Í samskiptum við nemendur á nóttunni

Kristín Marín Sig­geirs­dóttir kenn­ari í Kvenna­skól­anum ímyndað sér að hún gæti prjónað og bakað með­fram störfum í sam­komu­banni. En eitt­hvað varð lítið úr því. Vinnu­dag­arnir urðu langir og hún vann stundum langt fram á nótt.

Þetta byrj­aði með ósköpum,“ segir Kristín Marín Sig­geirs­dóttir, kenn­ari við Kvenna­skól­ann í Reykja­vík um loka­próf sem hún hafði nýverið lagt fyrir nem­endur sína. „Þegar prófið átti að byrja þá fékk ég marga pósta og sím­hring­ingar frá nem­endum sem komust ekki inn í INNU. Ég sagði þeim að hinkra, þetta myndi hrökkva í lag, sem það gerði.“

Þessa önn­ina eru prófin í Kvenna­skól­anum raf­ræn. Nemendur eru heima hjá sér og Kristín sömu­leiðis. „Það voru smá hnökrar í upp­hafi en þetta tókst allt saman vel að lokum og allir nem­endur skil­uðu.“ Nemendur hennar hafa að hennar mati staðið sig gríð­ar­lega vel í gjör­breyttum aðstæðum – sumir jafn­vel betur en fyrir sam­komu­bann. Sjálf seg­ist hún hafa lært mjög margt og að eitt af því sé að ein­hverjum nem­endum gæti í fram­tíð­inni gagn­ast að fá að stunda nám sitt heima frekar en að mæta í kennslu­stundir í skól­anum.

Kristín er líf­fræð­ingur. Eftir að hún útskrif­að­ist úr því háskóla­námi ákvað hún að prófa að kenna þó að það hafi nú ekki verið planið í upp­hafi, eftir að hafa sjálf setið á skóla­bekk í mörg ár. Þetta var haustið 1985 og vinnu­stað­ur­inn var Fjöl­brauta­skóli Suð­ur­lands á Selfossi. Samhliða kennsl­unni fyrstu árin tók hún kennslu­rétt­indi. Haustið 1987 færði hún sig um set og hóf störf við Kvenna­skól­ann í Reykja­vík. „Og ég er búin að vera þar síðan,“ segir hún og bætir hlæj­andi við: „Þannig að það má segja að ég sé kona með reynslu!“

Starfsand­inn í Kvenna­skól­anum er að mati Krist­ínar fram­úr­skar­andi. Margir kenn­arar starfa þar árum saman. „Mér hefur ekki einu sinni dottið í hug á þessum rúm­lega þrjá­tíu árum að hætta. Það segir sína sögu.“

Kristín hefur kennt líf­fræði alla tíð en einnig stundum önnur fög svo sem nær­ing­ar­fræði, heil­brigð­is­fræði, erfða­fræði, stærð­fræði, efna­fræði, umhverf­is­fræði og svo mætti áfram telja. Raun­grein­arnar eru því hennar sér­svið. „Ég hef aldrei kennt eðl­is­fræði,“ segir hún hugsi.

Þú átt það eftir...

„Nei, ég held ekki,“ segir hún og hlær. „Ég á nú ekki mörg ár eftir í kennslu. Þetta fer að verða komið gott.“

Kristín Marín í sófahorninu heima sem varð hennar vinnustöð í samkomubanni. Yfir sér hefur hún teppi sem hún prjónaði í síðasta kennaraverkfalli.
Kristín Marín í sófa­horn­inu heima sem varð hennar vinnu­stöð í sam­komu­banni. Yfir sér hefur hún teppi sem hún prjón­aði í síð­asta kenn­ara­verk­falli.

Við upp­haf skóla­árs­ins í haust mætti Kristín Marín til starfa með nýtt kennslu­efni í fartesk­inu. „Það er alltaf mikil vinna að byrja að kenna nýtt efni, þannig að þó að skóla­árið hafi byrjað með hefð­bundnum hætti þá var haustönnin svo­lítið þung.“

Hún von­aði að vor­önnin yrði auð­veld­ari, „en það varð nú ekki alveg þannig. En það er eins og það er og maður tekur því sem að höndum ber“.

Þegar fréttir hófu að ber­ast af skæðri veiru­sýk­ingu í Kína í byrjun árs nýtti Kristín tæki­færið og tengdi atburð­ina inn í kennsl­una. „Ég og nem­end­urnir fylgd­umst vel með og vorum mjög áhuga­söm og jafn­vel svo­lítið spennt yfir öllu sem var að ger­ast þarna. Ég tal­aði sér­stak­lega um veirur, bólu­setn­ingar, smit­varnir og þess háttar í tímum. Og ég er ekki frá því að nem­endur hafi tekið óvenju­lega vel eftir að þessu sinni.“

En þegar far­ald­ur­inn bloss­aði upp á Ítalíu þá fóru að renna tvær grímur á Kristínu og nem­end­urna. „Þetta varð allt saman raun­veru­legra þegar veiran fór að grein­ast í Evrópu þar sem eru sam­bæri­leg heil­brigð­is­kerfi og hér á Íslandi,“ segir Kristín. „Á meðan far­ald­ur­inn var í Kína gat ég ekki ímyndað mér að hann ætti eftir að verða jafn alvar­legur á Vest­ur­löndum. En svo varð ástandið ekk­ert skárra hér í okkar heims­hluta. Veirur virða engin landa­mæri.“

Nokkrum dögum áður en sam­komu­bann var sett á voru kenn­arar í Kvenna­skól­anum undir það búnir að þannig gæti farið. Þegar það var til­kynnt um miðjan mars og allir nem­endur þurftu að fara heim að læra ákvað Kristín að halda sínu striki og mæta í skól­ann þar sem hún er með góða vinnu­að­stöðu. En svo veikt­ist kenn­ari af COVID-19 og margir kenn­arar urðu að fara í sótt­kví. „Og ég var ein af þeim.“

Kristín veikt­ist ekki en það gerðu nokkrir sam­starfs­menn hennar. „Þannig að ég kom mér bara fyrir í sófa­horn­inu heima og hef verið þar síðan,“ segir hún hlæj­andi. „Það hefur verið mín vinnu­að­staða.“

Ein hefur hún þó ekki verið því kött­ur­inn Grettir hefur haldið henni félags­skap. Hann hefur legið við hlið hennar í sóf­anum en helst vill hann þó leggj­ast ofan á lykla­borðið. Það fær hann ekki en stundum hefur hann „mjálmað svo­lítið inn á glær­urnar,“ segir Kristín um þá „aðstoð“ sem Grettir hefur veitt.

Á árum áður vann Kristín oft heima en hætti því að mestu eftir að góðri vinnu­að­staða var komið upp í skól­anum. „Þannig að núna varð ég að rifja upp gamla heima­vinnu­takta.“

Kristínu finnst nemendur sínir hafa staðið sig ótrúlega vel við þessar gjörbreyttu aðstæður.
Kristínu finnst nem­endur sínir hafa staðið sig ótrú­lega vel við þessar gjör­breyttu aðstæður.

Fjar­kennslan óx henni alls ekk­ert í augum. Hún hefur kennt í ára­tugi og seg­ist hafa lent í ýmsu á þeim tíma. „Ég hef lent í löngum verk­föllum. Í verk­falli má maður ekki sinna nem­endum en þó að ég hitti ekki nem­end­urna í eigin per­sónu núna þá má ég þó sinna þeim. Þannig að ég hugs­aði með mér að fyrst við hefðum kom­ist í gegnum sex vikna verk­fall á sínum tíma, með því að bæta nem­endum upp tapið með því að kenna á laug­ar­dögum, í páska­fríi, fram á sumar, breyta náms­mati og þar fram eftir göt­unum, þá getur nú kennsla í gegnum netið varla verið mikið mál.“

Mjög mikil vinna

Þegar Kristín lítur til baka segir hún síð­ustu vikur hafa gengið ágæt­lega en að fjar­kennslan hafi kostað mjög mikla vinnu. „Helgin eftir að til­kynnt var um sam­komu­bann fór í það að skipu­leggja næstu þrjár vikur fram að páska­fríi, setja nem­endum fyrir, útbúa verk­efni til að halda þeim við efnið í stað­inn fyrir dag­legar kennslu­stundir. Ég hef lært rosa­lega mikið en þetta hefur verið ofboðs­lega mikil vinna. Vinnu­dag­arnir hafa verið langir. Ég hef unnið mörg kvöld, margar helgar og fram á nætur. Ég hafði ímyndað mér að ég myndi kannski getað prjónað, bakað og dúllað mér heima í sam­komu­bann­inu en það hefur verið frekar lítið um það. Ég hef verið hlaðin verk­efnum tengdum kennsl­unni.“

Skila­frestir verk­efna renna oft út á mið­nætti og Kristín hefur stundum farið á netið á þeim tíma og séð þá að ein­hverjir eru ekki búnir að skila og ýtt þá á eftir þeim. „Það hefur komið fyrir að ég hef fengið svar frá þeim á þessum tíma sól­ar­hrings, svo ég hef verið í tölvu­póst­sam­skiptum við nem­endur á nótt­unni,“ segir hún skellir upp úr.

Kristín hélt nokkrar fjar­kennslu­stundir í gegnum fjar­fund­ar­búnað en ann­ars not­aði hún, eins og áður glærur við kennsl­una. Fyr­ir­lestr­unum sem hún er vön að halda fækk­aði því stór­lega. „Mér til mik­illar undr­unar þá sögð­ust nokkrir nem­endur mínir sakna fyr­ir­lestr­anna minna en áður höfðu nú sumir hverjir kvartað yfir því að þeir væru of langir og of margir,“ segir Kristín og skellir upp úr.

Of mikið álag í fyrstu

Nokkra daga tók að finna takt­inn í fjar­kennsl­unni. Nemendur kvört­uðu fyrst í stað yfir því að álagið væri alltof mikið. „Þá voru auð­vitað allir kenn­arar að leggja sig fram við að halda þeim að vinnu og senni­lega höfum við gengið aðeins of langt til að byrja með. Mér skilst að sumir nem­endur hafi setið við allan dag­inn og langt fram á kvöld sem var auð­vitað ekki ætl­unin. En við lærðum öll af þessu og í annarri viku var kom­inn sæmi­legur taktur.“

Sjálf­stæð vinnu­brögð eru nauð­syn­leg í fjar­námi. Í stað­námi getur kenn­ari gengið á milli, aðstoðað og ýtt við en heima er því ekki að heilsa. „Mér finnst þetta hafa sýnt okkur að nem­endur eru ekki vanir að læra mikið heima,“ segir Kristín. „Þegar námi hvers dags sem áður fór fram í skóla­stof­unni var bætt við hefð­bundna heima­vinnu reynd­ist sumum það erfitt. Þetta er mjög mikil breyt­ing fyrir þau.“

Kötturinn Grettir hélt Kristínu félagsskap við heimavinnuna og mjálmaði stundum inn á glærurnar.
Kött­ur­inn Grettir hélt Kristínu félags­skap við heima­vinn­una og mjálm­aði stundum inn á glær­urnar.

Á síð­ustu vikum hefur Kristín tvisvar sinnum lagt könnun fyrir nem­endur sína um fyr­ir­komu­lag kennsl­unnar. Nemendur sem eru að útskrif­ast í vor voru nokkuð stress­aðir í upp­hafi og áttu erfitt með að sjá fyrir sér að geta kom­ist yfir allt náms­efnið við þessar breyttu aðstæður. „En þegar á leið þá fór mörgum að líka vel við þetta. Þeim fannst gott að geta skipu­lagt dag­inn sjálf, vita hvað þau ættu að gera á hverjum degi og í hverri viku, gátu vaknað þegar þeim hent­aði og byrjað að vinna.“

Hluti nemenda stóð sig betur

Fjar­námið hentar hins vegar alls ekki öllum. Í nem­enda­hópi Krist­ínar eru ein­stak­lingar sem sögð­ust ekki vera ánægðir með fyr­ir­komu­lagið. „Þetta eru nem­endur sem eru vanir að mæta í tíma, hlusta og gera það sem þeim er sett fyrir en læra kannski ekki mikið utan skóla­stof­unnar. Þessum nem­endum gekk ekki sér­stak­lega vel að aðlaga sig þessum breytta takti, sér­stak­lega til að byrja með.“

Svo voru nokkrir nem­endur sem fram að sam­komu­banni höfðu mætt lítið í skól­ann og ekki skilað öllum verk­efnum af ýmsum ástæðum, m.a. vegna veik­inda. „Þetta eru þeir nem­endur sem tóku mest við sér og fóru að skila verk­efnum betur en fyrir bann.“

Það er mikið álag að sitja í skóla allan dag­inn. Sumir hafa ekki heilsu til þess og „þá getur hentað þeim vel að haga sínum vinnu­tíma eftir eigin höfði,“ segir Kristín. Hún seg­ist halda að fyr­ir­komu­lag fjar­kennsl­unnar gæti gagn­ast þessum nem­endum áfram. „Ég hef sjálf lært mikið af þessu og sé núna fleiri mögu­leika í því að aðstoða þá nem­endur sem eiga erf­ið­ara með nám í skól­anum.“

Kristín hafði ekki hugsað sér að gjör­bylta sínum kennslu­háttum síð­ustu árin í starfi. „Ég var ekk­ert rosa­lega spennt fyrir því að fara að tala inn á glærur og nota fjar­fund­ar­búnað,“ við­ur­kennir hún. „En þegar sam­komu­bannið var fram­lengt varð ég að til­einka mér þær aðferðir. Þannig að ég fór að tala inn á glærur sem ég sendi nem­end­unum og það reynd­ist vel.“

Hvað líðan nem­end­anna varðar segir Kristín það sína upp­lifun að hún sé almennt ágæt. „Þeim leið­ist svo­lítið og sakna hvers ann­ars.“

Ekkert brottfall

Að mati Krist­ínar er frammi­staða þeirra í nám­inu almennt mjög góð. Hún veit ekki til þess að nokkur úr hennar nem­enda­hópi hafi hætt námi á vor­önn­inni. Hún seg­ist hafa kynnst sumum nem­endum betur en í kennslu­stof­unni eða á annan hátt en öðrum minna. Nokkrum for­eldrum hefur hún hins vegar kynnst betur en áður.

Ekki í boði að gefast upp

Hún er þegar farin að hlakka til að mæta í skól­ann næsta haust og hitta nem­endur og sam­starfs­menn. Mögulega mun hún nota ein­hver verk­færi úr fjar­kennsl­unni áfram og seg­ist stuðn­ings­maður þess að kennslu­stundum í stunda­töflu sé fækkað. Þá kemur fjar­kennslu­formið sterkt inn.

Eftir rúma þrjá ára­tugi í starfi er hún enn að til­einka sér nýja hluti og reyna að finna nýjar leiðir og lausnir í kennsl­unni. Eitt stykki sam­komu­bann sló hana því ekki út af lag­inu. „Í kennslu er það þannig að maður verður að ein­henda sér í verk­efni. Það þýðir ekk­ert að leggja árar í bát og gef­ast upp. Við verðum ein­fald­lega að taka því sem að höndum ber og leysa málin. Það er bara þannig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár