Tekur upp þráðinn í málum hælisleitenda – eftir að hafa viljað halda friðinn

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur und­an­farnar vikur birt tölur yfir ein­stak­linga sem lent hafa á Kefla­vík­ur­flug­velli og sótt um alþjóð­lega vernd. Hann vill ekki greina frá því hvaðan hann fær töl­urnar.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Það fólk sem er að koma hingað til lands til að lifa betra lífi verður að koma á þeim for­sendum.“ Þetta segir Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í sam­tali við Kjarnann en und­an­farnar vikur hefur hann birt tölur um hversu margir hæl­is­leit­endur hafa komið til Íslands á Facebook-síðu sinni.

Þing­mað­ur­inn heldur því fram að margir þeirra sem sækja um vernd hér á landi séu að leita sér að vinnu. Auðvitað geti þeir komið hingað í atvinnu­leit en hann telur að þá verði þeir að sækja um atvinnu­leyfi eins og aðrir. Skil­grein­ing hæl­is­leit­enda nái ekki yfir fólk í atvinnu­leit.

Hann vill ekki gefa það upp hvaðan hann fær þessar tölur um hæl­is­leit­endur en Útlend­inga­stofnun hefur stað­fest þær fyrstu sem hann birti í lok sept­em­ber í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. „Ástæðan fyrir því að ég birti þessar tölur er sú að hringt var í mig og mér sagt hvað væri í gangi upp á flug­velli,“ segir hann.

[adspot]

Fyrst greindi Ásmundur frá því að 17 manns hefðu komið þann 25. sept­em­ber til lands­ins. Ásmundur segir í sam­tali við Kjarnann að síðar hafi komið í ljós að fleiri hefðu komið um svipað leyti. „Ég var svo sem ekki að elta ólar við það því það kom nokkrum dögum seinna.“

Viku síðar komu 20 í við­bót og greindi Ásmundur einnig frá því á Facebook. Við færsl­una skrif­aði hann: „Fjöl­miðlar hér á landi flytja ekki fréttar af hingað komu hæl­is­leit­enda. Þeim til upp­lýs­inga komu 20 hæl­is­leit­endur um síð­ustu helgi til lands­ins. Um 40 síð­ustu tvær helgar.“

Ásmundur segir við Kjarnann að það sama hafi verið upp á ten­ingnum þá; hann hefði fengið sím­tal og skila­boð þar sem honum var greint frá því hversu margir hefðu komið á þessum degi.

Í gær greindi hann frá því að far­þega­vél hefði komið frá Ítalíu deg­inum áður en með flug­vél­inni hefðu verið 35 far­þegar. Þar af 14 hæl­is­leit­endur. „Mér er sagt að kostn­aður (óstað­ferst) vegna hvers hæl­is­leit­enda sé 6 millj­ónir og þessir 14 kosta rík­is­sjóð því 84 millj­ónir. Síðustu þrjár vikur hafa komið 54 hæl­is­leit­endur og kostn­að­ur­inn vegna þeirra fyrir rík­is­sjóð því 324 millj­ónir,“ skrifar hann á Facebook.

Hefur viljað halda friðinn í stjórnarsamstarfinu

Ásmundur segir að miðað við þessa þróun þá megi búast við því að um 1.000 ein­stak­lingar sæki um hæli hér á landi á ári.

„Mér finnst það mikið. Ég hef ekk­ert verið að vekja athygli á þessu áður – og hef reyndar ekk­ert sagt í þrjú ár um þetta á meðan þetta stjórn­ar­sam­band hefur verið. Ég hef lagt mig fram um að hafa frið í þessu stjórn­ar­sam­starfi,“ segir hann. „En í ljósi umræð­unnar síð­ustu vikur fannst mér rétt að taka þráð­inn aðeins upp.“

Umsóknir um alþjóð­lega vernd voru 867 á síð­asta ári, sam­kvæmt Útlend­inga­stofnun, og fjölg­aði um 67 milli ára en flestir umsækj­endur komu frá Venes­ú­ela og Írak. Þá hafa alls 433 ein­stak­lingar sótt um vernd fyrstu átta mán­uði árs­ins 2020 og koma flestir frá Venes­ú­ela, Írak, Sýrlandi, Palest­ínu, Sómalíu, Afghanistan, Nígeríu og Íran.

Hefði fyrir löngu átt að vera búið að endurskoða löggjöf um atvinnuleyfi

Ásmundur segir að ábend­ingar hans um fjölda hæl­is­leit­enda snú­ist ekki um fólkið per­sónu­lega. Hann sé frekar að velta fyrir sér þeim reglum sem gilda hér á landi. „Nær allir sem koma núna eru ein­stak­lingar sem koma í atvinnu­leit. Þetta er ekki fólk sem er að flýja póli­tískar stöður. Þetta fólk sem núna er að koma m.a. frá Ung­verja­landi sam­kvæmt mínum upp­lýs­ingum og hefur hluti þess búið þar árum saman. Ég bara veit það. Það grefur upp gömul vega­bréf sín og fer til Íslands og seg­ist vera hæl­is­leit­endur – í leit að betra lífi. Það er bara þannig að skil­grein­ingin á flótta­manni eða hæl­is­leit­anda á ekki við fólk sem er að flýja efna­hags­legar aðstæður. Það er það sem ég er að vekja athygli á,“ segir hann.

Einn ein­stak­lingur frá Ung­verja­landi – drengur – hefur sótt um vernd, sam­kvæmt tölum frá Útlend­inga­stofnun, frá jan­úar til ágúst 2020 en Kjarninn hefur ekki undir höndum hversu margir Ung­verjar hafa komið í sept­em­ber og októ­ber.

Þá segir Ásmundur að Íslend­ingar hefðu fyrir löngu átt að vera búnir að skoða til­lögu Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra og end­ur­skoða lög­gjöf­ina hvað atvinnu­leyfi varðar og rýmka heim­ildir útlend­inga til að koma hingað til að starfa. Hann telur það vera mann­rétt­inda­brot þegar fólk er búið að dvelja á Íslandi árum saman og ekki búið að fá atvinnu­leyfi.

Segir fjölmiðla ljúga upp á hann

Ásmundur segir að fjöl­miðlar, og Kjarninn með­tal­inn, hafi gert honum upp skoð­anir og logið upp á hann. Þannig hafi hann komið út „sem ein­hver skít­hæll“ í umfjöllun í fjöl­miðlum þegar hann hefur talað um þessi mál.

„Ég veit ekki annað en að við Íslend­ingar séum bara góðir við fólk og ég er ekki nein und­an­tekn­ing á því. Þannig að við viljum taka á móti fólki – og ég þekki til dæmis fullt af þessu fólki sem kom frá fyrr­ver­andi Júgóslavíu sem fest hefur rætur hér. Nú er það meira að segja að flytja aftur heim og hefur aldrei haft það betra. Þannig að það er hringur í því,“ segir hann.

Að mati Ásmundar hafa Íslend­ingar nóg með sig í þessu COVID-ástandi – þar sem landið sé að brotna innan frá út af áhyggjum og mikið erf­ið­ari stöðu en reiknað hafi verið með. Hann segir að nú þurfi til að mynda að flytja hæl­is­leit­end­urna milli Kefla­víkur og Reykja­víkur á einka­bílum í stað rúta. „Menn þurfa á vöktum að vera í sér­stökum hlífð­ar­fötum og svo eru þeir sól­ar­hringum saman að þrífa eftir þetta allt saman. Þetta eru menn sem eiga að vera að sinna öðru í sam­fé­lag­inu – mik­il­vægum störfum, sjúkra­flutn­ingum og öðru.“

Tilbúinn að taka á móti fólki sem flýr ofstæki

Ásmundur telur að sumir hæl­is­leit­endur komi hingað til lands á fölskum for­sendum til þess að sækj­ast eftir betra lífi – betra lífs­við­ur­væri og lífs­kjörum. „Það fólk á auð­vitað að koma hingað á öðrum for­sendum. Það á að sækja um land­vist­ar­leyfi og vinnu. Fá atvinnu­leyfi eins og útlend­ingar þurfa að gera. Og þá þurfa þeir að gera það áður en þeir koma til lands­ins, ekki éta vega­bréfið sitt á leið­inni.“

Þá segir hann að auð­vitað sé hann til­bú­inn að taka á móti fólki sem er að flýja ofstæki og hræði­legar aðstæður sem eng­inn getur hugsað sér að búa við. „Ég hef aldrei sagt að ég sé á móti slíku fólki,“ áréttar hann.

Þá tekur hann það fram að hann sé ekki hrif­inn af starfs­manna­leigum á Íslandi sem fara illa með fólk. „Það eru nátt­úr­lega kvik­indi sem nýta sér bág­indi fólks á ýmsa vegu. Og ég held að það séu menn sem fái pen­inga fyrir að flytja þetta fólk hér inn og á milli landa í Evrópu. Þetta snýst allt um pen­inga og að gera fátækt fólk enn fátækara og mis­nota bág­indi þeirra. Segja þeim að fara til Íslands þar sem nóg er að gera og allt í blóma. Það eru kannski bara þessi skila­boð sem við þurfum að pæla í og hjálpa þeim sem eru hjálpa þurfi,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár