Útfærslur af klassískum Kundalini jógamöntrunum

Safnað fyrir útgáfu á plöt­unni: Hið innra lands­lag // Inner Landscape, sem er fyrsta breið­skífa Hugrúnar Fjólu.

Hugrún Fjóla, sem gengur nú undir lista­manns­nafn­inu Fjóla, er Kundal­ini jóga­kenn­ari, stærð­fræð­ingur og mön­tru­söng­kona. Hún hefur síð­ast­liðin ár ferð­ast á milli jóga­há­tíða í Evrópu og Banda­ríkj­unum með ukul­ele-ið sitt og önnur hljóð­færi í fartesk­inu. Hennar ein­staka rödd, fram­koma og útfærslur af klass­ísku Kundal­ini jóga­mön­tr­unum hafa vakið mikla athygli á hátíð­unum og hefur eft­ir­spurn eftir fram­komu hennar og upp­teknu efni verið mikil. Í mars á þessu ári ákvað hún því loks að láta verða af því að taka upp sína fyrstu plötu, sem hún gerði í Skál­holts­kirkju með upp­töku- og tón­list­ar­mann­inum Arnari Guð­jóns­syni.

Platan er nú á loka­stigi og raf­ræn útgáfa hennar er vænt­an­leg í fyrri hluta des­em­ber. Fjóla hefur því blásið til styrkt­ar­söfn­unar í gegnum Karolina Fund til að hjálpa sér leggja loka hönd á verk­efnið.
Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?
„Hug­myndin að plöt­unni var búin að liggja lengi innra með mér, en það tók tíma að finna rétta far­veg­inn fyrir hana. Fyrir 6 árum síðan ákvað ég að fara í jóga­kenn­ara­nám og kynnt­ist þá fyrst morg­un­á­stundun Kundal­ini jóga, sem kall­ast „Sadhana" Vatns­bera­ald­ar­innar, en það er saman sett af hug­leiðslu, jóga og mön­tru­söng, alls 2,5 klst. ástundun, sem er mjög snemma eða helst ein­hvern tím­ann milli kl. 3:30 og 7 að morgni. Mön­tru­söng­ur­inn er rúm­lega klukku­tími af ástund­un­inni, en það eru 7 mön­trur sem við kyrjum, hver með sína ákveðnu lengt. Lengd mantr­anna, taktur og fram­burður hefur allt sér­stök heil­un­ar­á­hrif á und­ir­með­vit­und okkar, hug­ann, tauga­kerfið og heila­starf­semi, og frá fyrstu kynnum við mön­tr­urnar varð ég hug­fangin.

[adspot]Eftir aðeins tvo daga í nám­inu fann ég hvernig hjartað mitt opn­að­ist og til mín streymdu nýjar lag­línur fyrir mön­tr­urnar. Ég deildi mön­tr­unum með sam­nemum mínum og kenn­urum í þess­ari nýju mynd við dásam­legar við­tökur. Uppúr því spil­aði ég nán­ast í hvert ein­asta skipti sem við hitt­umst saman fyrir morgun Sadhana, og hófst þannig magnað ferða­lag með mön­tr­unum, bæði innra ferða­lag og ferða­lag um heim­inn. En það var hér heima á Íslandi sem fræið að því að taka upp varð til. Einn morg­un­inn átti ég alveg himneska upp­lifun í Skál­holts­kirkju, þar sem ég fékk að kyrja Sadhana mön­tr­urnar með hópi af jóga­kenn­ara­nemum. Við fundum fyrir ljósi og englum, og í hvert skipti sem ég söng mön­tr­urnar eftir það, hvar sem ég var í heim­inum, fann ég mig ljós­lif­andi aftur í Skál­holts­kirkju.

Svo eftir að hafa verið boðið til Englands, Þýska­lands og jafn­vel til Banda­ríkj­anna til að taka upp, en finna í hvert skipti að eitt­hvað var ekki alveg „eins og það átti að vera", þá rann upp fyrir mér að ég ætti að koma heim og taka upp í Skál­holts­kirkju. Svo fimm árum eftir að hug­myndin kvikn­aði, þá lét ég loks verða að því.“
Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?
„Þemað er þakk­læti og „Naad", sem þýðir „heil­agt hljóð­flæði". Ég tengd­ist þessu kosmíska heilaga hljóð­flæði per­sónu­lega í gegnum mön­tr­unar og það gjör­breytti mér og lífi mínu. Þakk­lætið sem ég ber til „Naad"-sins er dýpra en orð geta tjáð, svo ég tjái það með að syngja og spila, fram­kalla hljóma og tóna sem víbra með „Naad"-inu til að aðrir megi upp­lifa umbreyt­ing­ar­krafta þess, en þessi umbreyt­ing kemur einmitt fram í formi þakk­lætis, svo við erum komin heil­ann hring. Sem mér finnst dásam­lega stærð­fræði­leg hringrás: þakk­læti fyrir „Naad"-ið, fram­kallar „Naad"-ið, sem fram­kallar þakk­lætið.“

Nánari upp­lýs­ingar má nálg­ast á vef Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár