Vilja innleiða evrópskt fagskírteini

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur lagt fram frum­varp til laga um við­ur­kenn­ingu á fag­legri menntun og hæfi til starfa hér á landi. Laga­breyt­ingin á að tryggja rétt fag­mennt­aðra ein­stak­linga óháð því hvar við­kom­andi lærði innan EES-svæð­is­ins.

Í nýju frum­varpi til laga um við­ur­kenn­ingu á fag­legri menntun hér á land­inu er lagt til að tekið verði upp evr­ópskt fag­skír­teini til að ein­falda og gera ferlið við að fá við­ur­kenn­ingu á fag­legri menntun og starfs­reynslu, óháð því hvar við­kom­andi lærði innan EES-svæð­is­ins, fljót­legra. Í vik­unni birti mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið drög að frum­varp­inu til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Frum­varpið snýr að inn­leið­ingu á til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins um við­ur­kenn­ingu á fag­legri menntun og hæfni á EES-svæð­inu. Til­skip­unin var tekin inn í EES-samn­ing­inn með ákvörðun sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar í maí á síð­asta ári og verður inn­leidd hér á landi með breyt­ingu á lögum ef frum­varpið er sam­þykkt. Samkvæmt frum­varp­inu er við­ur­kenn­ing fag­legrar mennt­unar og hæfis ein af grunn­stoðum EES-sam­starfs­ins og hefur verið það frá gild­is­töku EES-samn­ings­ins árið 1994.

Samkvæmt drög­unum felst mik­il­vægi til­skip­un­ar­innar í þeim rétt­indum sem hún tryggir þeim er aflað hafa sér fag­legrar mennt­unar til starfa hvar sem er á Evrópska efna­hags­svæð­inu og rétt­inum til við­ur­kenn­ingar á menntun og hæfi óháð því hvar nám var stundað. Þessi breyt­ing á við um lög­vernduð störf, s.s. lækna, verk­fræð­inga, tal­meina­fræð­inga, kenn­ara og pípu­lagn­inga­manna.

Evrópska fagskírteinið leið til að gera framkvæmdina einfaldari

Ofan­greind til­skipun Evr­ópu­þings­ins og ráðs­ins felur í sér heim­ild til handa fag­stéttum til að njóta við­ur­kenn­ingar á starfs­rétt­indum sínum innan EES-svæð­is­ins og þar með til að stunda vinnu í krafti mennt­unar sinnar og starfs­reynslu sem fjöldi fag­fólks hefur ekki haft mögu­leika á hingað til hér á landi. Í drögum að frum­varp­inu kemur fram að með þess­ari til­skipun verði ekki gerðar grund­vall­ar­breyt­ingar á til­högun við­ur­kenn­ingar á fag­legri menntun og hæfi á Evrópska efna­hags­svæð­inu heldur er frum­varpið skref til að tryggja að fram­kvæmdin verði enn ein­fald­ari og skjót­virk­ari m.a. með inn­leið­ingu evr­ópsks fag­skír­teinis fyrir ein­staka starfs­greinar þar sem afgreiðslu­frestur eru styttir frá því sem nú er.

Evrópska fag­skír­tein­inu er ætlað að styrkja innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins og Evrópska efna­hags­svæð­is­ins, ýta undir frjálsa för fag­fólks og tryggja skil­virk­ari og gagn­særri við­ur­kenn­ingu á fag­legri menntun og hæfi sam­kvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu frum­varps­ins. Með evr­ópska fag­skír­tein­inu geta umsækj­endur sótt um við­ur­kenn­ingu á fag­legri menntun og hæfi með raf­rænum hætti fyrir þær starfs­greinar sem falla undir evr­ópska fag­skír­teinið. Skír­teinið er því hugsað sem raf­ræn sönnun þess að ein­stak­lingur hefur náð fag­legum prófum og landið sem ein­stak­ling­ur­inn vill vinna í hafi sam­þykkt fag­legu menntun hans og upp­fyllir því skil­yrði til að veita þjón­ustu tíma­bundið eða til fram­tíðar í því landi. 

Hingað til hafa Íslend­ingar getað nælt sér í skír­teinið til að fá fag­lega menntun og hæfni sam­þykkta á hraðan og auð­veldan hátt í öðru ESB landi. Í dag eru það aðal­lega fag­menn í heil­brigð­is­stéttum sem hafa getað notað skír­teinið en fag­menn í öðrum greinum þurfa að reiða sig á staðl­aða ferla fyrir mat á lög­vernd­uðum starfs­greinum í öðrum löndum til að fá menntun og hæfni við­ur­kennda en á síðu fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins kemur fram að skír­teinið gæti í fram­tíð­inni verið útvíkkað til að ná yfir aðrar stéttir.

Erfitt að fá menntun metna hér á landi

Í lok september síðastliðin voru erlendir ríkisborgarar 43.430 en árið 2011 voru þeir 20.930 samkvæmt nýjustu mannfjöldatölum frá hagstofu Íslands. Fjöldi erlendra ríkisborgara hefur því aukist um 22.500 á sjö árum eða um tæplega 108 prósent hér á landi. Erlendir ríkisborgara sem búa hérlendis hafa aldrei verið fleiri og lítið lát verður á þessum miklu samfélagsbreytingum ef marka má mannfjöldaspá Hagstofu Íslands.

[links]Á síðustu mánuðum hefur mikil umræða skapast um stöðu innflytjenda hér á landi og fjallað hefur verið um hvernig atvinnurekendur á Íslandi hafi í röðum brotið á réttindnum erlends starfsfólks. Ásamt því hefur á síðustu árum einnig verið fjallað um í fjölmiðlum hversu erfitt það getur reynst innflytjendum sem setjast að hér á landi að fá menntun sína metna eða fá starf sem hæfir menntun sinni. Í umfjöllun Fréttablaðsins um málið fyrir nokkrum árum voru birt viðtöl við fjölda innflytjenda sem búa hér á landi og eru með háskólamenntun en fá aðeins að sinna láglaunastörfum hérlendis vegna þess að þeir fá menntun sína ekki metna.

Samtök kvenna af erlendum upp­runa segja til að mynda marga lenda í vand­ræðum með að fá nám sitt metið hér í landi. Í sam­tali við Frétta­blaðið bentu stjórn­ar­konur sam­tak­anna þær Angelique Kelly og Anna Katarzyna Wozniczka á að nauð­syn­legt sé að líta á nám sem auð­lind sem eigi að nýt­ast hvort sem það er erlend menntun eða íslensk. „Ísland er að missa af tæki­færi til þess að nota menntun og þekk­ingu þessa fólks,“ sagði Anna og benti jafn­framt á að það myndi hjálpa mörgum ef ferlið til þess að meta nám yrði gert aðgengi­legra og auð­veld­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár