Oddný Harðardóttir leiðir fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi

Fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og eini þing­maður flokks­ins úr Suð­ur­kjör­dæmi leiðir lista flokks­ins á ný.

Oddný Harðardóttir
Oddný Harð­ar­dóttir

Odd­ný G. Harð­ar­dótt­ir, þing­maður og fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, mun leiða lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Suður­kjör­dæmi í kom­andi alþing­is­kosn­ing­um. Þetta var ákveðið á fundi flokks­ins í kjör­dæm­inu í kvöld, og er greint frá nið­ur­stöð­unni í til­kynn­ingu frá flokknum.

Njörður Sig­urðs­son, sagn­fræð­ing­ur og bæj­ar­full­trúi í Hvera­gerði, skip­ar annað sætið á list­an­um, Arna Ír Gunn­ars­dótt­ir, fé­lags­ráð­gjafi og bæj­ar­full­trúi í Árborg, er í þriðja sæti og fjórða sætið skip­ar Marinó Örn Ólafs­son, há­skóla­nemi frá Reykja­nes­bæ.

[adspot]

Listi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Suður­kjör­dæmi

  1. Odd­ný G. Harð­ar­dótt­ir – alþing­ismaður, Garði
  2. Njörður Sig­urðs­son – sagn­fræð­ing­ur og bæj­ar­full­trúi, Hvera­gerði
  3. Arna Ír Gunn­ars­dótt­ir – fé­lags­ráð­gjafi og bæj­ar­full­trúi, Árborg
  4. Marinó Örn Ólafs­son – há­skóla­nemi, Reykja­nes­bæ
  5. Guðný Birna Guðmunds­dótt­ir – hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur og bæj­ar­full­trúi, Reykja­nes­bæ
  6. Miralem Haseta – hús­vörður í Nýheim­um, Höfn í Horna­firði
  7. Arna Huld Sig­urð­ar­dótt­ir – hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur, Vest­manna­eyj­um
  8. Guðmund­ur Ol­geirs­son – fram­kvæmda­stjóri og bæj­ar­full­trúi, Þor­láks­höfn
  9. Borg­hild­ur Krist­ins­dótt­ir – bóndi, Land­sveit
  10. Ástþór Tryggva­son – nemi og þjálf­ari, Vík í Mýr­dal
  11. Jór­unn Guðmunds­dótt­ir – stjórn­ar­maður í öld­unga­ráði Suður­nesja, Sand­gerði
  12. Val­gerður Jenný­ar­dótt­ir – leið­bein­andi á leik­skóla, Grinda­vík
  13. Ólaf­ur H. Ólafs­son – há­skóla­nemi, Árborg
  14. Sím­on Cramier – fram­halds­skóla­kenn­ari, Reykja­nes­bæ
  15. Jó­hanna Sig­ur­björns­dótt­ir – fóta­að­gerða­fræð­ing­ur og há­skóla­nemi, Reykja­nes­bæ
  16. Ingi­mund­ur Berg­mann – vél­fræð­ing­ur, Flóa­hreppi
  17. Krist­ín Á. Guðmunds­dótt­ir – for­maður Sjúkra­liðafé­lags­ins Árborg
  18. Kristján Gunn­ars­son – fyrr­ver­andi alþing­ismaður Reykja­nes­bæ
  19. Karl Stein­ar Guðna­son – fyrr­ver­andi alþing­ismaður, Reykja­nes­bæ
  20. Mar­grét Frí­manns­dótt­ir – fyrr­ver­andi alþing­ismaður
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár