Siðareglur ráðherra gilda áfram fyrir nýja ríkisstjórn

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar.
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Mynd: Gunnar Vigfússon

Ný rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar fékk kynn­ingu á siða­reglum ráð­herra á sínum fyrsta fundi í morgun. Siða­regl­urnar voru einnig ræddar af ráð­herrum á rík­is­stjórn­ar­fund­inum, en þær gilda áfram fyrir nýja rík­is­stjórn nema hún taki ákvörðun um að breyta þeim.

Siða­regl­urnar sem nú eru í gildi voru settar af Sigurði Inga Jóhanns­syni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, skömmu eftir að hann tók við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Þær byggja á siða­regl­unum sem settar voru í tíð Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur árið 2011, en þær reglur giltu aðeins út starfs­tíma rík­is­stjórnar Jóhönnu. Í for­sæt­is­ráð­herra­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar voru siða­reglur ráð­herra aldrei stað­festar vegna þess að Sig­mundur Davíð und­ir­rit­aði þær ekki og birti. Á meðan svo var höfðu siða­regl­urnar sem Jóhönnu­stjórnin setti ekki stjórn­sýslu­legt gildi. Þetta var mat umboðs­manns Alþingis, en þetta var ástæða þess að hann gat ekki látið í ljós álit sitt á því hvort Sig­mundur Davíð hefði brotið gegn siða­reglum ráð­herra í Wintris-mál­inu.

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, hafði einnig bent á það í leka­mál­inu að siða­regl­urnar væru ekki í gildi. Lesa má ítar­lega um sam­skipti umboðs­manns Alþingis og ráða­manna á síð­asta kjör­tíma­bili hér.

Þegar rík­is­stjórn Sigurðar Inga hafði tekið við setti hann nýjar siða­reglur sem, eins og fyrr segir, byggðu að lang­mestu leyti á fyrri reglum. Breyting var þó gerð með því að ekki var lengur kveðið á um að regl­urnar giltu aðeins á meðan hans rík­is­stjórn var við völd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár