Ríkið dæmt til að greiða Aldísi bætur

Íslenska ríkið, með fram­göngu Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, braut á Aldísi Hilm­ars­dóttur, fyrr­ver­andi yfir­manni fíkni­efna­deildar.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri.
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hæstirétt­ur hef­ur dæmt ís­lenska ríkið til að greiða Al­dísi Hilm­ars­dótt­ur, fyrr­ver­andi yf­ir­manni fíkni­efna­deild­ar lög­regl­unn­ar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 1,5 millj­ón­ir króna í miska­bæt­ur. Áður hafði ríkið verið sýknað í hér­aði.

Ríkið var dæmt vegna til­færslu í starfi og ein­elt­is sem Aldís varð fyr­ir af hálfu lög­reglu­stjóra, Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur.

Sig­ríður Björk ákvað að færa Al­dísi til í starfi, en Al­dís taldi um stjórn­valds­á­kvörðun að ræða sem byggði á ómál­efna­leg­um for­send­um og í raun verið illa dul­bú­in og fyr­ir­vara­laus brott­vikn­ing úr starfi.

Þá sak­aði hún Sig­ríði um ein­elti.

Fór Al­dís fram á 2,3 millj­ón­ir í bæt­ur og ógild­ingu á ákvörðun­inni. Hæstirétt­ur vís­aði hins veg­ar frá kröfu um ógild­ingu, en bæt­urnar voru 1,5 millj­ónir eins og áður segir.

Í dómi Hæsta­réttar er sér­stak­lega til­tekið, að ekki hafi komið fram neitt við rekstur máls­ins, sem færði sönnur á að Aldís hefði ekki ráðið við hlut­verk sitt, við stjórnun deild­ar­innar sem hún bar ábyrgð á, eins og lög­reglu­stjóri og íslenska ríkið héldu fram. „Við töku fram­an­greindrar ákvörð­unar mátti lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vera ljóst að hún var til þess fallin að vera meið­andi fyrir áfrýj­anda, sem í áranna rás hafði unnið sig til met­orða innan lög­regl­unnar, eins og lýst er að framan, og verið falin aukin ábyrgð fáeinum mán­uðum áður en ákvörð­unin var tekin. Vó ákvörð­unin því að æru áfrýj­anda og per­sónu,“ segir í dómi Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár