Isavia þarf að afhenda Kaffitári gögn um útboðið í Leifsstöð

Kaffitár vinnur áfanga­sigur gegn Isavia. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál kveður upp úrskurð. Fær meðal ann­ars gögn um Lag­ar­d­ére services retail ehf. sem rekur fimm veit­inga­staði og versl­anir í Leifs­stöð og hækk­aði nýlega hlutafé sitt um 150 millj­ónir króna.

Íhugar að stefna Isavia
Íhugar að stefna Isavia Aða­heiður Héð­ins­dóttir íhugar að stefna Isavia út af útboð­inu í Leifs­stöð í fyrra en úrskurð­ar­nefnd hefur nú kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að fyr­ir­tæki hennar, Kaffitár, eigi að fá gögn um útboðið.

„Þetta var fulln­að­ar­sigur fyrir okkur og erum alsæl með þetta. […] Okkur finnst bara með ólík­indum sum ein­kunna­gjöfin sem við fengum í útboð­inu og það styður það að þetta hafi ekki verið vel unnið,“ segir Aðal­heiður Héð­ins­dóttir, stofn­andi og eig­andi Kaffi­társ, aðspurð um þá nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál að flug­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Isavia þurfi að afhenda fyr­ir­tæk­inu öll gögn um útboð á veit­inga- og versl­un­ar­hús­næði í Leifs­stöð í fyrra. Aðal­heiður var mjög ósátt við að Kaffitár fékk ekki versl­un­ar­rými í Leifs­stöð í kjöl­far útboðs­ins í fyrra og hefur fyr­ir­tæki hennar skoðað rétt­ar­stöðu sína í kjöl­farið og kraf­ist gagna um útboðið frá Isavia.

71 til­boð barst í veit­inga- og versl­un­ar­rýmið og voru ýmis fyr­ir­tæki eins og Kaffitár og fata- og minja­gripa­fyr­ir­tækið Drífa ósátt við að fá ekki áfram inni í Leifs­stöð. Drífa hefur nú þegar stefnt rekstr­ar­að­ila flug­stöðv­ar­innar, rík­is­fyr­ir­tæk­inu Isavia, vegna útboðs­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár