Skattrannsóknarstjóri gengur til samninga um kaup á gögnunum

Bryndís Krist­jáns­dóttir, skatt­rann­sókn­ar­stjóri, ætlar að ganga til samn­inga við mann­inn sem býr yfir gögnum um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum, en hann vill fá 150 millj­ónir fyrir þau. Þetta kom fram í fréttum Bylgj­unnar í hádeg­inu í dag.

Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir að gengið verði til samn­inga við selj­anda gagna um Íslend­inga í skatta­skjólum á grund­velli yfir­lýs­ingar fjár­mála­ráð­herra frá því í gær. Hún segir engu hægt að lofa um árangur af skatt­heimtu að svo stöddu. Hún segir að sér hafi verið brugðið við yfir­lýs­ingar fjár­mála­ráð­herra um seina­gang emb­ætt­is­ins.

Bryndís sagði í við­tali við Bylgjuna að nú yrði unnið með málið áfram, og að ekki væri úti­lokað að það mætti kaupa gögnin fyrir lægri fjár­hæð en efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neytið hefði til­kynnt um að huldu­mað­ur­inn vildi fá fyrir gögnin. Samn­inga­við­ræður ættu eftir að fara fram, og að það hefði verið að mörgu leyti nei­kvætt fyrir þær, að gefa upp­hæð­ina upp áður en þær færu fram.

Í til­kynn­ingu efn­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafi með bréfi, sem var sent til ráðu­neyt­is­ins 27. jan­úar síð­ast­lið­inn, upp­lýst að athugun þess hefði leitt í ljós að ekki væri mögu­legt að ganga til samn­inga um kaup á gögn­unum þannig að greiðslur yrðu háðar árangri af nýt­ingu þeirra. „Seljandi gagn­anna sé á hinn bóg­inn reiðu­bú­inn til að láta öll gögnin af hendi fyrir 150 millj­ónir króna, ellegar 2.500 evrur fyrir hvert mál, en þau eru alls 416 tals­ins. Jafn­framt segir í bréfi emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra að skýra þurfi nánar atriði er lúta að hæfi selj­anda“.

Þá upp­lýsir ráðu­neytið að það hafi, með bréfi, beint því til skatt­rann­sókn­ar­stjóra að emb­ættið gang­ist fyrir athugun á því hvort frétta­flutn­ingur af við­skipta­háttum sviss­neska úti­bús breska bank­ans HSBC, og eftir atvikum ann­arra banka, gefi til­efni til rann­sókna að hálfu emb­ætt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár