Mynd: Bára Huld Beck

Ef skipan dómara hefði verið lögmæt hefðu Eiríkur og Jón verið skipaðir í Landsrétt

Hér­aðs­dómur sam­þykkti að greiða tveimur mönnum sem urðu af emb­ætti dóm­ara í lands­rétti vegna sak­næmrar og ólög­mætrar ákvörð­unar dóms­mála­ráð­herra um að skipa þá ekki í Lands­rétt. Annar gerði kröfu um 31 millj­ónir króna í skaða­bætur en fékk 4 millj­ónir.

Í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í málum sem Eiríkur Jónsson og Jón Hösk­ulds­son höfð­uðu á hendur íslenska rík­inu vegna athafna Sig­ríðar Á. Andersen dóms­­­­mála­ráð­herra þegar hún skip­aði dóm­­­­ara í Lands­rétt er kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að bæði Eiríkur og og Jón hefðu verið skip­aðir í Lands­rétt ef með­ferð máls­ins hefði verið lög­mæt. Því væri ekki „unnt að horfa fram hjá því að af hálfu stefnda hefur ekki verið gerð við­un­andi grein fyrir því hvaða sam­an­burður fór fram á stefn­anda og öðrum umsækj­endum og hvernig inn­byrðis mati þeirra var háttað.“

Þá yrði heldur ekki dregin fjöður yfir það að dóm­nefnd hafði þegar raðað Eiríki í 7. sæti á lista yfir hæf­ustu umsækj­endur, og Jóni í 11. sæti á list­anum. Auk þess búi þeir báðir yfir meiri reynslu af dóms­störfum en nokkrir þeirra umsækj­enda sem lagt var til að skip­aðir yrðu dóm­arar við Lands­rétt, Sigríður not­aði dóm­ara­reynslu sem rök fyrir því að breyta röðun á list­ann yfir þá sem skip­aðir.

Hér­aðs­dómur vísar enn fremur til þess að Hæsti­réttur hafi þegar hafnað þeim sjón­ar­miðum að slíkir ann­markar hafi verið á dóm­nefnd­ar­á­liti að til­efni hafi verið fyrir ráð­herra að víkja frá því. Það var gert í des­em­ber 2017.

Í dómum í báðum mál­unum stendur því orð­rétt: „Með vísan til þess­ara atriða verður að telja að stefn­andi hafi leitt nægi­lega sterkar líkur að því að lög­mæt með­ferð máls­ins og for­svar­an­legt mat á umsókn og sam­an­burður á hæfni hans og ann­arra umsækj­enda hefði leitt til þess að hann hefði verið skip­aður dóm­ari við Lands­rétt. Er því fall­ist á máls­á­stæðu stefn­anda um við­ur­kenn­ingu á skaða­bóta­skyldu stefnda vegna þess fjár­hags­lega tjóns sem hann varð fyrir vegna ákvörð­unar ráð­herra.“

Engir annmarkar á dómnefndaráliti

Hér­aðs­dómur segir að engir ann­markar hafi verið á því dóm­nefnd­ar­á­liti sem Sigríður ákvað að víkja frá.

Þeirri skýr­ingu dóms­mála­ráð­herra að henni hefði verið ljóst að listi dóm­nefnd­ar­innar myndi ekki hljóta sam­þykki á Alþingi óbreytt, vegna þess að for­svars­menn sam­starfs­flokka hennar í rík­is­stjórn hefðu gert það ljóst, er auk þess hafnað sem mál­efna­legri. Dómurinn bendir á að dóms­mála­ráð­herra fór í reynd með vald til skip­unar dóm­ara við Lands­rétt í sam­ræmi við stöðu hennar sem æðsta hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds og bar að stjórn­lögum sér­staka ábyrgð á þeirri skipun. Í báðum dómunum segir sam­hljóma að ekki sé „unnt að fall­ast á máls­á­stæðu stefnda sem felur efn­is­lega í sér að ráð­herra hafi ekki megnað að koma í veg fyrir þá atburða­rás sem átti sér stað með að gengið var fram hjá stefn­anda, enda var það hún sem tók þá ákvörðun að taka hann út af list­anum frekar en aðra umsækj­endur. Ráðherra fór enn fremur bæði með það vald að leggja til umsækj­endur og eins að ákveða hvort til­laga um skipun þeirra umsækj­enda sem Alþingi hafði sam­þykkt yrði borin undir for­seta Íslands til stað­fest­ingar.“

Fór fram á 30,7 milljónir en fékk fjórar

Jón fór fram á alls 30,7 millj­ónir króna í skaða­bætur vegna máls­ins. Sú krafa var rök­studd með því að mis­munur á launum lands­rétt­ar­dóm­ara og hér­aðs­dóm­ara frá 1. jan­úar 2018 og þangað til að Jón myndi láta af störfum sjö­tugur að aldri væri 25,6 millj­ónir króna. Auk þess fór hann fram á 5,1 milljón króna vegna mis­munar á þeim líf­eyr­is­rétt­indum sem vænta megi að hann hefði aflað ef Jón hefði verið skip­aður í Lands­rétt umfram það sem hann haldi áfram að starfa sem hér­aðs­dóm­ari.

Hér­aðs­dómur féllst á að slíkur útreikn­ingur gæti haft þýð­ingu við mat á fjár­hæð skaða­bóta í mál­inu en að það yrði að taka til­lit til þess að „aðstæður stefn­anda eru um margt háðar óvissu og tjón hans kann að tak­markast, til dæmis ef hann yrði síðar skip­aður dóm­ari við Lands­rétt eða tæki við öðru starfi þar sem laun og líf­eyr­is­rétt­indi eru hærri en hjá hér­aðs­dóm­ara. Í ljósi þessa verður að telja að bætur til stefn­anda fyrir fjár­hags­legt tjón séu hæfi­lega ákveðnar 4 millj­ónir króna að álitum.“

Auk þess fór Jón fram á að fá greiddar 2,5 millj­ónir króna í miska­bætur en fékk dæmdar 1,1 milljón króna í slíkar.

Telur árlegt tjón sitt vera 11,3 milljónir

Eiríkur Jónsson, hinn umsækj­and­inn sem dóm­nefnd hafði metið á meðal þeirra hæf­ustu en hlaut ekki náð fyrir augum dóms­mála­ráð­herra, setti ekki fram kröfu um skaða­bætur heldur fór fram á að fá við­ur­kennda bóta­skyldu. Sú bóta­skylda var við­ur­kennd.

Eiríkur er fæddur árið 1977 og átti því allt að 30 ár eftir af starfsæv­inni þegar skipað var í Lands­rétt.

Í dómnum kemur fram að Eiríkur telur sig hafa orðið fyrir „aug­ljósu og auð­sann­an­legu“ fjár­hags­legu tjóni vegna sak­næmar og ólög­mætrar ákvörð­unar ráð­herra að skipa hann ekki sem dóm­ara í Lands­rétt. „Hefði stefn­andi fengið skipun í emb­ætti lands­rétt­ar­dóm­ara hefði fylgt því umtals­verð tekju­aukn­ing fyrir hann. Stefn­andi starfar sem pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands með kr. 745.318 í grunn­laun á mán­uði. Mán­að­ar­laun lands­rétt­ar­dóm­ara verði sam­kvæmt ákvörðun kjara­ráðs 14. des­em­ber 2017 sam­tals kr. 1.692.155. Munurinn nemi kr. 946.837 á mán­uði, eða kr. 11.364.044 á árs­grund­velli. Þannig sé ljóst að grunn­laun lands­rétt­ar­dóm­ara séu umtals­vert hærri en grunn­laun stefn­anda og tjónið því mikið.“

Verði málunum áfrýjað verða þau næst til meðferðar í Landsrétti.
Verði mál­unum áfrýjað verða þau næst til með­ferðar í Lands­rétti.

Eiríkur lagði fram nýjasta launa­seðil sinn, skatt­fram­töl sem sýndu tekjur áranna 2015 og 2016 og stað­greiðslu­yf­ir­lit árs­ins 2017 til að sýna enn frekar fram á tjón sitt. Í dómi hér­aðs­dóms segir að þegar litið sé til með­al­tals heild­ar­tekna Eiríks á mán­uði síð­ast­liðin þrjú ár, upp­reiknuð með hlið­sjón af launa­vísi­tölu, sé ljóst „að sú fjár­hæð er mun lægri en grunn­laun lands­rétt­ar­dóm­ara. Þannig séu með­al­tekjur stefn­anda síð­ustu þrjú alm­an­aksár, að teknu til­liti til allra auka­tekna og upp­reikn­aðar sam­kvæmt vísi­tölu, því kr. 513.793 lægri á mán­uði en grunn­laun lands­rétt­ar­dóm­ara, eða sem nemur kr. 6.165.516 á árs­grund­velli. Áréttað skal að hluti af heild­ar­tekjum stefn­anda – þ.e. tekjur sem eru umfram grunn­laun – sé vegna starfa sem stefn­andi hefði áfram getað sinnt sam­hliða störfum sem lands­rétt­ar­dóm­ari.“

Auka­tekjur hans umrædd ár voru fyrst og fremst til komnar vegna for­mennsku Eiríks í Úrskurð­ar­nefnd um Við­laga­trygg­ingu Íslands. Því starfi hélt Eiríkur áfram þegar hann var settur hér­aðs­dóm­ari í um eitt ár, með sam­þykki nefndar um dóm­ara­störf, og hefði því getað haldið því starfi áfram sam­hliða Lands­rétti. „Þá vísar stefn­andi til þess að þegar hann var settur hér­aðs­dóm­ari var hann sam­hliða í 30% stöðu við laga­deild Háskóla Íslands, sem hann hefði jafn­framt getað gegnt sam­hliða störfum í Lands­rétti. Hann hefði sam­kvæmt því áfram getað haft nokkrar auka­tekjur sem lands­rétt­ar­dóm­ari, rétt eins og í starfi sínu sem pró­fessor, og eðli­leg­ast að horfa til mis­munar á grunn­launum í hvoru starfi fyrir sig. Allt að einu sé ljóst að með­al­tal heild­ar­tekna stefn­anda á mán­uði síð­ast­liðin þrjú ár sé umtals­vert lægri fjár­hæð en grunn­laun lands­rétt­ar­dóm­ara og tjón stefn­anda því aug­ljóst.“

Bóta­skylda rík­is­ins gagn­vart Eiríki var við­ur­kennd. Eiríkur þarf nú að höfða skaða­bóta­mál til að þær bætur sem hann á rétt á geti verið ákvarð­aðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár