blikur á lofti varð­andi far­ald­ur­inn hér inn­an­lands. Það væri áhyggju­efni hversu margir hefðu greinst inn­an­lands utan sótt­kvíar. Hann hvatti því alla sem sýna minnstu ein­kenni að drífa sig í sýna­töku og halda sig til hlés þar til nið­ur­staða bær­ist. „Við erum enn að sjá fólk með ein­kenni COVID vera úti í sam­fé­lag­inu og mæta ekki í sýna­töku fyrr en mörgum dögum síðar,“ sagði Þórólfur

Hefur undirbúið tillögur að breyttum aðgerðum á landamærum

Líklega megi rekja upp­runa smita til landamær­anna. „Við höfum einnig verið að sjá aukn­ingu á smitum á landa­mærum og er það líka áhyggju­efni vegna þess að við höfum verið að sjá dreif­ingu frá þessum smitum á landa­mærum út í sam­fé­lagið og ég held að það geti verið upp­runi þess­ara smita sem við höfum verið að greina að und­an­förnu,“ sagði Þórólfur.

Und­ir­bún­ingur að til­lögum um frek­ari aðgerðir á landa­mærum er haf­inn og Þórólfur sagð­ist ætla að senda ráð­herra þær til­lögur á næstu dögum.

Tilkynningar um tvö tilvik blóðtappa

Alma Möller, land­læknir, hvatti fólk einnig til að fara í sýna­töku ef ein­kenni eru til staðar. Hún sagði það einnig mik­il­vægt að fólk þekkti ein­kennin sem hún svo tíund­aði: „Hósti, hiti, bein- og vöðva­verkir, þreyta og slapp­leiki, háls­sær­indi og kve­fein­kenni, skyndi­leg breyt­ing á bragð- og lykt­ar­skyni og síðan í sjald­gæfum til­fellum ein­kenni frá melt­ing­ar­vegi eins og nið­ur­gangur og upp­köst.“

Alma sagði ávinn­ing­inn af notkun bólu­efnis AstraZenica hafa verið met­inn meiri en áhættan en áhættan sé fólgin í alvar­legum en sjald­gæfum auka­verk­unum. Hún sagði áhyggjur vera uppi um að auka­verk­an­irnar séu algeng­ari hjá yngra fólki og konum en það lægi ekki alveg ljóst fyrir. Auka­verk­an­irnar teng­ist fyrst og fremst blóð­storku­kerf­inu og væru þrenns konar.

Í fyrsta lagi væru um blóð­sega eða blóð­tappa í fót­leggjum og lungum að ræða. Sjúk­dómur sem Alma sagði vera vel þekktan. Hún sagði að ekki væri hægt að segja með vissu um að aukin áhætta á slíkum blóð­töppum fylgdi bólu­setn­ingu en áhættan sneri aðal­lega að ungu fólki. Hér­lendis hefði lyfja­stofnun fengið til­kynn­ingar um tvö til­vik lungna­blóð­tappa.

Ekki hefði verið til­kynnt um hinar tvær sjald­gæfari auka­verk­an­irnar en þær eru ann­ars vegar sjald­gæfir blóð­segar í blá­æðum heila og sjald­gæfir blóð­segar í smá­æðum.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár