Höskuldur vildi Sigmund Davíð af þingi

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins,
Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókna­flokks­ins, segir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og nú fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefði átt að segja af sér þing­mennsku. Hann hefði þá haft tæki­færi til að koma aftur til leiks tví­efldur. „En það er auð­vitað kjós­enda og stuðn­ings­manna flokks­ins að ákveða hvort hann verði fram­tíð­ar­for­maður flokks­ins.“ Þetta er haft eftir Höskuldi í Frétta­blað­inu í dag. Hann segir einnig að Sig­mundur Davíð eigi að fá rými til að gera betur grein fyrir sínum málum. „Hann sagði sjálfur að það væri ástæða til þess að gera betur grein fyrir sínum málum og leggja fram gögn, ef þau eru til.“

Sig­mundur Davíð baðst loks lausnar á rík­is­ráðs­fundi á Bessa­stöðum í gær. Við tók rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar. Sig­mundur Davíð ætlar sér að fara í frí á næstu dögum og taka síðan sæti sem almennur þing­maður. Hann mun einnig verða for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins áfram.

Afsögn Sig­mundar Davíðs kom í kjöl­far þess að opin­berað var að hann hefði átt aflands­fé­lag með heim­il­is­festi á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Félagið hélt utan um miklar eignir eig­in­konu hans og var kröfu­hafi í slitabú föllnu bank­anna. Sig­mundur Davíð hefur ítrekað sagt að allir skattar hafi verið greiddir hér­lendis vegna þeirra eigna sem í félag­inu eru en hefur ekki viljað svara fyr­ir­spurnum, meðal ann­ars Kjarnans, um hvort hann og eig­in­kona hans hafi fyllt út svo­kall­aða CFC-skýrslu með skatt­fram­tali sínu, líkt og eig­endur félaga á lág­skatta­svæðum eiga að gera.

Í Kast­ljós­þætti, sem unnin var í sam­starfi við Reykja­vík Media og sýndur var síð­asta sunnu­dag, var greint frá tengslum íslenskra stjórn­mála­manna við félög í þekktum skatta­skjólum. Þegar hefur verið upp­lýst að nöfn nokkur hund­ruð Íslend­inga sé að finna í þeim skjölum sem umfjöll­unin byggði á, en þau eru frá lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca í Panama. Um er að ræða stærsta gagna­leka sög­unnar og hefur hann verið fyrsta frétt út um allan heim und­an­farna tæpa viku.

Í Frétta­blað­inu í dag er greint frá því að rík­is­skatt­stjóri hafi kraf­ist þess að fá Panama-skjölin afhent frá Reykja­vik Media á grund­velli 94. greinar tekju­skatts­laga. Þar segir: „Öllum aðilum […] er skylt að láta skatt­yf­ir­völdum í té ókeypis og í því formi, sem óskað er, allar nauð­syn­legar upp­lýs­ingar og gögn er þau beið­ast og unnt er að láta þeim í té. Ekki skiptir máli hvort upp­lýs­ing­arnar varða þann aðila sem beiðn­inni er beint til […]."

Þegar hefur verið sent bréftil Reykja­vík Media, sem hefur frest til að taka afstöðu til máls­ins.Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, rit­stjóri Reykja­vik Media, segir þó að fyr­ir­tæki hans hafi ekk­ert for­ræði yfir gögn­unum. „Það hafa Alþjóða­sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna (ICIJ)[...]Varðandi óskir rík­is­skatt­stjóra þá er lög­maður okkar að svara því erindi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár