Um 250 mættu á fund aðstandenda sakborninga í Al Thani-málinu á Hilton í gær

Ingi­björg Krist­jáns­dóttir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar sem var dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Al Thani- mál­inu í síð­asta mán­uði, skipu­lagði fund með aðstand­endum sak­born­inga í mál­inu sem fram fór á Hilton hót­el­inu í hær. Um 250 manns mættu á fund­inn. Þetta kemur fram á vef Við­skipta­blaðs­ins.

Þar segir að verj­andi Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, Hörður Felix Harð­ar­son, og verj­andi Sigurðar Ein­ars­sonar, Ólafur Eiríks­son, hafi tekið til máls á fund­inum og farið yfir dóm­inn. Auk þess mætti Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ari, á fund­inn og lýsti skoðun sinni á dómnum.

Þungir dómar


Dómur féll í Al Thani-mál­inu þann 12. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þar voru þeir Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, voru allir dæmdir sekir. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár.

Al-Thani málið, sem er eitt umfangs­mesta efna­hags­brota­mál sem komið hefur á borð dóm­stóla hér á landi, á rætur að rekja til hluta­bréfa­kaupa sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-Thani frá Katar hinn 22. sept­em­ber 2008 en félag hans keypti 5,01 pró­senta hlut í Kaup­þingi banka fyrir 25,7 millj­arða króna með láni frá bank­anum.

Byrjaðir að afplána


Tveir sak­born­ing­anna, Ólafur Ólafsson og Hreiðar Már Sig­urðs­son, eru þegar byrj­aðir að afplána dóma sína á Kvía­bryggju. Sigurður Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son hafa einnig óskað eftir því að fá að hefja afplánun sem fyrst. Hreiðar Már, Sigurður og Magnús, ásamt fleirum fyrrum starfs­mönnum Kaup­þings, hafa einnig verið ákærðir í fleiri málum sem tengj­ast banka­hrun­inu. Því gæti farið svo að þeir hljóti fleiri fang­els­is­dóma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár