Ræða mögulegt kvennaframboð

Sóley Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, er einn þeirra sem kallar eftir því að brugð­ist verði við slæmri stöðu kvenna í stjórn­málum með kvenna­fram­boði.

Sóley Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, hefur boðað til fundar í kvöld til að ræða mögu­legt kvenna­fram­boð, í ljósi nið­ur­stöðu kosn­ing­anna á laug­ar­dag­inn, þar sem staða kvenna á Alþingi versn­aði til muna.

Sér­stak­lega versn­aði staðan í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins mikið, en af 16 eru 12 karlar og 4 konur. „Nið­ur­staða kosn­ing­anna ligg­ur fyr­ir. Þrátt fyr­ir aðdrag­anda stjórn­arslit­anna, #höf­um­hátt og há­væra kröfu kvenna um breytt sam­fé­lag hef­ur orðið al­var­legt bak­slag í jafn­rétt­is­mál­um,” seg­ir á Face­book-síðu við­burðar­ins, en til stendur að hitt­ast á Mímisbar á Hótel Sögu, klukkan 20:00.

Hlutfall kvenna á þingi fór úr 47 pró­sent í 38 pró­sent. „Er ekki orðið full­reynt að breyta kynj­uðu sam­fé­lagi gegnum bland­aða flokka? Þrátt fyrir vilja og kraft rót­tækra kvenna í öllum flokkum, þá er femín­ism­inn ekki raun­veru­legt bar­áttu­mál neins þeirra. Enginn flokkur tók af mynd­ug­leik á jafn­rétt­is­málum í kosn­inga­bar­átt­unni, heldur var femín­ism­inn jað­ar­mál sem ein­stökum tals­konum flokk­anna var falið að sjá um á meðan hinir ræddu „alvöru­málin”.

Kvenna­fram­boð sem setur öryggi, aðstæður og tæki­færi kvenna af öllum gerðum og stærðum á odd­inn er mögu­leiki sem vert er að athuga nánar. Fundum strax á meðan reiðin ólgar - og reynum að beina henni inn í jákvæðan far­veg í þágu okkar allra?

Áfram stelpur!“ segir á Facebook síðu við­burð­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár