Ísland orðið appelsínugult á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu

Mikil fjölgun greindra smita hér á landi hefur haft það í för með sér að Ísland er ekki lengur grænt á korti Sótt­varna­stofn­unar Evrópu. Væru nýj­ustu upp­lýs­ingar um far­ald­ur­inn not­aðar yrði Ísland rautt á kort­inu.

Kort Sóttvarnastofnunar Evrópu sem uppfært var í dag.
Kort Sótt­varna­stofn­unar Evrópu sem upp­fært var í dag. Mynd: ECDC

Ísland er orðið app­el­sínugult á korti Sótt­varna­stofn­unar Evrópu (ECDC) sem nú hefur verið upp­fært. Ef hlut­fall jákvæðra sýna er innan við fjögur pró­sent þarf nýgengi smita að vera á bil­inu 75 og 200 til þess að lönd fái app­el­sínugulan lit.

Tölurnar sem nýjasta kort stofn­un­ar­innar byggja á eru frá því á mið­nætti á þriðju­dags­kvöld en kortið er upp­fært á fimmtu­dögum. Miðað við skil­grein­ingar stofn­un­ar­innar þá væri Ísland rautt í dag ef byggt væri á nýj­ustu tölum, enda þarf 14 daga nýgengi smita að vera á bil­inu 200 til 500 til þess að land fái rauðan lit á kort­inu. Samkvæmt nýj­ustu tölum á covid.is er 14 daga nýgengi smita 249 hér inn­an­lands. Sé hlutafll jákvæðra sýna yfir fjögur pró­sent, þá er landi gef­inn rauður litur ef nýgengið er á bil­inu 75 til 200.

Kvaðir á ferðalanga frá löndum sem ekki eru græn

Aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins eru sér­stak­lega hvött til þess að beita sam­bæri­legum tak­mörk­unum á landa­mærum sínum sem taka mið af korti Sótt­varna­stofn­unar Evrópu. Í sér­stökum til­mælum sam­bands­ins kemur fram að lönd innan ESB hafa sam­þykkt að engar kvaðir hvíli á ferða­mönnum sem ferð­ast á milli grænna landa sem aðild eiga að Evr­ópu­sam­band­inu.

Sé það talið nauð­syn­legt að beita aðgerðum á landa­mærum gagn­vart fólki sem kemur frá svæðum sem ekki eru græn á kort­inu þá er mælt með því að það sæti sótt­kví eða fari í skimun fyrir eða eftir brott­för. Aðild­ar­ríki skulu mæla gegn ferða­lögum til og frá rauðum svæðum og mæla harð­lega gegn ferða­lögum til og frá dökk­rauðum svæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár