Fjöldi afþreyingarfyrirtækja fyrir ferðamenn hefur nífaldast á síðustu tíu árum

Fjöldi fyr­ir­tækja sem bjóða upp á afþrey­ing­ar­þjón­ustu fyrir ferða­menn hefur nífald­ast á tíma­bil­inu 2007-2017, sam­kvæmt svari ferða­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn um þróun ferða­þjón­ustu.

Fjöldi fyrirtækja í afþreyingariðnaði fyrir ferðamenn hefur stóraukist, samkvæmt fyrirspurninni.
Fjöldi fyr­ir­tækja í afþrey­ing­ar­iðn­aði fyrir ferða­menn hefur stór­auk­ist, sam­kvæmt fyr­ir­spurn­inni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjöldi fyr­ir­tækja í afþrey­ing­ar­iðn­aði fyrir ferða­menn hefur nífald­ast á síð­ustu tíu árum. Einnig hefur ferða­manna­straumur til Íslands hefur verið yfir öllum spám grein­ing­ar­deilda síð­ustu fjögur árin. Þetta kemur fram í svari ferða­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Elsu Láru Arn­ar­dóttur um þróun ferða­þjón­ustu á vef Alþingis.

Elsa Lára Arn­ar­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, lagði fram fyr­ir­spurn til ferða­mála­ráð­herra þann 15. maí síð­ast­lið­inn um þróun ferða­þjón­ustu á Íslandi. Svar ráð­herra birt­ist á vef Alþingis í gær, en sam­kvæmt því hefur umfang ferða­þjón­ustu á Íslandi stækkað tölu­vert á síð­ustu tíu árum auk þess sem vægi mis­mun­andi flokka innan ferða­þjón­ust­unnar hefur breyst.

Fjöldi afþreyingarfyrirtækja hefur nífaldast

Mest hefur aukn­ingin verið hjá fyr­ir­tækjum sem bjóða upp á afþr­ey­ingu fyrir ferða­menn, en á tíma­bil­inu 2007-2017 hefur fjöldi þeirra auk­ist um 800%. Á sama tíma­bili hefur fjöldi ferða­skrif­stofa auk­ist um 350% og fjöldi bíla­leiga auk­ist um 130%. Sömu­leiðis hefur fjöldi mennt­aðra leið­sögu­manna og fyr­ir­tækja sem bjóða upp á gist­ingu auk­ist umtals­vert á svip­uðu tíma­bili, eða um 60% og 55%.

Fjöldi ferðamanna alltaf verið yfir spám

Fjöldi ferða­manna sem komu til Íslands síð­ustu fjögur árin var einnig bor­inn saman við spár grein­inga­deilda þriggju bank­anna. Í ljós kom að ferða­manna­fjöldi hefur alltaf verið meiri en spár gerðu ráð fyrir. Nokkur munur var á raun- og spá­gildum erlendra ferða­manna fyrir síð­asta ár, en ferða­menn­irnir reynd­ust þá vera tæp 1,8 milljón, eða um 290 þús­und fleiri en hæstu spár gerðu ráð fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár