Nærri þriðjungur Bandaríkjamanna tilbúinn að grípa til vopna gegn stjórnvöldum

Meiri­hluti Banda­ríkja­manna telur stjórn­völd þar í landi spillt og nærri þriðj­ungur að komið geti til þess að almennir borg­arar neyð­ist til þess að grípa til vopna gegn stjórn­völdum á næst­unni.

28 prósent Bandaríkjamanna telja að fljótlega geti komið til þess að almennir borgarar neyðist til þess að grípa til vopna gegn stjórnvöldum.
28 pró­sent Banda­ríkja­manna telja að fljót­lega geti komið til þess að almennir borg­arar neyð­ist til þess að grípa til vopna gegn stjórn­völdum. Mynd: EPA

Yfirvöld í Banda­ríkj­unum eru spillt og vinna gegn hags­munum venju­legs fólks eins og mín. Við þessa full­yrð­ingu tengir meiri­hluti Banda­ríkja­manna, þar af tveir þriðju hlutar kjós­enda Repúblikana­flokks­ins og 51 pró­sent frjáls­lyndra. Þetta eru nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar á vegum stjórn­mála­fræði­deild­ar­innar við Chicago-háskóla.

Þá telja 28 pró­sent Banda­ríkja­manna að fljót­lega geti komið til þess að almennir borg­arar neyð­ist til þess að grípa til vopna gegn stjórn­völdum. Meðal byssu­eig­enda telja 37 pró­sent að komið geti til þessa. 35 pró­sent kjós­enda Repúblikana­flokks­ins eru þessu sam­mála en aðeins 20 pró­sent kjós­enta Demókra­ta­flokks­ins.

[adspot]Áhuga­vert er að líta til nið­ur­staðna rann­sókn­ar­innar í ljósi þess að endi var bund­inn á vitna­leiðslur sum­ars­ins vegna árás­ar­innar sem gerð var á þing­hús Banda­ríkj­anna 6. jan­úar á síð­asta ári á dög­unum, þar sem til­raun var gerð til þess að sýna fram á ábyrgð á Donalds Trump, þáver­andi Banda­ríkja­for­seta, á árásinni, en hann neit­aði að við­ur­kenna nið­ur­stöður nýaf­stað­inna for­seta­kosn­inga, þar sem hann tap­aði fyrir Joe Biden, fram­bjóð­anda Demókra­ta­flokks­ins, og atti stuðn­ings­fólk sitt til að sæta ekki úrslit­unum og gera atlögu að þing­hús­inu. Þá aðhafð­ist hann ekk­ert í þrjár klukku­stundir eftir að árásin hófst, en varð að lokum við grát­beiðnum aðstand­enda og ráð­gjafa sinna um að biðja stuðn­ings­fólk sitt að láta af árásinni.

Þrátt fyrir rétt­ar­höldin nýtur Trump enn mik­ils stuðn­ings meðal repúblik­ana, sem sam­kvæmt umfjöllun The Hill hafa meiri áhyggjur af glæpum, verð­bólg­unni og mennta­kerf­inu en atburðum 6. jan­úar 2021.

[links]Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar töldu 56 pró­sent þátt­tak­enda kosn­ingar sann­gjarnar og nákvæmar, en sú tala fellur niður í 33 pró­sent þegar litið er til kjós­enda Repúblikana­flokks­ins.

Af nið­ur­stöð­unum að dæma er bilið á milli stjórn­mála­fylk­ing­anna tveggja enn að stækka og hafði fjórð­ungur þátt­tak­enda slitið vina­bönd vegna stjórn­mála­skoð­ana. Yfir 70 pró­sent kjós­enda beggja flokka eru sam­mála því að kjós­endur hins flokks­ins séu yfir­gangs­seggir sem vilji þröngva skoð­unum sínum upp á þá sem ósam­mála eru. Þá telur meiri­hluti þátt­tak­enda að kjós­endur hins flokks­ins séu illa upp­lýstir vegna þess hvaðan þeir fá upp­lýs­ingar og fréttir.

Rann­sóknin var fram­kvæmd í maí og náði til 1.000 skráðra kjós­enda í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár