Málmbræðsla í Hvalfirði brýtur áfram af sér

Umhverf­is­stofnun íhugar að loka end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæk­inu GMR í Hval­firði vegna meng­unar og ítrek­aðra van­efnda á til­mælum stofn­un­ar­innar. Vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem er fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, undr­ast skort á jákvæðri umfjöllun og segir GMR vera þjóð­þrifa­fyr­ir­tæki. Iðn­að­ar­maður sem starfað hefur á svæð­inu lýsir ömur­legum aðstæðum starfs­fólks, og seg­ist heilsu sinnar vegna aldrei ætla að stíga fæti inn í verk­smiðju­húsið.

Eyþór Arnalds
Eyþór Arnalds Stjórn­ar­mað­ur­inn og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mað­ur­inn Eyþór Arnalds er hér með Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur iðn­að­ar­ráð­herra og Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Pressphotos / Geirix

Fyr­ir­tækið GMR (Geot­hermal Metal Recycl­ing) hefur sætt dag­sektum frá Umhverf­is­stofnun vegna ítrek­aðra van­efnda. Ófull­nægj­andi meng­un­ar­varnir og ítrek­aðar van­efndir á lag­fær­ingu þeirra eru ástæða dag­sekt­anna. Myndbönd sem tekin voru fyrir tveimur árum sýna greini­lega meng­un­ina, svartan reyk, sem kemur út um dyr end­ur­vinnsl­unnar. Voru það mynd­böndin sem vöktu fyrst athygli eft­ir­lits­manna.

Umhverf­is­stofnun hefur ítrekað gert athuga­semdir við meng­un­ar­mál, en einnig við aðstöðu starfs­manna. Síðustu 4 ár hafa verið gerðar tæpar 40 athuga­semdir við ýmis atriði, sem talin eru frá­vik sem eru brot á starfs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins. Meðal ann­ars að útblástur fari ekki inn í þar til gerða reyk­háfa og fylli því verk­smiðju­húsið. Magn meng­un­ar­efna í útblæstri hefur einnig farið yfir við­mið­un­ar­mörk, ekki hefur verið mal­bikað nema að hluta í kringum verk­smiðj­una og verður það því oft að for­ar­svaði sem bland­ast úrgangi.

Slæmar aðstæður starfsfólks

Starfs­maður sem Stundin ræddi við, og hefur komið að svæð­inu öðru hvoru frá því farið var í fram­kvæmdir, lýsir aðstæðum sem slæmum. „Það er óþol­andi að horfa upp á fram­kom­una við starfs­menn, sem bygg­ist ein­göngu á því að þetta eru Pól­verjar,“ segir hann. Þá segir hann að sér ofbjóði sóða­skap­ur­inn og fram­koman við starfs­fólkið, sem eru nán­ast ein­ungis útlend­ingar.

Aðstaðan og virð­ing við starfs­fólkið, sem flestir eru erlendir verka­menn, segir hann fyrir neðan allar hellur. „Það er óþol­andi að horfa upp á fram­kom­una við starfs­menn, sem bygg­ist ein­göngu á því að þetta eru Pól­verjar. Ég segi fyrir mig, ef að ég ætti að fara að vinna hérna, ég færi bara bein­ustu leið heim á báðum skóm, ef ég ætti að vinna inni í þess­ari verk­smiðju, með aðstæð­urnar eins og þær eru núna. Ég myndi ekki láta bjóða mér það. Þótt ég hefði ekk­ert að gera. Þegar að við vorum þarna inni var húsið gjör­sam­lega kjaft­fullt af reyk. Og þetta er 3.600 fer­metra hús með 18 metra loft­hæð. Maður sá ekki á milli augna eins og sagt er. Þannig við vorum mjög ósáttir með þetta, og svo hef ég fengið sím­tal frá nýjum verk­smiðju­stjórum og ég hef bara komið mér undan því að þurfa að vinna meira þarna inni.“

Maðurinn starf­aði hjá GMR áður en fram­leiðsla hófst. „Það fór að vekja eft­ir­tekt eftir smá tíma að maður fór að heyra þegar fór að líða að lokum fram­kvæmd­ar­innar að það ætti að keyra þetta í gang á bráða­birgða­leyfi, sem varir enn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár