52,89 prósent höfðu kosið klukkan sex – Mun fleiri en í fyrra

Kjörsókn hefur verið nokkuð góð það sem af er degi í Reykja­vík.

Kjörsókn í Reykja­vík hefur verið góð í sam­an­burði við Alþing­is­kosn­ing­arnar fyrir ári síðan, en klukkan 18:00 höfðu 52,89 pró­sent kosið af þeim sem eru á kjör­skrá. Í fyrra var hlut­fallið á sama tíma 50,52 pró­sent.

Mun fleiri kusu utan kjör­fundar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ár en í fyrra. Þegar utan kjör­fundi var lokað í gær­kvöld höfðu 22.493 kos­ið. Kvöldið fyrir kjör­dag alþing­is­kosn­inga í fyrra höfðu 19.222 kos­ið, eða ríf­lega 3.200 kjós­endum færri.

Sam­tals eru 248.502 kjós­endur á kjör­skrá á land­inu öllu. Þar af hafa 38.646 kosið utan kjör­fund­ar. Kjós­end­ur ­með lög­heim­ili utan höf­uð­borg­ar­svæðis gátu kosið í Smára­lind í dag til klukkan 17:00.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár