Viðreisn mælist í fyrsta sinn stærri en Samfylkingin – Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi

Þingmenn Pírata eru þrír. Ef gengið yrði til kosninga nú yrðu þeir að öllum líkindum mun fleiri.
Þingmenn Pírata eru þrír. Ef gengið yrði til kosn­inga nú yrðu þeir að öllum lík­indum mun fleiri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni og mælist með 24 pró­senta fylgi. Píratar eru sem fyrr með mest fylgi í kosn­inga­spánni. Þeir mæl­ast með 28,3 pró­sent og standa nán­ast í stað. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist með 26,5 pró­sent fylgi þegar kosn­inga­spáin var gerð síð­ast, 14. júní síð­ast­lið­inn.

Viðreisn mælist nú í fyrsta sinn stærri en Sam­fylk­ingin í kosn­inga­spánni. Fram­boðið mælist með 8,2 pró­sent fylgi, um það bil einu og hálfu pró­sentu­stigi meira en það gerði síð­ast. Sam­fylk­ingin hækkar örlítið milli kosn­inga­spáa og mælist nú með 7,8 pró­sent fylgi.

Vinstri græn eru þriðja stærsta stjórn­mála­aflið sem hyggst bjóða fram til Alþingis í kosn­ingum í haust. Flokk­ur­inn mælist með 16,8 pró­sent fylgi, örlítið meira en hann var með síð­ast. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er fjórði stærsti flokk­ur­inn, með 10 pró­senta fylgi.

[adspot]

Björt fram­tíð mælist enn með minna en fimm pró­sent í kosn­inga­spánni. Flokk­ur­inn er nú með 4,5 pró­sent í kosn­inga­spánni. Ætla má að flokkur þurfi að fá um fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu til að ná kjöri til Alþingis. Erfitt er hins vegar að fjöl­yrða um slíkt því eitt fram­boð gæti verið að sækja meiri stuðn­ing í eitt kjör­dæmi umfram önnur. Enn er ekki farið að kanna stuðn­ing innan hvers kjör­dæmis fyrir sig.

Þá er að segja af Dögun sem mælist með 0,4 pró­sent í kosn­inga­spánni. Önnur fram­boð mæl­ast ekki.

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð 24. júní. Fyr­ir­liggj­andi kann­anir á fylgi fram­boða til Alþingis voru vigtaðar til að áætla raun­hæfa mynd af fylgi við stjórn­mála­flokka. Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru:

  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofnun HÍ fyrir Morg­un­blaðið 19. til 22. júní (vægi 32,1%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofnun HÍ fyrir Morg­un­blaðið 8. til 12. júní (vægi 20,3%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofnun HÍ fyrir Morg­un­blaðið 1. til 2. júní (vægi 14,5%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 28. apríl til 29. maí (vægi 23,1%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 23. til 24. maí (vægi 10,0%)

Hvað er Kosn­­inga­­spá­in?

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­inga­­spá Bald­­urs fyrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar og reynd­ist sú til­­raun vel. Á vefnum kosn­­inga­­spá.is má lesa nið­­ur­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­vik kann­ana miðað við kosn­inga­úr­slit­in. Nánar má lesa um kosn­inga­spána hér.

Áreið­an­­leiki könn­un­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­inga­úr­slit­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár