Guðni fundar með leiðtogum flokkanna á morgun

Forseti Íslands hyggst funda á morgun með for­ystu­mönnum stjórn­mála­flokk­anna.

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhann­es­son mun eiga fundi með for­ystu­mönnum stjórn­mála­flokka, sem eiga full­trúa á Alþingi, á Bessa­stöðum á morgun laug­ar­dag­inn 16. sept­em­ber, að loknum fundi með Bjarna Bene­dikts­syni, for­sæt­is­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þetta kemur framí til­kynn­ingu frá for­set­anum. „Klukkan 13:00 fundar Guðni með Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs; klukkan 13:45 á hann fund með Birgittu Jóns­dóttur, for­manni þing­flokks Pírata; klukkan 14:30 er fundur for­seta með Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins; 15:15 á for­seti fund með Benedikt Jóhann­essyni, for­manni Við­reisnar; klukkan 16:00 hefst fundur for­seta með Óttari Proppé, for­manni Bjartrar fram­tíðar; og klukkan 16:45 á for­seti fund með Loga Má Ein­ars­syni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Leið­togar flokk­anna hafa einn af öðrum talað um það í dag, að far­sæl­ast sé í stöð­unni sem komin er upp, eftir að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar féll, að boða til kosn­inga. Bjarni sagði á blaða­manna­fundi í Valhöll í dag, að hann teldi skyn­sam­leg­ast að kjósa í nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár